Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

411. fundur 20. maí 2026 kl. 09:00 - 11:00 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Sveinn Ingi Sveinbjörnsson Aðalmaður
  • Guðrún S. Magnúsdóttir Aðalmaður
  • Guðni Báruson Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Hildur Hálfdanardóttir Varamaður
    Aðalmaður: Stephanie E. M. Langridge
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

324. fundur haldinn 13.05.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 2-10.
-liður 2, Lækjargata 6 (L186577); byggingarheimild; sumarhús - 2604080
Móttekin var umsókn þann 28.04.2026 um byggingarheimild fyrir 93,6 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Lækjargata 6 (L186577) í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.


-liður 3, Varmagerði L167143; Fjölgun gistirýma; Aðalskipulagsbreyting - 2605009
Lögð er fram fyrirspurn um óverulega aðalskipulagsbreytingu sem tekur til verslunar og þjónustulóðarinnar Varmagerðis VÞ38, L167143, í Bláskógabyggð. Breytingin felur í sér að heimilt verði að byggja upp starfsemi Retreat center/ jóga- og heilsumiðstöðvar og bjóða upp á gistingu fyrir um 25-30 manns í svokölluðu starfsmannahúsi á lóðinni sem er um 200fm að stærð.
Sveitarstjórnar Bláskógabyggðar heimilar að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að aðalskipulagsbreytingu og leggi fyrir skipulagsnefnd.


-liður 4, Varmagerði L167143; Fjölgun gistirýma; Deiliskipulagsbreyting - 2605040
Lögð er fram fyrirspurn um óverulega deiliskipulagsbreytingu sem tekur til verslunar og þjónustulóðarinnar Varmagerðis VÞ38, L167143, í Bláskógabyggð. Breytingin felur í sér að heimilt verði að byggja upp starfsemi Retreat center/ jóga- og heilsumiðstöðvar og bjóða upp á gistingu fyrir um 25-30 manns í svokölluðu starfsmannahúsi á lóðinni sem er um 200fm að stærð.
Sveitarstjórnar Bláskógabyggðar heimilar að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að deiliskipulagsbreytingu og leggi fyrir skipulagsnefnd.


-liður 5, Skálabrekka L170163; Aðkomuvegur, vatnsból; Gisting í fl. I og II; Deiliskipulagsbreyting - 2602022
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir grenndarkynningu, sem tekur til frístundabyggðarinnar Selgils, L170163 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýjum aðkomuvegi og vatnstökusvæði. Jafnframt verður heimiluð gisting í flokki I og II innan frístundabyggðarinnar. Með þessum breytingum stækkar deiliskipulagssvæðið úr 25 ha í 30 ha, eða um 5 ha. Umsagnir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir grenndarkynningu. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Gögnin verði send Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


-liður 6, Þingvellir L170169; Göngu- og reiðstígar; Framkvæmdarleyfi - 2604076
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Þingvalla L170169 í Bláskógabyggð. Í framkvæmdinni felst lagning á fjölnota göngu- og reiðstíg innan þjóðgarðsins á Þingvöllum. Leiðin er samþykkt og hluti af nýjasta deiliskipulagi þjóðgarðsins á Þingvöllum. Leiðin er staðsett ofan Almannagjár og er um 700-800 metra löng. Hún mun liggja frá núverandi bílastæði við Langastíg til norðausturs að fyrirhugaðri miðstöð ofan Tæpastígs.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.


-liður 7, Hrísholt 3-3a L189917; Leiðréttar lóðastærðir; Deiliskipulagsbreyting - 2604077
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hrísholts 3 L189917 í Bláskógabyggð. Staðfangi fyrir lóðina Hrísholt 3 er breytt í Hrísholt 3 - 3a. Stærð lóðar er leiðrétt á deiliskipulagsuppdrætti til samræmis við stærð í merkjalýsingu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.


-liður 8, Hálshúsavegur 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III; Breytt afmörkun lóða; Deiliskipulagsbreyting - 2605022
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Hálshúsavegar 4-6 L167695 í landi Austureyjar I og III í Bláskógabyggð. Tilgangur deiliskipulagsbreytingarinnar er að breyta afmörkun lóða þannig að núverandi bygging sé innan byggingarreits og að bæta við hnitaskrá. Einnig er breytt byggingarheimildum lóðanna.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.


-liður 9, Fellskot L167087; Breyting á byggingarreitum og byggingargerð; Deiliskipulagsbreyting - 2605017
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Fellskots L167087 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst meðal annars að 1.600 fm lóð undir reiðhöll er felld út og þess í stað skilgreindur byggingarreitur fyrir reiðhöll, þannig að hún geti verið sambyggð útihúsum sem þegar hafa verið reist á svæðinu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn


-liður 10, Berghof 3 L218587; Stækkun lóðar og byggingarreits; Fyrirspurn - 2605018
Lagt er fram erindi þar sem óskað er eftir að vinna óverulega deiliskipulagsbreytingu sem tekur til Berghofs 3 L218587 í Bláskógabyggð. Óskað er eftir að byggingarskilmálum verði breytt svo þeir verði í samræmi við breytta landnotkun úr frístundabyggð í landbúnaðarland.
Sveitarstjórn tekur vel í erindið og hvetur viðkomandi til að senda inn tillögu að deiliskipulagsbreytingunni.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)

2602043

135. fundur haldinn 13.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

3.Fundargerð öldungaráðs Uppsveita og Flóa

2603023

6. fundur haldinn 08.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

4.Fundargerðir stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

2602015

218. fundur haldinn 05.05.2026

219. fundur haldinn 08.05.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

5.Reglur um skólaakstur

2108013

Uppfærðar reglur um skólaakstur
Reglurnar verða teknar fyrir á fundi sveitarstjórnar í ágúst.

6.Hverabraut 16-18, Laugarvatni, sala

2306019

Torfi Ragnar Sigurðsson, lögmaður, kom inn á fundinn undir þessum lið í gegnum fjarfundabúnað (Teams). Umræða varð um málið.
Lagt var til að sveitarstjórn feli Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, og Torfa Ragnari Sigurðssyni, lögmanni, að vinna að samningi við kaupendur í samræmi við umræður á fundinum. Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt með fimm atkvæðum gegn atkvæðum Önnu Gretu og Hildar.

7.Þjóðlenda Geldingafell 1 til úthlutunar

2602020

Umsóknir um lóðina Geldingafell 1, ásamt lóð fyrir íshelli, áður á dagskrá á 410. fundi.
Umsóknir Arctic adventures/Straumhvarfs ehf og Jöklaferða ehf ásamt fylgiskjölum eru lagðar fram, auk minnisblaða frá viðtölum og öðrum upplýsingum frá umsækjendum.
Sveitarstjórn telur umsóknir beggja aðila fullnægjandi. Umsækjendur hafa gert grein fyrir þeim atriðum sem tiltekið var í auglýsingu að litið yrði til við mat umsókna, svo sem um þekkingu á svæðinu, fyrirhugaða nýtingu lóðanna, frágang mannvirkja, þekkingu af rekstri á sviði ferðaþjónustu, gæða- og öryggiskerfi og leiðir til að takmarka álag á umhverfi. Umsækjendur gerðu góða grein fyrir fyrirhugaðri nýtingu lóðanna og öðrum atriðum sem kallað var eftir upplýsingum um. Sveitarstjórn telur báða aðila uppfylla kröfur þær sem gerðar voru í umsókn hvað þessi atriði varðar.
Arctic adventures ehf bjóða kr. 12.000.000 í ársleigu og Jöklaferðir ehf bjóða kr. 4.750.000 í ársleigu. Lágmarksleiga var tilgreind 4.500.000 kr. Báðir aðilar óska eftir samningi til 25 ára.
Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til Arctic adventures/Straumhvarfs ehf og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við félagið.

8.Þjóðlenda Geldingafell 2 til úthlutunar

2602021

Umsóknir um lóðina Geldingafell 2, ásamt lóð fyrir íshelli, áður á dagskrá á 410. fundi.
Umsóknir Jöklaferða ehf, Hvataferða ehf og Arctic adventures/Straumhvarfs ehf ásamt fylgiskjölum eru lagðar fram, auk minnisblaða frá viðtölum og öðrum upplýsingum frá umsækjendum. Arctic adventures/Straumhverf ehf sækir um lóðina til vara og þar sem sveitarstjórn hefur úthlutað lóðinni Geldingafelli 1 til félagsins er umsókn Arctic adventures/Straumhvarfs ehf ekki tekin til meðferðar varðandi Geldingafell 2.
Sveitarstjórn telur umsóknir beggja aðila fullnægjandi. Umsækjendur hafa gert grein fyrir þeim atriðum sem tiltekið var í auglýsingu að litið yrði til við mat umsókna, svo sem um þekkingu á svæðinu, fyrirhugaða nýtingu lóðanna, frágang mannvirkja, þekkingu af rekstri á sviði ferðaþjónustu, gæða- og öryggiskerfi og leiðir til að takmarka álag á umhverfi. Umsækjendur gerðu góða grein fyrir fyrirhugaðri nýtingu lóðanna og öðrum atriðum sem kallað var eftir upplýsingum um. Sveitarstjórn telur báða aðila uppfylla kröfur þær sem gerðar voru í umsókn hvað þessi atriði varðar.
Hvataferðir ehf bjóða kr. 4.600.000 í ársleigu og Jöklaferðir ehf bjóða kr. 4.750.000 í ársleigu. Lágmarksleiga var tilgreind 4.500.000. Báðir aðilar óska eftir samningi til 25 ára.
Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til Jöklaferða ehf. Sveitarstjórn felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við félagið.

9.Úttekt á upplýsingatækniumhverfi Bláskógabyggðar

2605024

Tilboð í úttekt á upplýsingatækniumhverfi Bláskógabyggðar.
Lagt var fram tilboð trigger ráðgjafar ehf, dags. 12.05.2026, vegna ráðgjafar tengt upplýsingatækniumhverfi sveitarfélagsins. Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboðinu, kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

10.Styrkbeiðni Klúbbsins Stróks 2026

2605025

Styrkbeiðni, dags. 13.05.2026
Styrkbeiðnin var lögð fram. Virknimiðstöðin óskar eftir styrk til endurnýjunar á skrifborðsstólum í iðju. Sveitarstjórn samþykkir að styrkja verkefnið um 15.000 kr.

11.Skráning lögbýlis Berghof 3 L218587

2605017

Beiðni Péturs H. Halldórssonar, dags. 28.04.2026, um umsögn um umsókn um skráningu lögbýlis að Berghofi 3 L218587. Áður á dagskrá á 410. fundi.
Umsagnarbeiðnin var lögð fram. Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.

12.Ársreikningur Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita 2025

2605023

Ársreikningur Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita fyrir árið 2025.
Ársreikningurinn var lagður fram.

Fundi slitið - kl. 11:00.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?