Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

404. fundur 18. febrúar 2026 kl. 09:00 - 10:53 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

319. fundur haldinn 11.02.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1 til 3.
-liður 1, Miðhús L167415 Miðhúsaskógi; Byggingarreitur miðlunartanks; Deiliskipulagsbreyting - 2602007 Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Miðhúsa L167415 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir miðlunartank austan við þjónustumiðstöðina og 14m frá lóðamörkum. Vatnstankurinn er 6,1m að hæð og 12,5m í ummál, rúmmál um 75m2.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.



-liður 2, Miðbrún 2 L207321; Aukið byggingamagn auka húss; Fyrirspurn - 2602005
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Miðbrún 2 í landi Úthlíðar í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu sveitarfélagsins til þess hvort heimilt sé að veita undanþágu frá almennum skilmálum gildandi deiliskipulags, sem kveða á um að aukahús á frístundalóðum megi að hámarki vera 30 m², þannig að heimilt verði að reisa stakt aukahús allt að 100 m² að stærð á lóðinni. Unnin yrði tillaga að óverulegri deiliskipulagsbreytingu sem taki til frístundasvæðisins í landi Úthlíðar, þar sem byggingarheimildir fyrir aukahús og hámarksstærðir frístundahúsa yrðu endurskoðaðar þannig að takmörkun byggingarmagns miðist eingöngu við hámarks nýtingarhlutfall 0,03.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að erindinu verði synjað þar sem að það er ekki í samræmi við stefnu aðalskipulag Bláskógabyggðar.



-liður 3, Holtakot lóð (L167344); byggingarheimild; sumarhús - 2602001
Móttekin var umsókn þann 30.01.2026 um byggingarheimild fyrir 88 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Holtakot lóð (L167344) í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn mælist til þess að unnið verið deiliskipulag fyrir Holtakot og stofnaðar lóðir samkvæmt merkjalýsingu á grundvelli þess.

Fundargerðin er lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð skólanefndar

2601003

47. fundur haldinn 11.02.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 4 (sjá 3. lið á dagskrá fundarins), 5 (sjá 9. lið á dagskrá fundarins), 7 og 8.
Liðir 4 og 5 eru sérstakir liðir á dagskrá þessa fundar, sjá lið 3 og 9, og eru teknir til afgreiðslu undir þeim liðum.
-liður 7, læsisstefna Bláskógabyggðar 2602003, sveitarstjórn frestar skipan í vinnuhópinn til næsta fundar.
-liður 8, reglur um skólaakstur 2108013, sveitarstjórn felur sveitarstjóra að uppfæra reglur um skólaakstur.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

3.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601033

-liður 2 á dagskrá fundar stjórnar SVÁ frá 19.01.2026. Áður á dagskrá á 403. fundi. Tillaga um ráðningu framkvæmdastjóra til eins árs. Afgreiðsla skólanefndar (sjá 2. lið á dagskrá fundarins).
Umsögn skólanefndar liggur fyrir. Á fundi skólanefndar var samþykkt samhljóða að leggja til við sveitarstjórn að tillaga stjórnar SVÁ verði samþykkt.
Lagt var til að sveitarstjórn samþykki tillögu stjórnar SVÁ um að ráðinn verði forstöðumaður til SVÁ, tímabundið til eins árs.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með sex atkvæðum, gegn atkvæði Önnu Gretu Ólafsdóttur.

4.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

2601005

243. fundur haldinn 04.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

5.Fundargerð oddvitanefndar

2602006

Fundur haldinn 11.02.2026

Afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1-5.
-liður 1, rekstrarform Laugaráshéraðs, oddvitanefnd leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs að Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl verði falið að ganga frá tilkynningu til Skattsins/Fyrirtækjaskrár um slit og afskráningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879 að fengnu samþykki, frágangi og eftir atvikum þinglýsingu skjala skv. fundarliðum 2-4 á fundinum, sem verða nú teknir sérstaklega fyrir. Lagt er til að tillaga oddvitanefndar verði samþykkt.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

-liður 2, drög að nýjum samstarfssamningi um jörðina Laugarás, oddvitanefnd leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að þær samþykki fyrirliggjandi drög að samstarfssamningi um jörðina Laugarás. Samningurinn nær til jarðarinnar sjálfrar og allra þeirra lóða sem hefur verið skipt út úr henni með öllu sem þeim fylgir og fylgja ber.
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillöguna og að Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, kt. 251070-3189, verði falið að undirrita samninginn f.h. sveitarfélagsins.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

Lagt er fram verðmat fyrir jörðina Laugarás, dags. 17.02.2026.
Lagt er til að sveitarstjórn Bláskógabyggðar lýsi yfir vilja til að kaupa hlut Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps í jörðinni Laugarási, L167138, með hliðsjón af fyrirliggjandi verðmati jarðarinnar. Með því að hafa eignarhald jarðarinnar á einni hendi er umsýsla og umsjón jarðarinnar einfölduð og auðveldar það framþróun Laugaráss. Sveitarstjóra verði jafnframt falið að fylgja viðræðunum eftir f.h. sveitarfélagsins og leggja mögulegar útfærslur kaupa Bláskógabyggðar á jörðinni fyrir fund sveitarstjórnar að viðræðum loknum.

Tillagan er samþykkt samhljóða.

-liður 3, drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, oddvitanefnd leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaga Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, að þær samþykki fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs. Í yfirlýsingunni felst að við niðurlagningu Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, falli grunneignarréttur Laugaráshéraðs í öllum þeim fasteignum sem tilgreindar eru í fylgiskjali með eignayfirlýsingunni til eigenda Laugaráshéraðs í eftirtöldum eignarhlutföllum:
Hrunamannahreppur


30,0%
Skeiða- og Gnúpverjahreppur

24,9%
Grímsnes- og Grafningshreppur
11,9%
Bláskógabyggð


33,2%
Í eignayfirlýsingunni er tilgreint að framangreind sveitarfélög taki við öllum réttindum og skyldum Laugaráshéraðs í framangreindum hlutföllum og að öll veðbönd á eignunum haldi gildi sínu ásamt því að stór hluti hinna afsöluðu eigna séu leigulóðir og allir leigusamningar haldi gildi sínu.

Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillögu oddvitanefndar um fyrirliggjandi drög að eignayfirlýsingu vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og að sveitarstjóra verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

-liður 4, drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs og hagsmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss, oddvitanefnd leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að þær samþykki fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagsmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss.
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillögu oddvitanefndar um fyrirliggjandi drög að yfirlýsingu um ráðstöfun fjármuna og greiðslu kostnaðar vegna niðurlagningar Laugaráshéraðs, kt. 620169-5879, og hagmunagæslu vegna jarðarinnar Laugaráss, L167138, og að Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, kt. 251070-3189, verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

-liður 5, húsnæði heilsugæslunnar í Laugarási, misskráningar í Fasteignaskrá. Oddvitanefnd leggur til við sveitarstjórnir aðildarsveitarfélaganna að þær samþykki að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl, Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninnni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fastiegnaskrá og þinglýsingarbókum vegna jarðarinnar Laugaráss og útskiptra lóða.
Lagt er til að sveitarstjórn samþykki tillögu oddvitanefndar um að fela Dagnýju Sif Sigurbjörnsdóttur hdl., Lögmönnum Suðurlandi, að fylgja eftir hagsmunagæslu aðildarsveitarfélaganna vegna eignarhluts þeirra í fasteigninni og eftir atvikum annarra misskráninga sem kunna að vera í fasteignaskrá og þinglýsingum vegna jarðarinnar Laugaráss og útskiptra lóða, og að Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, kt. 251070-3189, verði falið að undirrita eignayfirlýsinguna f.h. sveitarfélagsins.
Tillagan er samþykkt samhljóða.

6.Fundargerð stjórnar Bergrisans

2602007

91. fundur haldinn 3. febrúar 2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

7.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses

2602009

25. fundur haldinn 03.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

8.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

2602015

215. fundur haldinn 10.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

9.Bláskógaskóli Laugarvatni, fyrirkomulag stjórnunar

2601067

Fyrirkomulag stjórnunar Bláskógaskóla Laugarvatni, áður á dagskrá á 403. fundi. Afgreiðsla skólanefndar frá 11.02.2026 (sjá 2. lið á dagskrá fundarins).
Málinu var vísað til skólanefndar til umsagnar á 402. fundi sveitarstjórnar. Skólanefnd fjallaði um málið á 47. fundi sínum og var eftirfarandi bókað:
Almenn ánægja kom fram með stjórnunarfyrirkomulagið eins og það hefur verið í vetur. Skólanefnd styður það að leikskólar sveitarfélagsins verði reknir saman, ss leikskóli með tvær starfsstöðvar undir stjórn leikskólastjóra. Aðstoðarleikskólastjórar verði á báðum stöðum og í Bláskógaskóla (grunnskóla) verði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri. Rætt var um möguleikann á að gera þetta tímabundið til eins til tveggja ára og staðan verði endurmetin þá og hugnast skólanefnd að sú leið verði skoðuð.
Umræða varð um málið.
Sveitarstjórn samþykkir að leikskólar sveitarfélagsins verði reknir saman, ss leikskóli með tvær starfsstöðvar undir stjórn leikskólastjóra, sem verði með skilgreinda viðveru á báðum starfsstöðvum. Aðstoðarleikskólastjórar verði á báðum stöðum og í Bláskógaskóla (grunnskóla) verði skólastjóri og aðstoðarskólastjóri. Fyrirkomulag stjórnunar verði endurmetið að tveimur árum liðnum.

10.Styrkbeiðni Sambands sunnlenskra kvenna 2026

2602008

Beiðni Sambands sunnlenskra kvenna, dags. 12.02.2026 um styrk vegna útgáfu ársrits.
Sveitarstjórn samþykkir 12.000 kr styrk til útgáfu ritsins. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

11.Heiðursáskrift að Flóamannabók

2602012

Boð frá Flóamannabók ehf, dags. 11.02.2026, um að gerast heiðursáskrifandi að Flóamannabók III og IV.
Sveitarstjórn samþykkir erindið. Kostnaður, kr. 25.000, rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Fylgiskjöl:

12.Styrkbeiðni Gullkistunnar vegna lagningar ljósleiðara

2602016

Stykbeiðni Gullkistunnar, miðstöðvar sköpunar, dags. 09.02.2026, vegna lagningar ljósleiðara.
Erindið var lagt fram. Þar er farið fram á stuðning vegna lagningar ljósleiðara í Gullkistuna á Laugarvatni.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið um 250.000 kr. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

13.Samningur um leigu á herbergi að Lindarbraut 4

2109024

Erindi Háskóla Íslands, dags. 11.02.2026, þar sem sagt er upp samningi um leigu á rými að Lindarbraut 4, Laugarvatni (81 ferm herbergi).
Lagt fram til kynningar.

14.Áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað

2602013

Erindi Vinnueftirlits ríkisins, dags. 10.02.2026, varðandi áætlanir um öryggi og heilbrigði á vinnustað.
Erindið er lagt fram. Sveitarstjóra er falið að fylgja því eftir.

15.Samþykkt um hundahald

2505015

Samþykkt um hundahald í Bláskógabyggð, síðari umræða.
Sveitarstjórn staðfestir samþykktina.

16.Lóðarumsókn Holtagata 2, Laugarási

2602017

Umsókn Noverk ehf, dags. 09.02.2026, um lóðina Holtagötu 2, Laugarási.
Umsóknin var lögð fram. Óskað er eftir úthlutun á lóðinni að Holtagötu 2 og að hún verði nýtt sem bílastæði fyrir baðlónið í Laugarási. Bílastæðið gæti einnig nýst gestum slakka og leiksvæðisins við Skálholtsveg.
Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til Norverks ehf og felur sveitarstjóra að gera samning það að lútandi og leggja fyrir sveitarstjórn.
Fylgiskjöl:

17.Lóðarumsókn Langholtsvegur 4, Laugarási

2411030

Umsókn Ragnars Sverrissonar Melsted um lóðina Langholtsveg 4, Laugarási
Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til framkvæmda- og veitunefndar.
Fylgiskjöl:

18.Þjóðlenda Geldingafell 2 til úthlutunar

2602021

Tillaga um auglýsingu vegna úthlutunar
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa Geldingafell 2 ásamt lóð á Langjökli til úthlutunar.

19.Þjóðlenda Geldingafell 1 til úthlutunar

2602020

Tillaga um auglýsingu vegna úthlutunar
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að auglýsa Geldingafell 1 ásamt lóð á Langjökli til úthlutunar.

20.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl

2509014

Erindi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands, dags. 21.01.2026, þar sem vakin er athygli á því að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum er komið til umsagnar.

Umsagnarfrestur er til 17. febrúar n.k.

Áður á dagskrá á 403. fundi.
Efrtirfarandi umsögn hefur verið skilað inn á Samráðsgátt stjórnvalda:
Af hálfu Bláskógabyggðar er lagst eindregið gegn þeim breytingum sem boðaðar eru í frumvarpsdrögum. Tekið er undir ítarlegar umsagnir byggðaráðs Skagafjarðar og Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi. Breytingarnar eru illa ígrundaðar, rökstuðning skortir og margvísleg áhrif breytinganna eru óljós og líkleg til að leiða til kostnaðarauka fyrir eftirlitsskylda aðila og sveitarfélögin í landinu. Mælst er til þess að frumvarpsdrögin verði dregin til baka og málið unnið faglega í samráði við sveitarfélögin.

21.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl

2509014

Glærukynningar Sambands íslenskra sveitarfélaga, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og atvinnuvegaráðuneytisins og tölvupóstur framkvæmdastjóra HES, dags. 06.02.2026, vegna áformaðra breytinga.
Lagt fram til kynningar.

22.Aðalskipulag Hrunamannahrepps

2602010

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 12.02.2026, beiðni um umsögn, Kjóabyggð/Álftabyggð F9; Úr frístundabyggð í íbúðabyggð; Aðalskipulagsbreyting - 2503056, nr. 0502/2025.
Erindið var lagt fram.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við tillöguna.

23.Aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps

2510008

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 05.02.2026, þar sem óskað er umsagnar um aðalskipulagsbreytingu, Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting - 2509014, nr. 1397/2025: Kynning tillögu á vinnslustigi (Breyting á aðalskipulagi)
Erindið var lagt fram.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við tillöguna.

24.Hverabraut 16-18, sýn nemenda Bláskógaskóla

2602018

Bréf nemenda á unglingastigi Bláskógaskóla, Laugarvatni, vegna Hverabrautar 16-18, ódags., en móttekið 06.02.2026.
Bréfið var lagt fram. Sveitarstjórn þakkar nemendum unglingastigs fyrir erindið.

25.Kæra vegna synjunar um byggingarheimild við sumarhúsið Heiðarbæ

2512013

Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 10.02.2026, í máli nefndarinnar nr. UUA2511058.
Úrskurðurinn var lagður fram. Þar er staðfest ákvörðun byggingarfulltrúa um að synja umsókn um byggingarheimild vegna viðbyggingar við sumarhús í landi Heiðarbæjar í Þingvallasveit.

27.Átak um styrkingu lýðræðis á sveitarstjórnarstiginu

2602019

Erindi Samband íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.02.2026, varðandi átak, sem það hefur, ásamt innviðaráðuneytinu, sett í loftið og miðar að því að styrkja lýðræðið á sveitarstjórnarstigi.
Erindið var lagt fram.

28.Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga 2026

2602022

Tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 03.02.2026, varðandi landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldið verður á Akureyri dagana 23. til 25. september.
Lagt fram til kynningar.

29.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf 2026

2602011

Erindi Lánasjóðs sveitarfélaga, dags. 12.02.2026, þar sem auglýst er eftir fulltrúum í stjórn sjóðsins.
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 10:53.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?