Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
320. fundur haldinn 25.02.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 3-6.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
75. fundur haldinn 20.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
3.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
76. fundur haldinn 27.02.2026, afgreiða þarf sérstaklega báða liði fundargerðarinnar.
-liður 1, ráðning veitustjóra 260149, tillaga framkvæmda- og veitunefndar um að Ólafi Jósef Ólafssyni verði boðin staða veitustjóra. Sveitarstjóri fór yfir ráðningarferilinn. Staðan var auglýst í febrúar. Sjö umsóknir bárust um starfið og var fimm umsækjendum boðið í viðtal. Tvær umsóknir voru dregnar til baka. Viðtöl önnuðust Kristófer A. Tómasson, sviðsstjóri, Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri og Geirlaug Jóhannsdóttir, frá Hagvangi. Benedikt Skúlason, veitustjóri, tók þátt í seinni umferð viðtala sem tveir umsækjenda mættu í. Yfirlit sveitarstjóra varðandi ferilinn og hæfni umsækjenda fylgdi gögnum málsins, ásamt umsóknum og gögnum um viðtöl og umsagnir. Sveitarstjórn fór vandlega yfir fyrirliggjandi gögn. Sveitarstjóri fór yfir ráðningarferlið, viðtöl, yfirferð gagna og könnun umsagna og þar með almenna hæfni umsækjenda til að gegna stöðunni. Eftir að hafa metið ítarlega fyrirliggjandi gögn er það niðurstaða sveitarstjórnar að samþykkja samhljóða tillögu framkvæmda- og veitunefndar um að Ólafi Jósef Ólafssyni verði boðið starf veitustjóra.
-liður 2, starfsmannahald Bláskógaveitu, 2602045, tillaga framkvæmda- og veitunefndar um að bætt verði við einu stöðugildi í Bláskógaveitu, þannig að starfsmenn verði þrír. Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmda- og veitunefndar samhljóða. Gert er ráð fyrir kostnaði í viðauka við fjárhagsáætlun sem liggur fyrir fundinum, sjá lið 24.
-liður 2, starfsmannahald Bláskógaveitu, 2602045, tillaga framkvæmda- og veitunefndar um að bætt verði við einu stöðugildi í Bláskógaveitu, þannig að starfsmenn verði þrír. Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmda- og veitunefndar samhljóða. Gert er ráð fyrir kostnaði í viðauka við fjárhagsáætlun sem liggur fyrir fundinum, sjá lið 24.
4.Fundargerð afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
244. fundur haldinn 18.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
5.Fundargerð stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)
2602043
133. fundur haldinn 14.01.2026. Afgreiða þarf sérstaklega lið nr. 2.
-liður 2, merkjalýsingar og lóðamál. Tillaga stjórnar UTU til aðildarsveitarfélaga UTU um að skipulagsfulltrúi UTU fái umboð til að undirrita, fullgilda og ljúka við alla nauðsynlega skjalagerð í tengslum við merkjalýsingar þar sem aðildarsveitarfélögin eru landeigendur. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að veita Sigríði Kristjánsdóttur, skipulagsfulltrúa, umboð til að undirrita, fullgilda og ljúka við alla nauðsynlega skjalagerð í tengslum við merkjalýsingar þar sem Bláskógabyggð er landeigandi.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
6.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings
2601033
Fundur haldinn 11.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
7.Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
2501069
88. fundur haldinn 17.10.2025
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
2602034
89. fundur haldinn 09.01.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
2601026
633. fundur haldinn 06.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands
2601058
252. fundur haldinn 24.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
11.Mannvirki að Laugargerði, plastmengun og fok
2411027
Fundur með fulltrúum ÍslenzkAsíska ehf
Sara og Freyja Gunnarsdætur komu inn á fundinn, ásamt Halldóri Brynjari Halldórssyni, lögmanni. Kynntu Sara og Freyja hugmyndir sínar um uppbyggingu á lóðinni og Halldór Brynjar fór yfir sjónarmið um gildi lóðarleigusamnings.
12.Hrísholt 3a, Laugarvatni, sala
2601015
Kauptilboð í fasteignina Hrísholt 3a, Laugarvatni
Fyrir liggur kauptilboð í fasteignina Hrísholt 3a, Laugarvatni, að fjárhæð kr. 44.500.000. Sveitarstjórn samþykkir töku tilboðsins.
13.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2022-2026
2205038
Kosning eins fulltrúa í yfirkjörstjórn
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að kjósa Evu Hálfdanardóttur til setu í yfirkjörstjórn, en Eva var áður varamaður í yfirkjörstjórn. Kristófer A. Tómasson, sem var aðalmaður í yfirkjörstjórn, verði varamaður.
Hildur Hálfdanardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Hildur Hálfdanardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
14.Aðalfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf 2026
2602011
Boð á aðalfund Lánasjóðs sveitarfélaga 2026
Fundarboðið var lagt fram. Sveitarstjórn tilnefnir Helga Kjartansson, oddvita, sem fulltrúa á aðalfundinn.
15.Læsisstefna Bláskógabyggðar
2602003
Skipan vinnuhóps vegna endurnýjunar á læsisstefnu Bláskógabyggðar.
Sveitarstjórn tilnefnir Ástu Kristjönu Guðjónsdóttur og Ólöfu Sólveigu Björnsdóttur til setu í vinnuhópnum. Skólastjóri Bláskógaskóla tilnefnir fulltrúa skólans til setu í hópnum.
Ásta Kristjana kalli hópinn saman til fundar.
Ásta Kristjana kalli hópinn saman til fundar.
16.Víkingurinn 2026
2602033
Erindi Magnúsar Vers Magnússonar, dags. 24.02.2026, varðandi keppnina Víkinginn 2026.
Erindið var lagt fram.
17.Uppsveitakastið styrkbeiðni
2603006
Beiðni Jónasar Yngva Ásgrímssonar, mótt 17.02.2026, um samstarf vegna kosningaumfjöllunar í Uppsveitakastinu.
Erindið var lagt fram. Óskað er eftir að veittur verði fjárstyrkur til að standa straum af kostnaði. Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið um 100.000 kr. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
18.Styrkumsókn vegna fasteignagjalda af hvíldarheimili Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna 2026
2603001
Erindi framkvæmdastjóra Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna, dags. 27.02.2026, þar sem þess er farið á leit að fasteignagjöld af fasteign félagsins við Dynjandisveg 28, fastanr. 236-7772, fyrir árið 2026 verði felld niður eða lækkuð, sbr. 2. mgr. 5. gr. laga nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.
Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að afgreiða erindið í samræmi við reglur sveitarfélagsins.
19.Styrkumsókn vegna veghalds að frístundabyggð í Helludal
2602035
Umsókn Helludalsfélagsins, dags. 12.02.2026, þar sem óskað er eftir samstarfi um vegabætur á aðkomuvegum að sumarbústöðum í Helludal.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að verða við erindinu, en bendir umsækjanda á að sækja um styrk samkvæmt reglum um styrki til veghalds í frístundabyggðum.
20.Gatnagerð Kotstún
2601045
Yfirferð tilboða í verkið gatnagerð Kotstún/Fálkamýri.
Tilboð í gatnagerð Kotstún/Fálkamýri á Laugarvatni hafa verið yfirfarin og er tilboð lægstbjóðanda, Íshnits ehf gilt. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboðinu.
Stefanía Hákonardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Stefanía Hákonardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins.
21.Gatnagerð Fálkamýri
2601046
Yfirferð tilboða í verkið Kotstún/Fálkamýri, gatnagerð.
Sjá lið 20 á dagskrá fundarins.
22.Skil á lóð Tungurimi 14, Reykholti
2501031
Beiðni Silvia Popescue, dags. 20.02.2026, um heimild til að skila lóðinni Tungurima 14, Reykholti.
Sveitarstjórn samþykkir að lóðinni verði skilað. Sveitarstjóra er falið að auglýsa hana lausa til úthlutunar á ný.
23.Kaup á jörðinni Laugarási
2603003
Kaupsamningur milli Bláskógabyggðar, annars vegar, og Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gúpverjahrepps, hins vegar, um jörðina Laugarás.
Drög að kaupsamningi eru lögð fram, þar sem Bláskógabyggð kaupir eignarhlut Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps í jörðinni Laugarási og hlunnindum sem jörðinni fylgja. Lóðarleigusamningar um lóðir úr landi Laugaráss halda gildi sínu. Matsverð jarðarinnar er 280.000.000 kr og greiðir Bláskógabyggð samtals 187.040.000 kr fyrir hlut hinna sveitarfélaganna.
Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur Helga Kjartanssyni, oddvita, að undirrita hann og önnur gögn tengd sölunni. Gert er ráð fyrir kostnaði við kaupin í viðauka við fjárhagsáætlun sem liggur fyrir fundinum, sjá 24. lið.
Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða og felur Helga Kjartanssyni, oddvita, að undirrita hann og önnur gögn tengd sölunni. Gert er ráð fyrir kostnaði við kaupin í viðauka við fjárhagsáætlun sem liggur fyrir fundinum, sjá 24. lið.
24.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026
2603004
Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
Lagður var fram viðauki við fjárhagsáætlun. Áhrif viðauka eru þau að rekstrarniðurstaða samstæðu breytist þannig að afgangur af rekstri lækkar um 8,4 millj.kr. Fjárfestingar hækka um 187.040.000 kr og er mætt með lántöku, 190.000.000 kr og lækkun á handbæru fé um 5.440.000 kr.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
25.Útsvarstekjur 2026
2603005
Yfirlit yfir útsvarstekjur janúar til febrúar 2026
Lagt var fram yfirlit yfir útsvarstekjur ársins 2026.
26.Nýtingarhlutfall frístundalóða
2603007
Erindi Jóns Sigurðssonar, dags. 16.02.2026, þar sem óskað er eftir hækkun á nýtingarhlutfalli frístundahúsalóða.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir að vísa málinu til næstu endurskoðunar aðalskipulags, þar sem um stefnumarkandi ákvörðun væri að ræða.
27.Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)
2505026
Drög að frumvarpi til laga um rýmiseignir og afnám undanþágu orkumannvirkja frá fasteignamati. Mál nr S-51/2026 í Samráðsgátt. https://island.is/samradsgatt/mal/4198.
Umsagnarfrestur er til 6. mars 2026.
Umsagnarfrestur er til 6. mars 2026.
Umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga er lögð fram, ásamt frumvarpsdrögunum.
28.Nýsköpunarstefna fyrir Suðurland
2601014
Kynning SASS, dags. 11.02.2026, á fyrirhugaðri hátíð nýsköpunar og atvinnulífs.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 10:40.
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting, eftir auglýsingu, sem tekur til menntaskólalóðar, L224243 vegna skilgreiningar á nýju iðnaðarsvæði.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 4, Tungurimi 27 L238278, Reykholt; Hreinsistöð og nýting jarðhita; deiliskipulagsbreyting - 2506026
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til þéttbýlisins í Reykholti. Suðaustan við íbúðarbyggðina við Tungurima hefur verið reist hreinsistöð fyrir fráveitu og borað eftir heitu vatni. Sveitarfélagið hyggst nýta vatnið fyrir ört stækkandi byggð í Reykholti og mögulega bora fleiri holur í framtíðinni ef þörf verður á meira af heitu vatni. Í breyttu deiliskipulagi er núverandi lóð fyrir hreinsivirkið stækkuð og heimilað að nýta jarðhita innan hennar og vera með þau mannvirki sem þarf í tengslum við þá vinnslu. Umsagnir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 5, Fell L177478; Borholur neysluvatns; Framkvæmdarleyfi - 2602058
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til hluta jarðarinnar Fells, L177478, í Bláskógabyggð. Framkvæmdin felur í sér að bora rannsóknarholur eftir neysluvatni.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.
-liður 6, Lækjarbraut 3 L167474; Ósk um undanþágu; Fyrirspurn - 2602070
Lögð er fram umsókn er varðar Lækjarbraut 3, L167474. Í umsókninni er óskað eftir undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna fyrirhugaðrar viðbyggingar við núverandi frístundahús á lóðinni. Fyrirhugað er að reisa viðbyggingu við núverandi hús, sem mun ekki færa bygginguna nær vatni en núverandi bygging stendur. Lóðin er innan gildandi deiliskipulags, þar sem byggingarreitur er skilgreindur utan 50 m markalínu frá vatnsbakka, en núverandi hús stendur innan þeirrar fjarlægðar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggð hafnar erindinu þar sem að deiliskipulag fyrir svæðið er í vinnslu.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.