Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
318. fundur skipulagsnefndar haldinn 28.01.2026, liður 11 Reykjabraut 1 L192616; Breyttur byggingarreitur; Deiliskipulagsbreyting 2601040. Áður frestað á 407. fundi sveitarstjórnar.
2.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
323. fundur haldinn 15.04.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 4 til 12
-liður 4. Einiholt 3 L192608; Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting - 2604006
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Einiholts 3 L192608 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breyting á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
-liður 5. Sandamýri L223807; Byggingarmagn aukið; Deilisskipulagsbreyting - 2604004
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Sandamýrar L223807 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarmagn fyrir gripahús og atvinnuhúsnæði eykst úr 250 m2 í 500 m2.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
-liður 6. Efsti-Dalur 2 L167631; Breytt aðkoma og breyttar lóðastærðir; Deiliskipulagsbreyting - 2603103
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Efsta-Dals 2 L167631 í Bláskógabyggð. Deiliskipulagsbreytingin felur í sér breytingu á efsta hluta á efri aðkomu Efsta-Dals 2, stofnun þriggja nýrra lóða og breytingu á útmörkum þriggja lóða.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.
-liður 7. Hálshúsavegur 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III; Deiliskipulagsbreyting - 2603085
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hálshúsavegar 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III í Bláskógabyggð. Tilgangur deiliskipulagsbreytingarinnar er að breyta afmörkun lóða þannig að tvær lóðir verða sameinaðar í eina, staðsetja núverandi hús innan byggingarreits og bæta
við hnitaskrá. Nýja lóðin fær staðfangið Hálshúsavegur 4 og er aðkoma að lóðinni um núverandi veg. Einn byggingarreitur er á lóðinni skv. teikningu. Innan hans er heimilt að stækka núverandi frístundahús þannig að það sé allt að 300m 2. Auk þess er heimilt að byggja tvö minni frístundahús með hámarksbyggingarmagn 100m 2.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnar erindinu þar sem að það samræmist ekki stefnumörkun frístundabyggðar samkvæmt aðalskipulagi Bláskógabyggðar.
-liður 8. Miðhús L167415 Miðhúsaskógi; Byggingarreitur miðlunartanks; Deiliskipulagsbreyting - 2602007
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Miðhúsa L167415 í Bláskógabyggð. Í breytingunni fellst að skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir miðlunartank austan við þjónustumiðstöðina og 14m frá lóðamörkum. Vatnstankurinn er 6,1m að hæð og 12,5m í ummál, rúmmál um 75m2. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn frestar málinu og felur skipulagsfulltrúa að óska eftir frekari gögnum sem sýna heildarumfang verkefnisins.
-liður 9. Heiðarbær við Þingvallavatn; Frístundabyggð; Deiliskipulag - 2206013
Lögð er fram uppfærð tillaga deiliskipulags frístundabyggðar Heiðarbæjar við Þingvallavatn. Markmið deiliskipulagsins er að hafa til staðar deiliskipulag sem gefur heildarmynd af svæðinu þar sem lóðarmörk, aðgengi og gönguleiðir eru skýrar. Jafnframt að fylgja eftir stefnu Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps um að til skuli vera deiliskipulag fyrir eldri frístundasvæði. Með deiliskipulagsgerðinni er unnið að því að samþætta lóðamörk, auka skilvirkni við umsýslu á lóðum ásamt því að ramma inn svæðið og nýtingu þess í heild og einstaka þætti þess s.s. innviði, náttúruvernd og aðgengi. Hættumat vegna ofanflóða hefur verið unnið fyrir tillöguna auk þess sem fyrir liggur höfnun á undanþágu vegna skilgreiningar byggingarreita frá Þingvallavatni og Grafningsvegi-Efri. Athugasemdir bárust frá Skipulagsstofnun og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógarbyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að með því hafi verið brugðist við athugasemdum Skipulagsstofnunar þann 25. september 2025, eftir deiliskipulag var samþykkt af sveitarstjórn í fyrra skipti 20. ágúst 2025, og sent Skipulagsstofnun til yfirferðar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna áður en deiliskipulagið var samþykkt 20. ágúst 2025 og telur ekki ástæðu til frekari viðbragða. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 10. Hrosshagi L167118; Hrosshagi A; Stofnun lóðar - 2604015
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 25.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar stofnun lóðarinnar Hrosshaga A úr landi Hrosshaga, L167118 og samruna hennar við Hrosshaga lóð, L197564.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.
-liður 11. Eiríksbakki lóð L167083; Staðfest stærð lóðar - 2604005
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 23.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Eiríksbakki lóð, L167083 í Bláskógabyggð.

-liður 12. Hrísholt 3-3a L189917; Staðfest afmörkun og stærð lóðar - 2603084
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingum dags. 20.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024, er varðar staðfestingu á afmörkun og stærð lóðarinnar Hrísholts 3-3a, L189917 í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu
Fundargerðin er lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

3.Fundargerð atvinnu- og ferðamálanefndar
2604006
Fundur haldinn 09.04.2026
Fundargerðin er lögð fram til kynningar.
4.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
2601005
Samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa frá 09.04.2026 (26-248).
Lagt fram til kynningar.
5.Fundargerðir stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
2601026
634. fundur haldinn 06.03.2026
635. fundur haldinn 10.04.2026
635. fundur haldinn 10.04.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
6.Fundargerð stjórnar Bergrisans
2602007
92. fundur haldinn 23.03.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
7.Fundargerðir stjórnar Brunavarna Árnessýslu
2604010
34. fundur haldinn 20.03.2026
35. fundur haldinn 07.04.2026.
35. fundur haldinn 07.04.2026.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
8.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings
2601033
Fundur haldinn 30.03.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga
2602015
217. fundur haldinn 24.03.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Lóðarréttindi að Laugargerði.
2411027
Beiðni lóðarhafa um endurnýjun lóðarleigusamnings, áður á dagskrá á 388. og 405. fundi sveitarstjórnar.
Auk áður framlagðra gagna var lagður fram tölvupóstur lögmanns lóðarhafa, dags. 13.04.2026, þar sem áréttað er að nauðsynlegt sé að fá svar við þeim rökum sem komu fram í erindi frá 27. febrúar s.l., sbr. og fund sveitarstjórnar með aðilum hinn 4. mars s.l.
Umræða varð um málið. Sveitarstjórn telur ekki forsendur til að falla frá fyrri ákvörðun um að lóðarhafi skili lóðinni til sveitarfélagsins og áréttar kröfu sína frá 22. nóvember 2024 um skil lóðarinnar. Sveitarstjórn samþykkir að veita viðbótarfrest til 31. júlí 2026 til að afhenda sveitarfélaginu aftur lóðina til fullra umráða og fjarlægja öll mannvirki lóðarhafa af lóðinni. Sveitarstjóra er falið að svara bréfi lögmanns lóðarhafa í samræmi við umræður á fundinum og tilkynna um framangreinda ákvörðun sveitarstjórnar, auk þess að fylgja ákvörðun sveitarstjórnar eftir.

11.Hverabraut 16-18, Laugarvatni, sala
2306019
Sala á Hverabraut 16-18, Laugarvatni. Skipulagsmál.
Aníta Rögnvaldsdóttir, lögmaður, kom inn á fundinn og gerði grein fyrir efni minnisblaðsins og svaraði spurningum. Sveitarstjórn felur Lögmönnum Suðurlandi ásamt sveitarstjóra að ræða við kaupendur og lögmann þeirra.
12.Sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðisleg þátttaka barna
2604008
Bréf umboðsmanns barna, dags. 14.04.2026, varðandi sveitarstjórnarkosningar 2026 og lýðræðislega þátttöku barna.
Í bréfinu er vakin athygli á verkefninu krakkakosningum sem umboðsmaður barna hefur staðið fyrir í samstarfi við KrakkaRÚV og hvatt til þess að staðið verði fyrir krakkakosningum í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar. Erindinu hefur verið vísað til ungmennaráðs.
13.Styrkumsókn vegna námskeiðsins Leik og Sprell
2603048
Styrkumsókn Leiks og Sprells ehf, dags. 26.03.2026, vegna húsnæðiskostnaðar vegna námskeiðshalds á Laugarvatni. Áður á dagskrá á 407. fundi.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 50.000. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Stephanie vék af fundi við afgreiðslu málsins.

14.Viðauki við fjárhagsáætlun SVÁ 2026
2604011
Erindi formanns stjórnar SVÁ, dags. 01.04.2026, þar sem óskað er eftir að viðauki I við fjárhagsáætlun SVÁ 2026 verði lagður fram til samþykktar.
Í 4. lið fundargerðar stjórnar SVÁ, sem lögð var fram undir 8. lið á dagskrá þessa fundar, var lagt til að aðildarsveitarfélögin samþykki að auglýst verði eftir öðrum náms- og starfsráðgjafa til að efla þjónustu byggðasamlagsins og formanni falið að stilla upp viðauka sem sendur verður á aðildarsveitarfélögin til samþykktar.
Lagður er fram viðauki við fjárhagsáætlun SVÁ fyrir árið 2026.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða framlagðan viðauka I við fjárhagsáætlun Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs fyrir árið 2026. Viðauki I felur í sér kostnaðarauka að fjárhæð kr. 5.160.000 og er mætt með viðbótarframlögum frá aðildarsveitarfélögum í samræmi við samþykkta kostnaðarskiptingu í stofnsamningi byggðasamlagsins. Kostnaðarhlutdeild Bláskógabyggðar er kr. 1.600.000 og samþykkir sveitarstjórn framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar sem þeirri fjárhæð nemur og verður kostnaði mætt með lækkun á handbæru fé.

15.Styrkbeiðni söngsveitarinnar Tvennir tímar 2026
2604015
Erindi Sigurlaugar Angantýsdóttur, dags. 31.03.2026, f.h. söngsveitarinnar Tvennra tíma, þar sem óskað er eftir fjárstyrk til starfseminnar.
Sótt er um styrk að fjárhæð kr. 200.000. Sveitarstjórn samþykkir að styrkja söngsveitina um kr. 200.000 með hliðsjón af því að um sé að ræða félagsstarf eldri borgara. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
16.Fundir sveitarstjórnar
2511024
Tillaga um að aukafundur verði haldinn í sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl n.k. kl 10:30 og að reglulegur fundur sem vera ætti 6. maí n.k. verði haldinn 13. maí n.k.
Sveitarstjórn samþykkir að aukafundur verði haldinn í sveitarstjórn miðvikudaginn 29. apríl n.k. kl 10:30 og að reglulegur fundur sem vera ætti 6. maí n.k. verði haldinn 13. maí n.k. kl. 11:00.
17.Sumarlokun skrifstofu 2026
2604017
Tillaga um að skrifstofa Bláskógabyggðar verði lokuð frá og með 6. júlí n.k. til og með 3. ágúst n.k.
Sveitarstjórn samþykkir að skrifstofa Bláskógabyggðar verði lokuð frá og með 6. júlí n.k. til og með 3. ágúst n.k.
18.Lóðarumsókn Traustatún 13, Laugarvatni
2603042
Umsókn um lóðina Traustatún 13, Laugarvatni
Lóðin Traustatún 13 hefur verið auglýst laus til umsóknar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjanda, Rebekku Rutar Ingvarsdóttur.
19.Raflögn að Fremstaveri
2503031
Minnisblað um kostnað við lagningu raflagnar að Fremstaveri. Ályktun aðalfundar veiðifélags Hvítárvatns um styrk til verkefnisins.
Sveitarstjórn þakkar framlag veiðifélagsins til verkefnisins og samþykkir að ráðist verði í lagningu rafstrengs að Fremstaveri. Fjármálastjóra er falið að gera viðauka við fjárhagsáætlun vegna verkefnisins og leggja fyrir næsta fund.
20.Ársreikningur Bláskógabyggðar 2025
2604022
Drög að ársreikningi, til kynningar á fundinum
Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri kom inn á fundinn og kynnti drög að ársreikningi. Endanlegur ársreikningur verður lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn 29. apríl n.k.
21.Verkefnastjóri almannavarna
2604012
Tölvupóstur Arndísar Soffíu Sigurðardóttur, lögreglustjóra, dags. 09.03.2026, þar sem tilkynnt er um að Björn Ingi Jónsson hyggist láta af störfum sem verkefnastjóri almannavarna og Bjarki Oddsson muni taka við verkefnum verkefnastjóra tímabundið.
Tilkynning lögreglustjóra var lögð fram til kynningar.
22.Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
2604007
Boð á aukaaðalfund Samtaka orkusveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 29. apríl nk.
Fundarboðið var lagt fram til kynningar.
23.Frumvarp til laga um verndar- og orkunýtingaráætlun 565. mál
2603049
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 13.04.2026, þar sem kynnt er umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga við 565.mál, verndar- og orkunýtingaráætlun.
Lagt fram til kynningar.
24.Ársreikningur Bergrisans bs
2604009
Ársreikningur Bergrisans bs.
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.
25.Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga 2025
2604021
Ársreikningur Tónlistarskóla Árnesinga 2025
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.
26.Ársreikningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2025
2604013
Ársreikningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2025
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.
27.Ársreikningur Félags eldri borgara í Biskupstungum 2025
2604019
Ársreikningur og ársskýrsla FEBB 2025
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.
28.Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 2026
2604014
Boð á aðalfund Markaðsstofu Suðurlands 2026, sem haldinn verður í Vestmannaeyjum 7. maí nk.
Fundarboðið var lagt fram til kynningar.
29.Endurskoðun byggðaáætlunar
2604016
Erindi SASS, dags. 31.03.2026, þar sem kynnt er samráð um endurskoðun byggðaáætlunar.
Lagt fram til kynningar.
30.Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands
2604018
Ályktun sem samþykkt var á fulltrúafundi Skógræktarfélags Íslands 28. mars 2026.
Lagt fram til kynningar.
31.Vegamót við Hrosshaga L188584
2604020
Bréf Vegagerðarinnar, dags. 24.03.2026, þar sem veitt er samþykki fyrir nýjum Vegamótum við Hrosshaga L188584.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 17:15.
Lögð er fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Reykjabrautar 1 L192616 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur færist nær gangstétt um 3 m.
Lagður er fram aðaluppdráttur. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnar framkominni umsókn.