Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

409. fundur 29. apríl 2026 kl. 10:30 - 12:25 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
Hildur Hálfdanardóttir og Sveinn Ingi Sveinbjörnsson voru í fjarfundi (Teams).

1.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar

2601002

78. fundur haldinn 24.04.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 1, 6, 7, 10 og 13.
-liður 1, 2503035, lagnaleið frá borholu að Laugarvatni, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að farið verði að tillögu um að lagnaleið í Garðsstíg. Sveitarstjórn samþykir tillögu framkvæmda- og veitunefndar.
-liður 6, 2603037, útboð yfirborðsfrágangs Borgarrimi, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði lægstbjóðanda Gröfutækni ehf, verði tekið. Sveitarstjórn samþykkir að tilboði Gröfutækni verði tekið. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
-liður 7, 2601047, sláttur og hirðing Laugarvatni, 2026-2029, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði lægstbjóðanda, Símonar G. Ragnarssonar, verði tekið. Sveitarstjórn samþykkir að tilboði Símonar verði tekið. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
-liður 10, 2510030, Skólavegur, viðhald, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að verkinu verði frestað og ráðist verði í heildarendurbætur á götunni síðar, m.a. hvað varðar gönguleiðir, hraðahindranir, lagnaleiðir og mögulega vegrið. Á fjárhagsáætlun þessa árs var gert ráð fyrir viðgerðum á götunni, þ.e. endurbyggingu götukanta á hluta götunnar. Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmda- og veitunefndar um að ráðist verði í heildarendurbætur á götunni síðar, m.a. hvað varðar gönguleiðir, hraðahindranir, lagnaleiðir og mögulega vegrið.
-liður 13, 2604028, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði ReSource International ehf í sýnatöku vegna vöktunar Laugarvatns verði tekið. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð skólanefndar

2601003

48. fundur haldinn 26.04.2026
Fundargerðin var staðfest.

3.Fundargerð afgreiðslufunda byggingarfulltrúa

2601005

Samantekt 249. fundar frá 22.04.2026
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerð oddvitanefndar

2602006

13. fundur haldinn 17.04.2026. Afgreiða þarf sérstaklega lið nr. 3.
-liður 3, lénið Laugarás.is. Oddvitanefnd leggur til að lénið www.laugaras.is fylgi með kaupunum á jörðinni Laugarási. Sveitarstjórn samþykkir að lénið www.laugaras.is verði fært til Bláskógabyggðar og að Hrunamannahreppi verði falið að ganga frá skráningu lénsins í samræmi við það.

5.Aðalfundur Héraðsnefndar Árnesinga bs

2604043

36. fundur (vorfundur) haldinn 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

6.Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs

2604045

Aukaaðalfundur haldinn 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

7.Aðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs

2604044

Aukaaðalfundur 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

8.Aðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs

2604048

Aukaaðalfundur haldinn 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

9.Aðalfundur Listasafns Árnesinga bs

2604046

Aukaaðalfundur haldinn 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

10.Aðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga

2604047

Aukaaðalfundur haldinn 14.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

11.Ársreikningur Bláskógaljóss 2025

2604024

Fyrri umræða um ársreikning Bláskógaljóss
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, komu inn á fundinn undir lið 11 til 13. Kynntu þeir ársreikning Bláskógaljóss.
Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu.

12.Ársreikningur Bláskógaveitu 2025

2604023

Fyrri umræða um ársreikning Bláskógaveitu
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kynntu ársreikning Bláskógveitu. Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi til framkvæmda- og veitunenfndar og til síðari umræðu í sveitarstjórn.

13.Ársreikningur Bláskógabyggðar 2025

2604022

Fyrri umræða um ársreikning Bláskógabyggðar
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kynntu ársreikning Bláskógveitu. Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Greinagerð við fyrri umræðu um ársreikning Bláskógabyggðar 2025
Ársreikningur Bláskógabyggðar fyrir árið 2025 er lagður fram til fyrri umræðu þann 29. apríl 2026.
Rekstur sveitarfélagsins skilaði jákvæðri niðurstöðu á árinu, bæði í A-hluta og í samanteknum A- og B-hluta. Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 149 m.kr. og rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 327 m.kr.
Helstu lykiltölur 2025
Lykiltala
A-hluti
A- og B-hluti
Rekstrartekjur
2.929 m.kr.
3.364 m.kr.
Rekstrarniðurstaða
149 m.kr.
327 m.kr.
Heildareignir
4.618 m.kr.
4.715 m.kr.
Eigið fé
1.716 m.kr.
2.297 m.kr.
Veltufé frá rekstri
281 m.kr.
443 m.kr.
Fjárfesting í rekstrarfjármunum
423 m.kr.
596 m.kr.
Skuldaviðmið
56%
48%
Íbúafjöldi 1. janúar 2026
1.453
1.453
Fjölgun íbúa frá fyrra ári
91 íbúi / 6,7%
91 íbúi / 6,7%

Tekjur jukust milli ára. Rekstrartekjur A-hluta hækkuðu úr 2.680 m.kr. árið 2024 í 2.929 m.kr. árið 2025, eða um rúmlega 9%. Í A- og B-hluta hækkuðu tekjur úr 3.006 m.kr. í 3.364 m.kr., sem jafngildir tæplega 12% hækkun. Tekjuaukningin skýrist einkum af hærri útsvars- og fasteignaskattstekjum, auk hækkunar framlaga úr Jöfnunarsjóði.
Umfangsmesti málaflokkurinn
Stærsti málaflokkur sveitarfélagsins er fræðslu- og uppeldismál. Kostnaður málaflokksins í A-hluta nam 1.332 m.kr. árið 2025, sem jafngildir um 56,8% af skatttekjum Aðalsjóðs. Þetta er áfram langstærsti útgjaldaliður sveitarfélagsins og vegur þyngst í rekstri A-hluta.
Efnahagur og fjárfestingar
Heildareignir A- og B-hluta námu 4.715 m.kr. í árslok 2025 og hækkuðu úr 4.227 m.kr. árið áður. Eigið fé A- og B-hluta nam 2.296 m.kr. í árslok, samanborið við 1.856 m.kr. árið 2024. Eiginfjárstaða sveitarfélagsins styrktist því á árinu.
Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjármunum nam 596 m.kr. í A- og B-hluta. Þar af voru fjárfestingar A-hluta 423 m.kr. Helstu fjárfestingar ársins voru m.a.:

Íþróttamannvirki: 230 m.kr.

Leikskóli: 42 m.kr.

Bláskógaveita: 143 m.kr.

Fráveituframkvæmdir: 49 m.kr.

Gatnagerð og göngustígar, framkvæmdakostnaður: 73 m.kr.
Á móti fjárfestingu í gatnagerð komu gatnagerðargjöld að fjárhæð 102 m.kr.
Skuldaviðmið og íbúaþróun
Skuldaviðmið sveitarfélagsins var 56% hjá A-hluta og 48% hjá A- og B-hluta árið 2025. Viðmiðið lækkar frá fyrra ári, þegar það var 60% hjá A-hluta og 54% hjá A- og B-hluta. Skuldaviðmið sveitarfélagsins er því vel undir lögbundnu 150% hámarki sveitarstjórnarlaga.
Íbúum Bláskógabyggðar fjölgaði á milli ára. Íbúafjöldi 1. janúar 2026 var 1.453 samanborið við 1.362 árið áður. Fjölgunin nemur 91 íbúa, eða um 6,7%.
Skipting starfsemi sveitarfélagsins í A- og B-hluta
Til A-hluta telst sú starfsemi sem er að hluta eða öllu leyti fjármögnuð með skatttekjum. Í A-hluta Bláskógabyggðar eru Aðalsjóður, Eignasjóður, Þjónustustöð og hlutdeild sveitarfélagsins í samstarfsverkefnum (Bergrisinn bs., Brunavarnir Árnessýslu bs., Umhverfis og tæknisvið uppsveita bs. og Skóla- og velferðaþjónusta Árnes bs.).
Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins sem eru að meginstofni fjármögnuð með þjónustutekjum. Í B-hluta eru Vatnsveita, Bláskógaveita, Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Bláskógaljós og Fráveita.
Samantekt
Niðurstaða ársins 2025 er jákvæð og rekstur sveitarfélagsins styrkist milli ára. Tekjur hækka, rekstrarniðurstaða batnar og eiginfjárstaða styrkist. Fjárfestingar ársins eru verulegar, einkum í íþróttamannvirkjum, veitukerfum og innviðum. Fræðslu- og uppeldismál eru áfram langumfangsmesti málaflokkurinn í rekstri sveitarfélagsins. Ársreikningurinn sýnir því almennt sterka rekstrarafkomu og aukna fjárfestingu í innviðum, samhliða hækkun eigna og eigin fjár. Skuldaviðmið helst lágt og undir lögbundnum mörkum og fjölgun íbúa styður við vöxt sveitarfélagsins.

14.Viðauk við fjárhagsáætlun 2026

2603004

Viðauki við fjárhagsáætlun
Lagður var fram viðauki við fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar, til samræmis við bókun sveitarstjórnar á 408. fundi vegna lagningar rafstrengs að Fremstaveri.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann. Áhrif viðaukans eru þau að fjárfesting hækkar um 9 millj.kr. og er útgjaldaauka mætt með lækkun á handbæru fé um 9 millj.kr.

15.Lóðarleigusamningur Holtagata 2, Laugarási

2602017

Drög að samningi um afnot hluta lóðarinnar að Holtagötu 2 fyrir bílastæði
Drögin voru lögð fram. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.

16.Samningur vegna bílastæða við Fontana

2204016

Drög að samningi vegna afnota af landi vegna bílastæða við Fontana, Hverabraut.
Samningsdrögin voru lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi Laugarvatns þar sem afmörkuð verði lóð fyrir bílastæði. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.

17.Samstarf um bókasafn Menntaskólans að Laugarvatni

2604042

Samstarf um rekstur bókasafns ML, beiðni um endurskoðun
Minnisblað sveitarstjóra var lagt fram ásamt gildandi þjónustusamningi um rekstur bókasafns ML og nýtingu leik- og grunnskóla og almennings af safninu. Umræða varð um málið. Sveitarstjóra er falið að afla frekari upplýsinga.

18.Aðstaða Hestamannafélagsins Jökuls

2511052

Erindi Hestamannafélagsins Jökuls, dags. 4. mars 2026, beiðni um að gerð verði viljayfirlýsingu um endurbætur á aðstöðu félagsins.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir að sveitarstjórnir sveitarfélaganna á svæðinu staðfesti með viljayfirlýsingu að þau séu tilbúin í áframhaldandi samstarf um uppbyggingu á aðstöðu fyrir hestaíþróttir á svæðinu og komi um leið að ákvörðunum þar sem næstu skref verða stigin. Vilji sé til þess að byggja rúmlega 2.000 fermetra reiðhöll og gera um leið breytingar á eldri reiðhöll á Flúðum sem yrði þá að hluta til félagshesthús.
Heildarkostnaður þessara framkvæmda er metinn vera 210.000.000 kr.
Umræða varð um málið. Lögð var fram eftirfarandi tillaga að afgreiðslu: Vegna mikilla fjárfestinga sem framundan eru í Bláskógabyggð við að byggja upp innviði sveitarfélagsins sér sveitarstjórn sér ekki fært að ráðast í verkefnið. Samþykkt með fimm atkvæðum. Hildur og Anna Greta greiddu atkvæði á móti og óska eftir að bókað verði að fulltúar Þ-lista vilji skoða málið betur.

19.Samþykktir Héraðsnefndar Árnessýslu

2604041

Samþykktir Héraðsnefndar Árnessýslu
Lögð var fram tillaga að breytingum á samþykktum Héraðsnefndar Árnesinga. Sveitarstjórn samþykkir að vísa samþykktunum til síðari umræðu.

20.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Bláskógabyggðar

2604040

Tillaga um breytingar á samþykktum sveitarfélagsins, fyrri umræða
Lögð var fram tillaga að breytingum á samþykktum Bláskógabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir að vísa samþykktunum til síðari umræðu.

21.Greiðslur fyrir refaveiðar

2601034

Tillaga að hækkun greiðslna til ráðinna veiðimanna
Tillaga um greiðslur til ráðinna veiðimanna fyrir veiðar á ref og mink var lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna og felur sveitarstjóra að gera samninga við hlutaðeigandi aðila.

22.Ársreikningur 60 plús í Laugardal

2604034

Ársreikningur 60 plús í Laugardal fyrir árið 2025
Ársreikningurinn var lagður fram til kynningar.
Fylgiskjöl:

23.Listi frá nemendum yngsta- og miðstigs í Reykholtsskóla

2604035

Tillögur frá nemendum á yngsta- og miðstigi Reykholtsskóla að úrbótum.
Lagður var fram listi frá nemendum á yngsta- og miðstigi Reykholtsskóla sem inniheldur tillögur til sveitarstjórnar um úrbætur í ýmsum málum. Sveitarstjórn þakkar nemendum fyrir tillögurnar, farið verður yfir þær.
Fylgiskjöl:

24.Lóðarumsókn Langholtsvegur 4, Laugarási

2604050

Umsókn Ragnars S. Melstað um lóðina Langholtsveg 4, Laugarási.
Lóðin hefur verið auglýst laus til úthlutunar. Umsóknin var lögð fram. Sótt er um lóðina með fyrirvara um lóðarverð og fjármögnun. Sveitarstjórn frestar úthlutun lóðarinnar.

25.Frumvarp til loftslagslaga, 595. mál

2604036

Beiðni umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags, 25.04.2026, um umsögn um 595. mál - Loftslagslög.

Frestur til að senda inn umsögn er til og með 8. maí nk.
Lagt fram til kynningar.

26.Úti- og bæjarhátíðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi

2604037

Erindi lögreglustjórans á Suðurlandi, dags. 24.04.2026, þar sem drög að skýrslu starfshóps um framkvæmd og skipulag hátíða, eru send til umsagnar.
Drögin voru lögð fram. Sveitarstjóra er falið að veita umsögn í samráði við verkefnastjóra Heilsueflandi samfélags.

27.Tækifærisleyfi til áfengisveitinga Bergmál á Þingvöllum

2604039

Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 26.04.2026, um umsögn um umsókn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga á Þingvöllum 20. júní nk.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

28.Aðalfundur Brákar hses 2026

2604038

Ársreikningur Brákar hses fyrir árið 2025
Lagt fram til kynningar.

Fundi slitið - kl. 12:25.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?