Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

407. fundur 01. apríl 2026 kl. 09:00 - 10:20 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
  • Björgvin Guðmundsson
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Leitað var afbrigða til að taka á dagskrá eftirtalin mál:
Skipan fulltrúa á aðalfundi Byggðasafns, Listasafns og Héraðsskjalasafns Árnesinga.
Tilkynningu um afgreiðslu á umsókn um dagdvalarrými.
Kærumál vegna deiliskipulags, var til kynningar á síðasta fundi.
Umsagnarbeiðni vegna breytinga á heilbrigðiseftirliti Ársreikningur Hmf. Jökuls.
Var það samþykkt samhljóða og verða liðir nr. 16, 18, 20, 29 og 39.

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

318. fundur skipulagsnefndar haldinn 28.01.2026, liður 11 Reykjabraut 1 L192616; Breyttur byggingarreitur; Deiliskipulagsbreyting 2601040. Áður frestað á 403. fundi sveitarstjórnar.
-liður 11, Reykjabraut 1 L192616; Breyttur byggingarreitur; Deiliskipulagsbreyting 2601040
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Reykjabrautar 1 L192616 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur færist nær gangstétt um 3 m.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að fresta afgreiðslu málsins.

2.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

322. fundur haldinn 25.03.2026. Afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 4 til 30.
-liður 4. Einiholt 2 L180525; Skilgreining svæðis, íbúðar- og atvinnuhús; Deiliskipulag - 2512017
Lögð er fram deiliskipulagstillaga, eftir kynningu skipulagslýsingar, fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjatorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagstillöguna til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



-liður 5. Bergsstaðir lóð 2 L200941; Úr sumarhúsalóð í verslunar- og þjónustulóð; Aðalskipulagsbreyting - 2412011
Lögð er fram tillaga, eftir auglýsingu, sem tekur til breytinga á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Svæðið sem breytingin nær til er Bergsstaðir lóð 2 L200941 sem er hluti af frístundabyggðinni Bergsstaðir (F84). Með breytingunni er lóðinni breytt í verslunar- og þjónustusvæði þar sem landeigendur áforma að bjóða upp á gistiþjónustu. Heildarstærð frístundabyggðarinnar (F84) er 55 ha sem minnkar sem nemur lóðarstærðinni og lóðin skilgreind sem nýtt verslunar- og þjónustusvæði. Skipulagssvæðið/lóðin er skráð 12.400 m2 og á henni stendur 65 m2 sumarhús. Umsagnir og athugasemdir bárust við auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir breytingu á aðalskipulagi eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við þeim athugasemdum sem bárust á auglýsingatíma skipulagsbreytingarinnar með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn óskar eftir því við Skipulagsstofnun að aðalskipulagsbreytingin taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 3. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



-liður 6. Efsti-Dalur 3 L199008; Bæjargilsvegur 63 og 65; Stofnun lóða - 2602074
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 23.02.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun nýrra landeigna. Óskað er eftir að stofna tvær nýjar lóðir, Bæjargilsveg 63, stærð: 2.982 m² og Bæjargilsveg 65, stærð: 3.653 m², úr jörðinni Efsti-dalur 3 L199008. Deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 22. apríl 2002. Við skoðun á hnitum deiliskipulags sem fylgja uppdrætti kemur í ljós að hnit eru hliðruð sem nemur 6 metrum, til að taka af allan vafa er ný hnitaskrá fyrir svæðið sett fram hér í þessari merkjalýsingu sem byggir á grunni deiliskipulags sem unnið var af Landform landslagsarkitektum. Samhliða þessu er merkjum fyrir sjö stofnaðar lóðum lýst, lóðum sem eru þegar stofnaðar í fasteignaskrá, en þeim hefur ekki verið lýst fyrir landeignaskrá, stærð þeirra breytist ekki, en staðföng þeirra eru uppfærð samkvæmt deiliskipulagi. Hnit og afmörkun fyrir aðrar óstofnaðar lóðir í deiliskipulaginu eru einnig sett fram til leiðréttingar á hnitum, en ekki kemur til stofnun þeirra að sinni.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðanna skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 7. Hrísholt L167079; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603017
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Hrísholts, L167079. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 35.381 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 8. Bergholt L220717; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603018
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Bergholts L220717. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 5.701 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.

-liður 9. Drumboddsstaðir 1 L167076; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603019
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Drumboddsstaða 1 L167076. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 15.618 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 10. Dyngja minjasvæði L224416; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603020
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Dyngju minjasvæði L224416. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 4.364 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 11. Einiholt 1 land 1 L217088; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603021
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Einiholts 1 land 1 L217088. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 2.588 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 12. Einiholt 1 land 3 L224489; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603022
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Einiholts 1 land 3 L224489. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 1.938 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 13. Einiholt 1 L167081; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603023
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Einiholts 1 L167081. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 34.701 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 14. Einiholt 2 L180525; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603024
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Einiholts 2 L180525. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 48.233 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 15. Einiholtsás L222246; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603025
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Einiholtsáss L222246. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 103 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 16. Gýgjarhólskot 2 L167095; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603026
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Gýgjarhólskots 2 L167095. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 33.395 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.

-liður 17. Kaplaholt L222247; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603027
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Kaplaholts L222247. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 15.035 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 18. Kistutjarnir L222245; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603028
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Kistutjarna L222245. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 3.578 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 19. Markholt L218923; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603029
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Markholts L218923. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 149 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 20. Melur L224158; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603030
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Mela L224158. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 2.662 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 21. Sandamýri L223807; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603031
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Sandamýrar L223807. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 5.373 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 22. Vörðuholt L220716; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603032
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Vörðuholts L220716. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 5.483 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 23. Vörðuhóll L218287; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603033
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Vörðuhóls L218287. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 5.609 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 24. Ás L222396; Vegsvæði Einholtsvegar 358-02; Stofnun lóðar - 2603039
Lögð er fram umsókn ásamt undirritaðri merkjalýsingu dags. 07.07.2025, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðar. Óskað er eftir að stofna lóð undir vegsvæði Einholtsvegar (358-02) úr landi Áss L222396. Vegasvæðið sem lýst er með merkjalýsingu er 8.731 m2 að stærð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við stofnun lóðarinnar skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.



-liður 25. Græntóftagata 4 L178418; Gisting í Fl II; Deiliskipulagsbreyting - 2603050
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Græntóftagötu 4 L178418. Breytingin felur í sér að heimilt verði að reka gististað í flokki 2, gististað án veitinga, á lóðinni. Meðfylgjandi er samþykki allra aðliggjandi eigna.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingar á deiliskipulagi svæðisins á grundvelli stefnumörkunar aðalskipulags Bláskógabyggðar gr. 2.3.2. er varðar frístundabyggðir. Þar sem segir m.a. að heimilt sé að leigja út frístundahús í samræmi við reglugerð nr. 1277/2016 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Málið verði grenndarkynnt eigendum lóða innan svæðisins F39 og fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi, ef engar athugasemdir berast á grenndarkynningartíma.



-liður 26. V-Gata 32 L170753; Rekstrarleyfi Fl. II; Fyrirspurn - 2603065
Lögð er fram fyrirspurn er varðar V-Götu 32 L170753 í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni er óskað eftir áliti á því hvort útgáfa gistileyfis í flokki II fyrir fasteignina kæmi til greina. Um væri að ræða hóflega nýtingu með það að markmiði að lágmarka áhrif á nágrenni. Húsnæðið hefur áður verið nýtt að einhverju leyti til útleigu til ferðamanna frá árinu 1992 og má því ætla að slík notkun sé ekki með öllu óþekkt á svæðinu. Sett yrðu skýr skilyrði fyrir gesti um að virða ró og frið nágranna og halda umferð og umgengni í hófi.
Sveitarstjórn bendir á að þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu liggja ekki fyrir heimildir fyrir gististarfsemi í flokki II. Til að slíkt kæmi til greina þyrfti að vinna deiliskipulag fyrir svæðið þar sem skilmálar um gististarfsemi yrðu settir.



-liður 27. Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps 2024-2036; Umsagnarbeiðni - 2603042
Lögð er fram til umsagnar tillaga til auglýsingar sem tekur til endurskoðunar á aðalskipulagi Kjósarhrepps.
Sjá 25. lið á dagskrá sveitarstjórnar.



-liður 28. Biskupstungnabraut (35-08) um Geysissvæðið; Umsagnarbeiðni - 2603051
Lögð er fram til umsagnar fyrirhugaða vega- og brúarframkvæmd á rúmlega 5 km löngum kafla Biskupstungnabrautar (35) í Bláskógabyggð. Um er að ræða færslu Biskupstungnabrautar (35) frá Geysissvæðinu, þannig að umferðin fari fram hjá svæðinu í stað þess að liggja í gegnum það. Í tengslum við færslu vegarins þarf að byggja nýja brú á Tungufljót.
Sjá 24. lið á dagskrá fundar sveitarstjórnar.



-liður 29. Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037; Umsagnarbeiðni - 2603071
Lögð er fram til umsagnar skipulagslýsing sem tekur til aðalskipulags Húnabyggðar 2025-2037. Verið er að sameina aðalskipulag fyrrum Blönduósbæjar, Húnavatnshrepps og Skagabyggðar í eitt aðalskipulag.
Sjá 26. lið á dagskrá fundar sveitarstjórnar.



-liður 30. Vegatunga; Efnistökusvæði E62; Umsagnarbeiðni - 2603072
Lögð er fram til umsagnar umsókn um starfsleyfi vegna mengandi starfsemi í landi Vegatungu. Svæðið er merkt E62 í aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2057. Óskað er eftir starfsleyfis til jarðgeringar á gróðurhúsaúrgangi úr þremur garðyrkjustöðvum í Reykholti, Friðheimum, Espiflöt og Gufuhlíð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við útgáfu starfsleyfisins.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

3.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar

2601002

77. fundur haldinn 30. mars 2026. Afgreiða þarf sérstaklega lið nr. 3.
-liður 3, 2411030 lóðarumsókn Langholtsvegur 4. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að lóðirnar Langholtsvegur 2 og 4 verði auglýstar til umsóknar, með fyrirvara þó um möguleika á afhendingu á vatni til stórfelldrar garðyrkju.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

4.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa

2601005

Samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa dags. 18.03.2026.

Samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa dags. 27.03.2026.
Liðir 14 og 15 í samantekt frá 27.03.2026 eru sérstakir liðir á dagskrá fundarins, sjá liði 22 og 23.
Lagt fram til kynningar.

5.Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga

2602034

90. fundur haldinn 28.01.2026
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerð stjórnar Arnardrangs hses

2602009

26. fundur haldinn 23.03.2026
Lagt fram til kynningar.

7.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2601056

995. fundur haldinn 10.03.2026

996. fundur haldinn 20.03.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

8.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601058

253. fundur haldinn 24.03.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

9.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga

2601057

Fundur haldinn 20.03.2026
-liður 2, útboð á þakviðgerð á húsnæði Listasafns Árnesinga. Lagt er til að aðildarsveitarfélög Listasafnsins leggi fé til framkvæmda við þakviðgerðir. Áætlaður kostnaður er kr. 11.000.000.
Gert er ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun Listasafns Árnesinga. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

10.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga

2601053

21. fundur haldinn 16.03.2026
Lagt fram til kynningar.

11.Lóðarumsókn Traustatún 13, Laugarvatni

2603042

Umsókn Rebekku Rutar Ingvarsdóttur um lóðina Traustatún 13, Laugarvatni.
Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar í samræmi við reglur sveitarfélagsins um lóðarúthlutun.

12.Brunavarnaáætlun 2026-2031

2603046

Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árin 2026-2031
Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu, sem var samþykkt af stjórn Brunavarna þann 20. mars 2026, var lögð fram.
Upplýsingar fyrir staðfestingu stafrænnar brunavarnaáætlunar:
Tímastimpill áætlunar: Auðkenni er: 09-03-2026 09:00
Nafn áætlunar: Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu
Gildistími áætlunar: Feb 2031
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða Brunavarnaáætlun Brunavarna Árnessýslu.

13.Styrkumsókn vegna námskeiðsins Leik og Sprell

2603048

Styrkumsókn Leiks og Sprells ehf, dags. 26.03.2026, vegna húsnæðiskostnaðar vegna námskeiðshalds á Laugarvatni.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn óskar eftir frekari upplýsingum.

14.Hrísholt 3a, Laugarvatni, sala

2601015

Sala á Hrísholti 3a, heimild til veðsetningar.
Kaupsamningur um fasteignina Hrísholt 3a, Laugarvatni, fastanúmer 225-2064, var lagður fram. Sveitarstjórn staðfestir samninginn samhljóða, þar á meðal heimild til handa kaupanda til að veðsetja fasteignina fyrir lánum frá Arionbanka að fjárhæð kr. 37.500.000 og felur Björgvin Guðmundssyni, fjármálastjóra, að undirrita samninginn vegna lántökuheimildarinnar, jafnframt því að hann undirritar samninginn f.h. seljanda, skv. áður gefnu umboði.

15.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2022-2026

2205038

Undirkjörstjórn, Laugardal, breyting á skipan og skipan tveggja varamanna.
Sveitarstjórn gerir eftirfarandi breytingar á skipan kjörstjórnar í Laugardal:
Ólöf Björg Einarsdóttir, verður formaður. Aðrir aðalmenn eru Kjartan Lárusson, sem var varamaður, og Björg Ingvarsdóttir.
Varamenn eru Margrét Þórarinsdóttir, Guðni Báruson og Ragnheiður Hilmarsdóttir.

16.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2022-2026

2205038

Skipan fulltrúa á aðalfund Byggðasafns Árnesinga bs, Listasafns Árnesinga bs og Héraðsskjalasafns Árnesinga bs. Tveir fulltrúar og tveir til vara.
Sveitarstjórn skipar eftirtalda aðila til setu á aðalfundi Byggðasafns Árnesinga bs:
Helga Kjartansson og Guðrúnu S. Magnúsdóttur, sem aðalmenn, og Svein Inga Sveinbjörnsson og Jón Forna Snæbjörnsson, sem varamenn.
Sveitarstjórn skipar eftirtalda aðila til setu á aðalfundi Listasafns Árnesinga bs:
Helga Kjartansson og Guðrúnu S. Magnúsdóttur, sem aðalmenn, og Svein Inga Sveinbjörnsson og Jón Forna Snæbjörnsson, sem varamenn.
Sveitarstjórn skipar eftirtalda aðila til setu á aðalfundi Héraðsskjalasafns Árnesinga bs:
Helga Kjartansson og Guðrúnu S. Magnúsdóttur, sem aðalmenn, og Svein Inga Sveinbjörnsson og Jón Forna Snæbjörnsson, sem varamenn.

17.Ærslabelgur á Laugarvatni

2511047

Uppsetning ærslabelgs á Laugarvatni
Umræða varð um málið. Sveitastjórn telur rétt að staðsetja ærslabelginn nærri skólasvæðinu.

18.Könnunin sveitarfélag ársins 2026

2603055

Boð Heklu, mannauðssjóðs, dags. 25.03.2026, um þátttöku í könnuninnni Sveitarfélag Ársins 2026.
Erindið var lagt fram.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að bjóða öllu starfsfólki sveitarfélagsins að taka þátt í könnuninni. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

19.Dagþjónusta fyrir eldri borgara

2506025

Tilkynning félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 30.03.2026, um samþykkir fyrir því að hefja samningaviðræður við Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp um rekstur átta almennra dagdvalarrýma í uppsveitum Árnessýslu.
Tilkynning félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 30.03.2026 um að samþykkt hafi verið að fela Sjúkratryggingum Íslands að hefja samningaviðræður við Bláskógabyggð, Grímsnes- og Grafningshrepp, Hrunamannahrepp og Skeiða- og Gnúpverjahrepp um sameiginlegan rekstur átta almennra dagdvalarrýma í uppsveitum Árnessýslu.
Sveitarstjórn fagnar því að umsókn sveitarfélaganna fjögurra um heimild til að reka dagdvalarrými hafi fengið jákvæða afgreiðslu. Brýn þörf er fyrir aukinni þjónustu við eldri borgara á svæðinu. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að taka þátt í samningaviðræðum við Sjúkatryggingar Íslands f.h. Bláskógabyggðar.

20.Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Heiðarbæjar, Þingvallasveit

2602014

Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Heiðarbæjar, Þingvallasveit. Tillaga um afturköllun auglýsingar.
Á 307. fundi sveitarstjórnar hinn 20. ágúst 2025 var tillaga deiliskipulags frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn samþykkt eftir auglýsingu. Sveitarstjórn taldi að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna og mælist til þess að deiliskipulagið tæki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Auglýsing vegna deiliskipulagsins var birt í B-deild Stjórnartíðinda hinn 6. janúar 2026.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir hér með að fella úr gildi auglýsingu nr. 1593/2025 um deiliskipulag í Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppi, sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda 6. janúar 2026, vegna formgalla á málsmeðferð.
Athugasemdir Skipulagsstofnunar verða teknar fyrir á næsta fundi sveitarstjórnar.

21.CanAM Iceland Hill Rally 2026

2510043

Erindi Lögreglustjórans á Suðurlandi, dags. 24.03.2026, þar sem óskað er eftir umsögn sem og eftir atvikum samþykkis sveitarstjórnar, sbr. 1. mgr. 39. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 vegna leyfis fyrir keppni í akstursíþróttum sem áætlað er að fari fram 6. til 8. ágúst 2026.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið, með fyrirvara um að samþykki hlutaðeigandi landeigenda liggi fyrir og um góðan frágang á svæðinu eftir keppnina, þannig að vegir sem nýttir verða verði ekki í lakara ástandi eftir keppni en fyrir.

22.Rekstrarleyfisumsókn Reynivellir 6, L212327

2603043

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 18.03.2025, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Bergi Þ. Eggertssyni, kt. 170375 á sumarbústaðalandinu Reynivellir 6 (F231 8450) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn útgáfu rekstrarleyfis, enda samræmist starfsemin ekki stefnu gildandi skipulags.

23.Rekstrareyfisumsókn Heiði L167104

2603044

Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 11.03.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Veitingastofa og greiðasala, rýmisnúmer 17 0101 þjónustuhús frá Iulian-Albin Tabara fyrir hönd Reykholt Hub ehf, kt. 590324-1400 á jörðinni Heiði (F220 4665) í Bláskógabyggð.

Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar veitir jákvæða umsögn um erindið.

24.Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu Biskupstungnabraut um Geysissvæðið

2603059

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 11.03.2026, þar sem Húsnæðis-, mannvirkja og skipulagsstofnun óskar eftir umsögn við eftirfarandi mál í Skipulagsgátt:

Biskupstungnabraut (35-08) um Geysissvæðið, nr. 0274/2026: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu)

Kynningartími er frá 11.3.2026 til 8.4.2026.
Erindið var lagt fram.
Þar er óskað eftir umsögn sveitarstjórnar Bláskógabyggðar um tilkynningu Vegagerðarinnar til ákvörðunar um matsskyldu vegna fyrirhugaðrar vega- og brúarframkvæmdar á rúmlega 5 km löngum kafla Biskupstungnabrautar (35) í Bláskógabyggð. Um er að ræða færslu Biskupstungnabrautar (35) frá Geysissvæðinu, þannig að umferðin fari fram hjá svæðinu í stað þess að liggja í gegnum það. Í tengslum við færslu vegarins þarf að byggja nýja brú á Tungufljót.

Fyrirhugað er að leggja nýjan 9 m breiðan veg sem liggur utan Geysissvæðisins, til að létta á svæðinu þar, og byggja nýja tvíbreiða brú yfir Tungufljót sem er í samræmi við markmið samgönguáætlunar um að fækka einbreiðum brúm á stofnvegum. Brúin á Tungufljóti er sú einbreiða brú sem hefur mesta umferð á landinu. Nýr vegur verður 5,1 km langur, af vegtegund C9.

Áætluð efnisþörf framkvæmdarinnar er rúmlega 152 þúsund m3. Þar af koma tæplega 18 þúsund m3 úr skeringum og rúmlega 134 þúsund m3 úr námum. Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvaða námur verða nýttar en þær sem eru til skoðunar eru allar nema ein á aðalskipulagi.

Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur að nægilega sé gerð grein fyrir framkvæmdinni, umhverfi hennar, umhverfisáhrifum og mótvægisaðgerðum í ítarlegri kynningarskýrslu sem liggur frammi. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur ekki að framkvæmdin þurfi að fara í umhverfismat.
Það leyfi sem framkvæmdin er háð, og heyrir undir sveitarstjórn Bláskógabyggðar, er framkvæmdaleyfi.

25.Aðalskipulagsbreytingar Kjósarhrepps 2024

2406036

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 10.03.2026, þar sem Kjósarhreppur óskar eftir umsögn varðandi eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Endurskoðun aðalskipulags Kjósarhrepps 2024-2036, nr. 0917/2024: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)

Kynningartími er frá 10.3.2026 til 21.4.2026.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.

26.Aðalskipulagsbreytingar Húnabyggð 2024

2411014

Erindi af Skipulagsgáttinni, aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037, nr. 1293/2024: Kynning tillögu á vinnslustigi (Nýtt aðalskipulag)

Umsagnarfrestur rennur út þann 2.4.2026
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemdir við skipulagslýsinguna.

27.Verndar- og orkunýtingaráætlun 565. mál

2603049

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 26.03.2026, þar sem sent er til umsagnar 565. mál verndar- og orkunýtingaráætlun (vindorka og verndarflokkur)

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 14. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

28.Frumvarp til laga um stofnun atvinnuveganna 568. mál

2603041

Beiðni Atvinnuveganefndar Alþings, dags. 27.03.2026 um umsögn um frumvarp til laga um Stofnun atvinnuveganna, 568. mál.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 15. apríl nk.
Lagt fram til kynningar.

29.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl

2509014

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 30.03.2026, þar sem sent er til umsagnar 582. mál - Einföldun regluverks og aukin skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum (einföldun eftirlits)

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 16. apríl nk.
Sveitarstjóra er falið að senda inn umsögn um frumvarpið.

30.Stefna um opinbera þjónustu

2603050

Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 27.03.2026, varðandi stefnu um opinbera þjónustu.
Erindið var lagt fram. Þar hvetur Samband íslenskra sveitarfélaga sveitarfélög til að senda Sambandinu ábendingar um stefnuna og ábendingar um mögulegar aðgerðir vegna aðgerðaráætlunar.
Lagt fram til kynningar.

31.Opinber innkaup og opinber útboð

2603045

Erindi Samkeppniseftirlitsins, dags. 26.03.2026, varðandi samkeppni og hið opinbera.
Lagt fram til kynningar.

32.Aðalfundur Veiðifélags Hvítárvatns 2025

2603051

Boð á aðalfund Veiðifélags Hvítárvatns, sem haldinn verður 8. apríl 2026.
Sveitarstjórn felur Guðrúnu S. Magnúsdóttur að sækja fundinn f.h. Bláskógabyggðar og fara með atkvæði sveitarfélagsins.
Fylgiskjöl:

33.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl

2509014

Upplýsingar frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, dags. 19.03.2026 um áhrif breytinga á fyrirkomulag heilbrigðiseftirlits.
Lagt fram til kynningar.

34.Ársreikningur Brunavarna Árnessýslu 2025

2603056

Ársreikningur Brunavarna Árnessýslu 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar.

35.Ársreikningur Listasafns Árnesinga 2025

2603057

Ársreikningur Listasafns Árnesinga 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar.

36.Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025

2603052

Ársreikningur Heilbrigðiseftirlits Suðurlands 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar.

37.Ársreikningur Arnardrangs hses 2025

2603047

Ársreikningur Arnardrangs hses fyrir árið 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar.

38.Ársskýrsla og ársreikningur Byggðasafns Árnesinga 2025

2603058

Ársskýrsla og ársreikningur Byggðasafns Árnesinga 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar ásamt ársskýrslu.

39.Ársreikningur og ársskýrsla Hestamannafélagsins Jökuls 2025

2603060

Ársreikningur og ársskýrsla Hestamannafélagsins Jökuls 2025
Ársreikningurinn er lagður fram til kynningar ásamt ársskýrslu.

Fundi slitið - kl. 10:20.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?