Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

410. fundur 13. maí 2026 kl. 11:00 - 13:20 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Stephanie E. M. Langridge Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

324. fundur haldinn 29.04.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 2 til 6.
-liður 2, Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag - 2604039
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlauptungu L229945 í Bláskógabyggð. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur hafa lagt á bílastæðagjald og hyggjast nota ágóða þess til uppbyggingar á svæðinu, svo sem að leggja bundið slitlag á bílastæði, koma upp salernisaðstöðu og auka upplýsingagjöf, m.a. um hættur á svæðinu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið til kynningar og umsagna í samræmi við 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


-liður 3, Böðmóðsstaðir 1 L167625; Endurheimt votlendis; Framkvæmdarleyfi - 2604049
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Böðmóðsstaða 1 L167625 í Bláskógabyggð. Markmið með framkvæmdinni er að endurheimta fyrrum votlendi á landi Böðmóðsstaða. Það verður gert með því að hækka grunnvatnsstöðu og færa svæðið sem mest í upprunalegt ástand. Fyrirhugað endurheimtasvæði er 54 hektarar, lítill landhalli er á svæðinu, sem liggur niður að Hólaá.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar, og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.


-liður 4, Árbraut 6 L196114; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting - 2604054
Lögð er fram deiliskipulagsbreyting sem tekur til Árbrautar 6 L196114 í Bláskógabyggð. Lóðin stækkar úr 5.666fm í 8.067fm á kostnað lands Efri-Reykja.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.


-liður 5, Stakksárhlíð 2 L217505; Skipting lóðar; Fyrirspurn - 2604066
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til Stakksárhlíðar 2 L217505 í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að skipta lóðinni sem mælist 12.113 fm að stærð í tvær lóðir. Stakkárhlíð 2, 5.500 fm og Stakkárhlíð 2a, 6.613 fm
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnar beiðni um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til heimildar fyrir uppskiptingar lóðar. Að mati sveitarstjórnar er ein af forsendum deiliskipulagsáætlunar svæðisins fjöldi lóða innan þess m.t.t. innviða. Heimild fyrir uppskiptingu einnar lóðar veiti fordæmi fyrir öðrum lóðarhöfum innan svæðisins til að skipta sambærilegum lóðum upp í tvær lóðir með tilheyrandi fjölgun húsa innan svæðisins. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að mörkuð verði stefna um uppskiptingu lóða innan frístundasvæða.


-liður 6, Snorrastaðir L168101 (frístundabyggð F25); Skilgreining lóðarmarka; Fyrirspurn - 2604069
Lögð er fram fyrirspurn er varðar Snorrastaði L168101 í Bláskógabyggð. Óskað er eftir heimild til að leggja fram breytingu deiliskipulags sumarhúsahverfis í Snorrastaðalandi vestan Stekkár frá árinu 1987. Samhliða er óskað eftir að leggja fram minni háttar breytingu á breytingu sem unnin var 2021, Stóruskógarbraut - frístundabyggð þar sem lóðamörk og afmörkun skipulagsmarka verða samræmd.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnar erindinu þar sem að það er ekki í samræmi við stefnumörkun aðalskipulags.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar

2601002

79. fundur haldinn 08.05.2026, afgreiða þarf sérstaklega 9. lið.
-liður 9, staðsetning ærslabelgs á Laugarvatni. Framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að ærslabelgur verði staðsettur norðaustan við blakvöll, þar verði gert svæði fyrir ærslabelginn, ásamt því að koma fyrir bekkjum/borðum. Sveitarstjórn samþykkir staðsetninguna.
Anna Greta óskaði eftir að bókað yrði: Mikilvægt er að ærlsabelgurinn verði staðsettur við skólann svo það verði hægt að nota hann á skólatíma.

3.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa

2601005

Samantekt af afgreiðslum byggingarfulltrúa, dags. 05.05.2026 (26-250).
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601033

Fundur haldinn 04.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

5.Fundargerð stjórnar Bergrisans

2602007

93. fundur haldinn 21.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

6.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands

2601058

254. fundur haldinn 28.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

7.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu

2604010

36. fundur haldinn 30.04.2026. Liðir 1 og 2 eru sérstakir dagskrárliðir á fundinum, sjá 12 og 13.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

8.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2601056

997. fundur haldinn 17.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

9.Aðalfundur Brákar hses 2026

2604038

Ársfundur Brákar hses haldinn 28.04.2026.
Lagt fram til kynningar.

10.Samþykktir Héraðsnefndar Árnessýslu

2604041

Samþykktir Héraðsnefndar Árnessýslu, síðari umræða
Sveitarstjórn samþykkir breytingar á samþykktum Héraðsnefndar Árnesinga.

11.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Bláskógabyggðar (breyting 2026)

2604040

Samþykkt um stjórn og fundarsköp Bláskógabyggðar, síðari umræða
Sveitarstjórn samþykkir breytingarnar.

12.Viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs

2605014

Viðauki við fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu bs, dags. 14.05.2026
Viðaukinn er lagður fram. Hann er gerður vegna mönnunar dagvakta slökkviliðs. Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða, kostnaður rúmast innan samþykktrar fjárhagsáætlunar.

13.Lántökur Brunavarna Árnessýslu bs 2026

2605015

Tillaga um lántökur Brunavarna Árnessýslu bs, frá 36. fundi stjórnar BÁ og aukaaðalfundi sem haldinn var 14.04.2026
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir hér með á fundi sínum að veita einfalda ábyrgð á láni nafn Brunavarna Árnessýslu bs hjá Lánasjóði sveitarfélaga og veðsetja tekjur sveitarfélagsins til tryggingar ábyrgðinni í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 1. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Ábyrgðin nær til láns að fjárhæð, allt að kr. 240.000.000,- ásamt vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði, samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru þegar lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Sveitarstjórn hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins. Samþykkið nær jafnframt til undirritunar lánasamnings og þess að sveitarfélagið taki á sig þær skyldur sem þar greinir.
Lánið er tekið til byggingar slökkvistöðvar á Flúðum og til fjármögnunar á nýrri slökkvibiðfreið sem staðsett verður í Reykholti. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Sveitarstjórnin skuldbindur sveitarfélagið sem eiganda Brunavarna Árnessýslu bs til að breyta ekki ákvæðum samþykkta félagsins sem kveða á um að félagið megi ekki, að neinu leyti, fara í eigu einkaaðila.
Ef sveitarfélagið selur eignarhlut sinn til annarra opinberra aðila, skuldbindur sveitarfélagið sig til að tryggja að nýr eigandi yfirtaki ábyrgð á láninu í hlutfalli við eignarhlut sinn í félaginu.
Jafnframt er Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, kt. 251070-3189, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. nafn sveitarfélagsins, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.

14.Útsvarstekjur 2026

2603005

Yfirlit yfir útsvarstekjur janúar til apríl 2026
Yfirlitið var lagt fram.

15.Virðisaukaskattur af baðlónum

2605018

Hækkun virðisaukaskatts af baðónum
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn þeim áformum ríkisstjórnarinnar sem kynnt hafa verið um hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% frá byrjun árs 2027. Sveitarstjórn tekur undir áhyggjur sem Samtök ferðaþjónustunnar hafa látið í ljós um að slík hækkun muni vega þungt í samfélögum á landsbyggðinni. Sveitarstjórn hvetur stjórnvöld til að endurskoða áformin og falla frá þeim, enda eru þau ekki í samræmi við áður yfirlýst áform ríkisstjórnarinnar um að hækka ekki virðisaukaskatt á ferðaþjónustu. Í Bláskógabyggð eru tvö baðlón sem hafa staðið fyrir miklum fjárfestingum á síðustu misserum og fela áform ríkisstjórnarinnar í sér gerbreyttar rekstrarforsendur. Umrædd baðlón eru mikilvægur hluti ferðaþjónustunnar, auk þess sem sveitarstjórn vill einnig vekja athygli á því að gestir baðlóna eru að stórum hluta Íslendingar, heimamenn og gestir, og mun hækkunin því einnig fela í sér auknar álögur á almenning í landinu. Uppbygging afþreyingar fyrir ferðamenn á landsbyggðinni er mjög mikilvæg og liður í því að dreifa tekjum af henni með jafnari hætti um landið. Verði áform ríkisstjórnarinnar að veruleika mun það hafa mjög neikvæð áhrif í för með sér.

16.Samstarf um bókasafn Menntaskólans að Laugarvatni

2604042

Beiðni um breytingar á kostnaðarskiptingu, áður á dagskrá á 409. fundi
Vegna ríkrar aðhaldskröfu sem ríkið gerir varðandi rekstur Menntaskólans að Laugarvatni hefur verið leitað eftir því að Bláskógabyggð taki að sér launakostnað vegna bókasafns ML, að öðrum kosti muni safninu verða lokað. Safnið sinnir leik- og grunnskóla á Laugarvatni, auk þess sem almenningur hefur aðgang að því, og hefur sveitarfélagið greitt ML fyrir það tilteknar fjárhæðir á ári, skv. samningi þar að lútandi.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að taka við launakostnaði vegna bókasafns ML. Sveitarstjórn harmar að fjárframlög til bóknámsskóla skuli vera með þeim hætti að þeir neyðist til að hætta starfsemi bókasafna, á sama tíma og lesskilningi barna og ungmenna virðist hraka.
Sveitarfélagið mun skoða möguleika á að mæta þörf leik- og grunnskóla og almennings fyrir aðgengi að bókasafni á Laugarvatni.
Fylgiskjöl:

17.Hverabraut 16-18, Laugarvatni, sala

2306019

Sveitarstjóri fór yfir stöðu viðræðna við kaupendur að eigninni.

18.Ársreikningur Bláskógaljóss 2025

2604024

Ársreikningur Bláskógaljóss, síðari umræða
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, komu inn á fundinn undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir ársreikninginn samhljóða.

19.Ársreikningur Bláskógaveitu 2025

2604023

Ársreikningur Bláskógaveitu, síðari umræða
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, komu inn á fundinn undir þessum lið.
Sveitarstjórn samþykkir ársreikninginn samhljóða.

20.Ársreikningur Bláskógabyggðar 2025

2604022

Ársreikningur Bláskógabyggðar, síðari umræða
Friðrik Einarsson, endurskoðandi, og Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, komu inn á fundinn undir þessum lið. Friðrik gerði grein fyrir endurskoðendaskýrslu og helstu niðurstöðum ársreiknings.
Sveitarstjórn samþykkir ársreikninginn samhljóða.

21.Sala Lindarbrautar 4 Laugarvatni

2605020

Fyrirspurn fulltrúa Þ-lista um sölu Lindarbrautar 4, Laugarvatni
Lögð var fram fyrirspurn Önnu Gretu Ólafsdóttur og Stephanie M. Langridge um hvort ríkið hafi kannað hug sveitarfélagsins varðandi hugsanleg kaup eða yfirtöku á ÍKÍ húsinu.
Sveitarfélaginu hafa ekki borist erindi þessa efnis.

22.Þjóðlenda Geldingafell 1 til úthlutunar

2602020

Umsóknir um lóðina Geldingafell 1
Tvær umsóknir bárust um lóðina Geldingafell 1 og lóðina Suðurjökull íshellir 2. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, og Guðrún S. Magnúsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi, hafa tekið viðtöl við umsækjendur. Farið var yfir helstu atriði umsókna og efni viðtala. Afgreiðslu frestað.

23.Þjóðlenda Geldingafell 2 til úthlutunar

2602021

Umsóknir um lóðina Geldingafell 2
Þrár umsóknir bárust um lóðina Geldingafell 2 og lóðina Suðurjökull íshellir. Í tveimur tilvikum er sótt aðallega um Geldingafell 1, en um Geldingafell 2 til vara. Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, og Guðrún S. Magnúsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi, hafa tekið viðtöl við umsækjendur. Farið var yfir helstu atriði umsókna og efni viðtala. Afgreiðslu frestað.

24.Umsókn um lóðir fyrir hleðslustöðvar

2511017

Beiðni ON, dags. 11.05.2026, um vilyrði fyrir lóð fyrir rafhleðslustöðvar. Tillaga um staðsetningu lóðar við Laugarvatn.

Áður á dagskrá á 397. fundi.
Lagt er til að gerð verði breyting á deiliskipulagi Laugarvatns þar sem gert verði ráð fyrir rafhleðslustöð ofan við Dalbraut, við aðkomu að tjaldsvæðið á Laugarvatni.
Sveitarstjórn samþykkir að veita Orku náttúrunnar, ON, vilyrði fyrir lóð fyrir rafhleðslustöðvar á umræddu svæði með fyrirvara um að breyting á deiliskipulagi gangi eftir.

25.Lóðarumsókn Tungurimi 14, Reykholti

2605022

Umsókn um lóðina Tungurima 14, Reykholti
Umsókn S homes ehf var lögð fram. Lóðin hefur verið auglýst laus til úthlutunar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til umsækjanda.

26.Aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps

2510008

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 07.05.2026, þar sem Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir umsögn um eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Tjaldafell fjallaríki L175568; Fjölgun lóða, auka byggingarheimildir og gistirými; Aðalskipulagsbreyting - 2511039, nr. 1634/2025: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi)
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.

27.Aðalskipulag Grímsnes- og Grafningshrepps

2510008

Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 07.05.2026, þar sem Grímsnes- og Grafningshreppur óskar eftir umsögn um eftirfarandi mál í Skipulagsgátt: Biskupstungnabraut og Þingvallavegur; Hjólastígar; Aðalskipulagsbreyting - 2509014, nr. 1397/2025: Auglýsing tillögu (Breyting á aðalskipulagi)
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við skipulagstillöguna.

28.Tækifærisleyfi vegna Lionsþings á Laugarvatni

2605012

Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 06.05.2026, um umsögn um tækifærisleyfi til áfengisveitinga.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

29.Skráning lögbýlis Berghof 3 L218587

2605017

Beiðni Péturs H. Halldórssonar, dags. 28.04.2026, um umsögn um umsókn um skráningu lögbýlis að Berghofi 3 L218587
Beiðni var lögð fram um umsögn um umsókn um skráningu lögbýlis að Berghofi 3 L 218587. Sveitarstjórn samþykkir að taka málið til afgreiðslu samhliða afgreiðslu fundargerðar skipluagsnefndarfundar frá því í morgun.

30.Nýting Lindarbrautar 4 fyrir hjúkrunarrými

2604052

Erindi til mennta- og barnamálaráðuneytisins og félags- og húsnæðismálaráðuneytisins, dags. 30.04.2026
Erindi Bláskógabyggðar til þeirra ráðuneyta sem fara með húsnæðismál hjúkrunarheimila var lagt fram. Þar er óskað eftir því að brugðist verði hratt við og skoðað hvort hægt sé að nýta húsnæðið sem hjúkrunarheimili, áður en eignarhald þess færist frá ríkinu.

31.Orlof húsmæðra 2025

2605008

Skýrsla og ársreikningur húsmæðraorlofs.
Gögnin voru lögð fram til kynningar.

32.Staða húsnæðisuppbyggingar

2605009

Erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, dags. 08.05.2026, þar sem boðað er að stofnunin muni funda með sveitarfélögum á næstu misserum.
Erindið var lagt fram til kynningar.

33.Vegvísir að framtíðarskipulagi slökkviliða

2605010

Erindi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, dags. 07.05.2026, á kynningarfund um vegvísi að framtíðarskipulagi slökkviliða.
Erindið var lagt fram til kynningar.

34.Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands 2026

2605011

Boð á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands sem haldinn verður 27.05.2026.
Fundarboðið var lagt fram. Sveitarstjórn felur Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, að sækja fundinn og fara með atkvæði sveitarfélagsins.

35.Ársfundur Náttúruhamfaratryggingar Íslands

2605016

Boð á ársfund Náttúruhamfaratryggingar Íslands sem haldinn verður 21.05.2026
Fundarboðið var lagt fram.

36.Ársskýrsla Náttúrufræðistofnunar Íslands

2605013

Ársskýrsla Náttúrufærðistofnunar Íslands
Ársskýrslan var lögð fram.

37.100 ára afmæli Reykholts

2605019

100 ára afmæli Reykholts, afhjúpun söguskilta og söguganga
Sveitarstjórn þakkar þeim aðilum sem staðið hafa að uppsetningu söguskilta og undirbúningi afmælishátíðar fyrir framtakið.

Fundi slitið - kl. 13:20.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?