Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

406. fundur 18. mars 2026 kl. 09:00 - 11:10 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Björgvin Guðmundsson
Fundargerð ritaði: Björgvin Guðmundsson fjármálastjóri
Dagskrá
Leitað var afbrigða til að taka á dagskrá veitingu umboðs til fjármálastjóra vegna sölu á Hrisholti 3a, Laugarvatni. Var það samþykkt samhljóða og verður mál nr. 18 á dagskrá fundarins.

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

321. fundur haldinn 11.03.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1 til 4.
-liður 1. Háabrekka (L240982); byggingarleyfi; einbýlishús - 2602086
Móttekin var umsókn þann 27.02.2026 um byggingarleyfi fyrir 256,6 m2 einbýlishúsi á landinu Háabrekka (L240982) í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna útgáfu framkvæmda- eða byggingarleyfis þar sem segir að sveitarstjórn sé heimilað að vikið sé frá kröfum 2. mgr. um breytingu á deiliskipulagi og grenndarkynningu þegar um svo óveruleg frávik er að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.



-liður 2. Laugarás Lagoon; Vatnstökubrunnar; Framkvæmdarleyfi - 2603037
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Laugarás Lagoon í Bláskógabyggð. Sótt er um leyfi til að setja niður tvo vatnstökubrunna á eyrinni fyrir neðan Laugarás Lagoon. Vatninu verður síðan dælt inn í tæknirými lónsins þar sem það blandast heita vatninu frá Bláskógaveitu. Blandaða vatnið er síðan nýtt til að fylla baðlónið. Magn vatnstöku er að hámarki 15 l/s.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir umræddar framkvæmdir sem landeigandi og jafnframt útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.



-liður 3. Skálabrekka L170163; Aðkomuvegur, vatnsból; Gisting í Fl. I og II; Deiliskipulagsbreyting - 2602022
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til frístundabyggðarinnar Selgils í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýjum aðkomuvegi og vatnstökusvæði. Jafnframt verður heimiluð gisting í flokki I og II innan frístundabyggðarinnar. Með þessum breytingum stækkar deiliskipulagssvæðið úr 25 ha í 30 ha, eða um 5 ha.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins með fyrirvara um uppfærð gögn. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Samantekt um afgreiðslur byggingarfulltrúa

2601005

245. fundur haldinn 04.03.2026
Lagt fram til kynningar. Liðir 14 til 19 eru sérstök mál á dagskrá þessa fundar, sjá liði nr. 19-25.

3.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

2602015

216. fundur haldinn 26.02.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

4.Fundargerð Hagsmunafélags Laugaráss

2603014

Fundur haldinn 26.02.2026.
-liður 1, lóðin Laugargerði, liður 2, vegaframkvæmdir á Holtagötu, og 4, skurðir í Laugarási, sveitarstjóra er falið að svara fyrirspurnunum.
-liður 3, ástand Skálholtsvegar og hraðakstur með vaxandi umferð. Sveitarstjórn beinir því til Vegagerðarinnar að ráðast í viðgerðir á Skálholtsvegi og að gera ráðstafanir til að draga úr umferðarhraða í gegnum þorpið, svo sem með bættum merkingum.

5.Fundargerð öldungaráðs Uppsveita og Flóa

2501009

5. fundur haldinn 22.10.2025
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

6.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2601056

994. fundur frá 03.03.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

7.Verkefni starfsmanns á sviði úrgangsmála

2603038

Árni Magnússon, starfsmaður SASS, kynnir verkefni sín.
Árni Magnússon, sem nýlega hefur tekið við starfi hjá SASS vegna úrgangsmála, kom inn á fundinn undir þessum lið og kynnti þau verkefni sem hann mun vinna að og svaraði spurningum fundarmanna.

8.Bláskógaskóli Laugarvatni, Álfaborg, fyrirkomulag stjórnunar

2601067

Tillaga vegna stjórnendareymis leikskóla. Ráðning aðstoðarleikskólastjóra að leikskóladeild á Laugarvatni.
Lieselot M. Simoen, leikskólastjóri, kom inn á fundinn undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að staða aðstoðarleikskólastjóra á Laugarvatni verði auglýst laus til umsóknar.

9.Ráðning skólastjóra Bláskógaskóla

2602029

Tillaga um ráðningu skólastjóra Bláskógaskóla
Minnisblað sveitarstjóra var lagt fram. Sveitarstjórn hefur kynnt sér efni minnisblaðsins og gögn sem fylgdu umsókn umsækjanda. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að ráða Guðrúnu Rakel Svandísardóttur sem skólastjóra Bláskógaskóla á Laugarvatni.
Fylgiskjöl:

10.Ráðning aðstoðarskólastjóra Bláskógaskóla

2603021

Tillaga um að heimilað verði að auglýsa stöðu aðstoðarskólastjóra Bláskógaskóla.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að staða aðstoðarskólastjóra Bláskógaskóla á Laugarvatni verði auglýst laus til umsóknar.
Fylgiskjöl:

11.Gullspretturinn 2026

2603022

Erindi björgunarsveitarinnar Ingunnar, dags. 03.03.2026, þar sem óskað er eftir leyfi til að nýta íþróttahúsið og aðstöðu með sama máta og síðustu ár og heimild til að hefja og enda hlaupið við hverinn.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða erindi björgunarsveitarinnar um aðstöðu vegna Gullsprettsins 2026, sem fram fer laugardaginn 13. júní nk og aðgengi að íþróttamannvirkjum fyrir þátttakendur. Jafnframt samþykkir sveitarstjórn beðni um að viðburðurinn hefjist og honum ljúki við hverinn.
Fylgiskjöl:

12.Göngu- og hjólastígar

2603024

Tillaga Hildar Hálfdanardóttur, dags. 02.03.2026, um að fjárfest verði í göngu- og hjólastígum í Bláskógabyggð.

Erindi frá Ellisif M. Bjarnadóttur, dags. 02.03.2026, varðandi göngu- og hjólastíga.
Tillaga Hildar og erindi Ellisifjar, sem varða göngu- og hjólastíga í Bláskógabyggð voru lögð fram.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa málinu til endurskoðunar aðalskipulags og til skoðunar í framkvæmda- og veitunefnd vegna fjárhagsáætlunargerðar.

13.Lóðin Traustatún 13, Laugarvatni

2601042

Beiðni um heimild til að skila lóðinni Traustatúni 13, Laugarvatni.
Sveitarstjórn samþykkir að lóðinni verði skilað.

14.ACCELERATE samstarfsverkefni um loftslagsaðlögun

2603025

Kynning á verkefninu og tillaga um að Bláskógabyggð taki þátt ásamt SASS og Orkídeu.
Erindi SASS var lagt fram. Oddviti gerði grein fyrir verkefninu og hvernig það getur nýst Bláskógabyggð. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að taka þátt í verkefninu. Ekki er gert ráð fyrir að kostnaður falli á sveitarfélagið vegna verkefnisins og þátttöku í því.

15.Hlutafé í Gufu Laugavatn Fontana ehf

2603012

Boð Gufu ehf, dags. 09.03.2026, þar sem hluthöfum félagsins er gefinn kostur á að skrá sig fyrir lánveitingu til félagsins gegn afhendingu skuldabréfs sem veitir einhliða rétt til þess að breyta höfuðstól krafna á þeim grundvelli á hendur félaginu í hluti í því, sbr. 1. mgr. 31. gr. laga nr. 138/1994, innan eða í lok lánstíma.
Erindið var lagt fram.

16.Þjóðlenda Geldingafell 1 til úthlutunar

2602020

Listi yfir umsóknir um lóðina Geldingafell 1 og Suðurjökull íshellir 2.
Lóðirnar hafa verið auglýstar til umsóknar. Sveitarstjóra er falið að taka viðtöl við umsækjendur og vinna úr umsóknunum.

17.Þjóðlenda Geldingafell 2 til úthlutunar

2602021

Listi yfir umsóknir um lóðina Geldingafell 2 og lóð fyrir íshelli (íshellir Sðurjökull).
Lóðirnar hafa verið auglýstar til umsóknar. Sveitarstjóra er falið að taka viðtöl við umsækjendur og vinna úr umsóknunum.

18.Hrísholt 3a, Laugarvatni, sala

2601015

Sala á Hrísholti 3a, Laugarvatni, veiting umboðs
Sala á Hrísholti 3a, Laugarvatni, veiting umboðs til fjármálastjóra Björgvins Guðmundssonar, kt. 291270-3369, til að ganga frá sölu á fasteigninni Hrísholti 3a, Laugarvatni.
Samþykkt samhljóða.

19.Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).

2505027

Erindi nefnda- og greiningarsviðs Alþingis, dags. 06.03.2026, þar sem frumvarp til sveitarstjórnarlaga, 505. mál, er sent til umsagnar.

Erindi Innviðaráðuneytisins, dags. 11.03.2025, vegna sama máls.

Frestur til að skila umsögn um frumvarpið er til 20. mars nk.
Lagt fram til kynningar.

20.Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum ofl 499. mál

2603013

Erindi nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 5. mars 2026, þar sem sent er til umsagnar 499. mál varnir gegn sjóflóðum og skriðuföllum og Vegagerðin, framkvæmdastofnun samgöngumála (markmið nýting eigna, framkvæmdaumsjón)

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 19. mars nk.
Lagt fram til kynningar.

21.Rekstrarleyfisumsókn Prestabraut 6 L236403

2603017

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 27.11.2025, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður og rýmisnúmer 02 0101 gestahús frá Ara Sigurðssyni fyrir hönd Eignir og umsýsla ehf., kt. 510313 - 0460 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 6 (F252 9098) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

22.Rekstrarleyfisumsókn Prestabraut 8 L236404

2603016

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 27.11.2025, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður og rýmisnúmer 02 0101 gestahús frá Ara Sigurðssyni fyrir hönd Eignir og umsýsla ehf., kt. 510313 - 0460 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 8 (F252 9099) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

23.Rekstrarleyfisumsókn Prestabraut 10 L236405

2603015

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 27.11.2025 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður og rýmisnúmer 02 0101 gestahús

frá Ara Sigurðssyni fyrir hönd Eignir og umsýsla ehf., kt. 510313 - 0460 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 10 (F252 9095) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

24.Rekstrarleyfisumsókn Litlanefsgata 7 L167861

2603018

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 20.02.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Jonathan G. Pedersen fyrir hönd Smørre Studio ehf., kt. 710806 - 0390 á sumarbústaðalandinu Litlanefsgata 7 (F220 6120) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn leggst gegn útgáfu rekstrarleyfis á grundvelli laga nr. 85/2007 í flokki II þar sem leyfisveiting samræmist ekki stefnu gildandi skipulags.

25.Rekstrarleyfisumsókn Fellsendi L170155

2603019

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 20.02.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 12 0101 gistitjald frá Berglindi Júlíusdóttur fyrir hönd Hexagon ehf., kt. 610318 - 0290 á jörðinni Fellsendi (F220 8751) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

26.Rekstrarleyfisumsókn Akur L167144

2603020

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 06.02.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 05 0101 íbúð frá Pétri H. Loftssyni fyrir hönd Nord ehf. kt. 570418-1300 á jörðinni Akur (F220 4923) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

27.Mannvirki að Laugargerði, lóð Laugargerðis

2411027

Gögn frá fulltrúum Asiaco. Íslenzk Asízka ehf vegna Laugargerðis. Send í framhaldi af fundi með sveitarstjórn 04.03.2026.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 11:10.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?