Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerðir skipulagsnefndar
2601004
327. fundur haldinn 10.06.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 2-8.
328. fundur haldinn 24.06.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3-7.
328. fundur haldinn 24.06.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3-7.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
81. fundur haldinn 18.06.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 3, 8, 10, 12, 15, og 21.
-liður 3, 2503035 virkjun borholu á Laugarvatni. Oddviti og formaður framkvæmda- og veitunefndar gerðu grein fyrir stöðu málsins. Samkvæmt samþykktu deiliskipulagi er gert ráð fyrir húsinu framan við Menntaskólann. Sveitarstjórn hugnast betur að staðsetja dæluhúsið við íþróttavöllinn, einnig geti sú staðsetning nýst sem aðstaða við íþróttavöllinn. Huga þarf vel að samráði við nágranna í tengslum við þá skipulagsvinnu sem þarf að eiga sér stað.
-liður 8, 2503037, ljósleiðaravæðing Bláskógaveitu, Stefanía Hákonardóttir vék af fundi við afgreiðslu málsins. Framkvæmda- og veitunefnda leggur til við sveitarstjórn að tekið verði tilboði Véldurgs ehf í verkið samtenging á veitumannvirkjum og fleiri mannvirkjum í Bláskógabyggð, tilboðið nemur kr. 16.413.260. Sveitarstjórn samþykkir að tilboðinu verði tekið. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
-liður 10, 2511022, tilboð i verkið Traustatún - Herutún, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að tilboði Íshnits ehf verði vísað frá. Minnisblað Lögmanna Suðurlandi, dags. 18.06.2026 um mat á því hvort lægstbjóðandi, Íshnit ehf, uppfylli þær kröfur sem gerðar eru um fag- og tæknilega getu vegna verksins, í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til bjóðenda í útboðslýsingu liggur fyrir. Sveitarstjórn samþykkir að tilboði Íshnits ehf verði vísað frá með vísan til þeirrar meginreglu sem mótast hefur í úrskurðum kærunefndar útboðsmála að þegar gerðar séu kröfur í útboðsskilmálum um að bjóðendur uppfylli ákveðin skilyrði um hæfi, hvort heldur hæfiskröfur eru fjárhagslegar eða tæknilegar, verði þeir að uppfylla slíkar hæfiskröfur áður en tilboð eru opnuð.
Frestur Ketilbjarnar, sem átti næstlægsta boð í verkið, til að skila inn upplýsingum um fyrirtækið rennur út síðar í dag. Sveitarstjórn samþykkir að hagstæðasta tilboði í verkið, frá bjóðanda sem uppfyllir hæfiskröfur útboðsgagna, verði tekið og felur sveitarstjóra að tilkynna um töku tilboðs þegar niðurstöður liggja fyrir.
-liður 12, 2606004, lausar kennslustofur við Bláskógaskóla. Fyrir liggur tilboð í kennslustofu, annars vegar miðað við leigu og hins vegar miðað við kaup á stofunni. Sveitarstjórn samþykkir að kaupa kennslustofu í samræmi við tilboðið og að henni verði komið fyrir við Bláskógaskóla. Um er að ræða lausn til bráðabirgða á meðan unnið er að hönnun og byggingu viðbyggingar við skólann. Kostnaður við kaup, undirlag og tengingar er áætlaður 22 millj.kr. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
-liður 15 2606003, ræsi fyrir reiðleið við Laugarvatn. Framkvæmda- og veitunefnd vísaði til sveitarstjórnar erindi Vegagerðarinnar, dags. 12.06.2026, þar sem Vegagerðin fer þess á leit að sveitarfélagið taki á sig efniskostnað vegna ræsis undir Laugarvatnsveg við fyrirhugað hesthúsahverfi á Laugarvatni. Efniskostnaður er áætlaður um 7 millj.kr. Vegagerðin greiði vinnulið verksins. Sveitarstjórn hafnar því að greiða umræddan kostnað, enda heyra verkefni af þessu tagi undir Vegagerðina. Sveitarstjórn hvetur Vegagerðina til þess að gera umrætt ræsi, samhliða öðrum framkvæmdum sem nú er verið að ráðast í á vegarkaflanum við Laugarvatn. Mikilvægt er að tryggja öryggi á svæðinu, enda er vegurinn afar fjölfarinn.
-liður 21, 2606006, frisbívöllur á Laugarvatni. Erindi verkefnisstjóra Heilsueflandi samfélags/íþróttafulltrúa um staðsetningu frisbívallar var vísað til sveitarstjórnar af framkvæmda- og veitunefnd. Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

3.Fundargerð ungmennaráðs
2501007
Ungmennaráðstefna 05.12.2025
Fundargerðin var lögð fram.
4.Fundargerðir ungmennaráðs
2606019
Fundur haldinn 30.01.2026
Fundur haldinn 06.03.2026
Fundur haldinn 06.03.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram.
5.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
252. fundur haldinn 03.06.2026
253. fundur haldinn 10.06.2026
254. fundur haldinn 18.06.2026
255. fundur haldinn 24.06.2026
253. fundur haldinn 10.06.2026
254. fundur haldinn 18.06.2026
255. fundur haldinn 24.06.2026
14. liður á 252. fundi er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá mál nr. 32.
17. liður á 254. fundi er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá mál nr. 31.
20. liður á 255. fundur er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá mál nr. 33.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

6.Fundargerðir stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)
2602043
1. fundur haldinn 10.06.2026
2. fundur haldinn 24.06.2026
2. fundur haldinn 24.06.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
7.Aukaaðalfundur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings
2606026
Aukaaðalfundur haldinn 18.06.2026
Liður 2 á dagskrá fundarins er sérstakt mál á dagskrá þessa fundar, sjá 24. lið.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Fundargerð stjórnar Bergrisans
2602007
94. fundur haldinn 15.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Aukaaðalfundur Bergrisans bs
2606023
Aukaaðalfundur haldinn 15.06.2026
Liður 7 á dagskrá fundarins er sérstakt mál á dagskrá þessa fundar, sjá lið 29.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga
2601057
Fundur haldinn 08.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
11.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands
2601058
255. fundur haldinn 04.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
12.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2601056
999 fundur haldinn 28.05.2026
1.000 fundur haldinn 09.06.2026
1.000 fundur haldinn 09.06.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
13.Fundargerðir stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
2601026
636. fundur haldinn 08.05.2026
637. fundur haldinn 05.06.2026
637. fundur haldinn 05.06.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
14.Aðalfundur Eignarhaldsfélags Suðurlands
2605011
Aðalfundur haldinn 27.05.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
15.Aðalfundur Vottunarstofunnar Túns ehf
2605040
Aðalfundur haldinn 04.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
16.Deiliskipulagsbreyting Skálabrekka Vestri
2606030
Deiliskipulagsbreyting, Skálabrekka-Vestri, í tillögunni er ráð fyrir breytingum á legu og stærð lóða á svæðinu, auk þess sem lóðum er fjölgað úr 21 í 23. Tillaga um afturköllun auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda og að auglýsing verði birt að nýju. Áður á dagskrá á 403. fundi.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku Vestri, ásamt umsögnum og uppfærðum gögnum. Einnig lögð fram athugasemd HMS vegna fyrra ósamræmis við aðalskipulag.
Breyting á aðalskipulagi hefur nú öðlast gildi en í samræmi við 2. mgr. 41. gr. skipulagslaga ber að auglýsa deiliskipulagið að nýju, og að afturkalla gildandi auglýsingu í B-deild Stjórnartíðinda, loka fyrirliggjandi máli og stofna nýtt mál til endurauglýsingar. Tryggð verði tenging milli málanna. Fyrri umsagnir og athugasemdir sem borist hafa á fyrri stigum málsins teljast áfram gildar og þarf ekki að skila þeim inn að nýju.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir hér með að fella úr gildi auglýsingu um breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku Vestri sem birt var í B-deild Stjórnartíðinda hinn 11. maí 2026, sjá auglýsingu nr. 567/2026, vegna formgalla á málsmeðferð. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggja fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.

17.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2026-2030
2605032
Kjör fulltrúa í undirkjörstjórn - Biskupstungur (einn aðalmaður)
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
18.Lóðarumsókn Traustatún 24, Laugarvatni
2606018
Umsókn Auðar Evu Ásberg Auðunsdóttur um lóðina Traustatún 24, Laugarvatni.
Lóðin hefur verið auglýst laus til úthlutunar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til Auðar Evu Ásberg Auðunsdóttur.
19.Vegholt 12 og 14, Reykholti, til úthlutunar
2606020
Tillaga um að lóðir nr. 12 og 14 við Vegholt í Reykholti verði auglýstar lausar til úthlutunar.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að lóðir nr. 12 og 14 við Vegholt verði auglýstar lausar til úthlutunar. Áskilið verði að umsækjendur geri ítarlega grein fyrir byggingaráformum og tekið verði mið að því við úthlutun lóðanna.
20.Beiðni um aðstöðu vegna kvikmyndaverkefnis
2606025
Beiðni, dags. 11.06.2026, um heimild til að hafa eldhúsaðstöðu við veg að Króktjörnum og Hvalvatni.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að eldhúsaðstaða vegna kvikmyndaverkefnis verði á slóða að Króktjörnum og Hvalvatni dagana 8. júlí til 18. júlí. Umferð um slóðann verði ekki heft og gengið verði snyrtilega frá svæðinu að verkefninu loknu.
21.Rallaksturskeppni 2026
2606032
Beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, dags. 22.06.2026, um leyfi til að halda rallaksturskeppni í Bláskógabyggð þann 27. júní nk.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti, en leggur áherslu á að erindi berist með meiri fyrirvara. Áhersla er á að gengið verði vel frá merkingum og að vel verði gengið frá svæðinu að keppni lokinni.
22.Matarhátíð í Laugarási
2606031
Beiðni Hagsmunafélags Laugaráss, dags. 22.06.2026, um styrk til að halda matarhátíð í Laugarási. Sótt er um styrk vegna kostnaðar sem áætlaður er kr. 350.000.
Erindið var lagt fram. Þar kemur fram að áform séu um að halda matarhátíð í Laugarási 29. ágúst n.k. Óskað er eftir styrk til verkefnisins. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk til verkefnisins. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
23.Mannvirki að Laugargerði, plastmengun og fok
2411027
Erindi lögmanns aðila, dags. 09.06.2026, um gerð nýs lóðarleigusamnings, með skilmálum um riftunarheimild.
Erindi lögmanns aðila var lagt fram. Þar kemur fram tillaga um að gerður verði hefðbundinn samningur til 50 ára með skilmálum um að sveitarfélagið hafi heimild til riftunar með tilteknum skilmálum.
Sveitarstjórn hafnar tillögunni og áréttar fyrri ákvörðun um rýmingu lóðarinnar.
Sveitarstjórn hafnar tillögunni og áréttar fyrri ákvörðun um rýmingu lóðarinnar.
24.Stofnsamningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs
2606033
Tillaga að breytingum á stofnsamningi SVÁ, fyrri umræða.
Starfsreglur stjórnar, til kynningar.
Starfsreglur stjórnar, til kynningar.
Tillaga að breytingum á stofnsamningi var lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir að vísa tillögunum til síðari umræðu.
Starfsreglur stjórnar voru kynntar.
Starfsreglur stjórnar voru kynntar.
25.Samþykkt um stjórn og fundarsköp Bláskógabyggðar
2604040
Tillaga um breytingar á samþykktum um stjórn Bláskógabyggðar, síðari umræða
Tillaga að breytingum á samþykktum sveitarfélagsins var lögð fram til síðari umræðu. Sveitarstjórn samþykkir breytingarnar samhljóða.
26.Breytingar á rekstri landsbyggðarvagna (strætó)
2606024
Tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 15.06.2026, um að þær breytingar verði á leið 72 og 73 (Selfoss-Reykholt) að rekstri annarrar akstursleiðar verði hætt.
Tilkynning Vegagerðarinnar var lögð fram. Oddviti gerði grein fyrir fundi SASS og sveitarfélaganna sem málið varðar með Vegagerðinni sem haldinn var í vikunni.
Sveitarstjórn undrast að ekki skuli hafa verið haft samráð við sveitarfélögin vegna fyrirhugaðra breytinga. Sveitarstjórn telur að mikilvægt sé að halda óbreyttri akstursáætlun, enda kom akstur strætó á umræddri leið í stað skólaaksturs FSu á sínum tíma og óásættanlegt er að fella aksturinn niður.

27.Útsvarstekjur 2026
2603005
Yfirlit yfir útsvarstekjur janúar til júní 2026
Yfirlitið var lagt fram.
28.Viðauki við fjárhagsáætlun
2603004
Viðauki nr. 4 við fjárhagsáætlun 2026
Viðauki við fjárhagsáætlun var lagður fram. Helstu breytingarnar á rekstri eru hjá eignasjóði og Bláskógaveitu, samtals 41 millj.kr. aukning rekstrarútgjalda. Auk þess hækkar fjárfesting ársins um 40 millj.kr., sem skiptist á eignasjóð, fráveitu, vatnsveitu og Bláskógaveitu, og er útgjaldaauka, alls 81 millj.kr. mætt með lækkun á handbæru fé.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.
29.Samkomulag um þjónustu við börn með fjölþættan vanda
2506045
Tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 23.06.2026, um vanefndir á samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um breytta ábyrgðarskiptingu í málefnum barna með fjölþættan vanda
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur undir bókun aukaaðalfundar Bergrisans bs frá 15. júní 2026. Sveitarstjórn lýsir yfir þungum áhyggjum af nýrri reglugerð mennta- og barnamálaráðuneytisins sem gengur gegn samkomulagi ríkis og sveitarfélaga frá 19. mars 2025 um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Með reglugerðinni hefur ríkið einhliða þrengt skilgreiningu á hópnum sem skilur þannig eftir ábyrgð og kostnað hjá sveitarfélögum sem á grundvelli samkomulagsins á heima hjá ríkinu.
Sveitarstjórn telur breytinguna óásættanlega, án fullnægjandi faglegra raka og fela í sér alvarlegan trúnaðarbrest af hálfu ríkisins gagnvart sveitarfélögum. Skorað er á ráðuneytið að afturkalla reglugerðina og taka þá ábyrgð og skuldbindingu sem samið var um.

30.Hverabraut 16-18, Laugarvatni, sala
2306019
Tillaga um að fasteignin Hverabraut 16-18 verði auglýst til sölu að nýju.
Lagt var til að fasteignin Hverabraut 16-18 verði auglýst til sölu að nýju. Sveitarstjórn samþykkir að auglýsa fasteignina til sölu. Bjóðendur geri grein fyrir áformum um nýtingu hússins og tekið verði mið af því við mat tilboða.
31.Rekstrarleyfisumsókn Torfholt 16 F2206362
2606022
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 08.06.2025 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 02 0101 íbúðarherbergi á hæð frá Hildi Hálfdanardóttur fyrir hönd Torf 16 slf., kt. 600526 - 0570 á íbúðarhúsalóðinni Torfholt 16 (F220 6362) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
32.Rekstrarleyfisumsókn Launrétt 4 L167386
2606029
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 13.05.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Magnúsi Júlíussyni fyrir hönd Alnitak ehf., kt. 510816 - 0560 á viðskipta- og þjónustulóðinni Launrétt 4 (F220 5534) í Bláskógabyggð.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
33.Rekstrarleyfisumsókn Magnúsarbraut 10 252 9442
2606035
Erindi sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 11.06.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Silviu Popescu fyrir hönd SB 19 sf., kt. 611019 - 2460 á sumarbústaðalandinu Magnúsarbraut 10 (F252 9442) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
34.Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu Biskupstungnabraut um Geysissvæðið
2603059
Ákvörðun Skipulagsstofnunar, dags. 19.06.2026, um matsskyldu vegna breytingu á legu Biskupstungnabrautar um Geysissvæðið í Bláskógabyggð.
Tilkynning Skipulagsstofnunar var lögð fram. Þar kemur fram að stofnunin telji breytingarnar háðar mati á umhverfisáhrifum.
35.Kærur vegna deiliskipulags Heiðarbæjar frá 29.04.2026
2605035
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12.06.2026, í máli nr. 2602004.
Úrskurðurinn var lagður fram til kynningar.
36.Úti- og bæjarhátíðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi
2604037
Bréf lögreglustjóra, dags. 08.06.2026, ásamt skýrslu vinnuhóps Öruggara Suðurlands um úti- og bæjarhátíðir í umdæmi lögreglustjórans á Suðurlandi.
Skýrslan var lögð fram til kynningar. Sveitarstjórn samþykkir að vísa skýrslunni til lýðheilsu- og menningarmálanefndar og ungmennaráðs til kynningar.
37.Íþróttavika Evrópu 2026
2606028
Tilkynning Íþrótta- og ólympíusambands Íslands, dags. 05.06.2026, um að opnað hafi verið fyrir umsóknir um styrk vegna Íþróttaviku Evrópu 2026.
Tilkynningin var lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir að vísa erindinu til verkfnastjóra heilsueflandi samfélags/íþróttafulltrúa og lýðheilsu- og menningarmálanefndar.
38.Áhersluatriði Landssambands eldri borgara
2606034
Erindi Landssambands eldri borgara, dags. 23.06.2026, varðandi áhersluatriði sambandsins og skipan öldungaráða.
Erindið var lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 09:50.
-liður 2, Höfðalönd II L211607; Staðfest afmörkun; Aðalskipulagsbreyting - 2605061
Lögð er fram fyrirspurn fyrir Höfðalönd II L211607 í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni felst að óskað er eftir breytingu á aðalskipulagi og gerð deiliskipulags á landinu. Í breytingunni felst að hluta landsins er breytt í verslunar- og þjónustusvæði.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í fyrirspurnina og mælist til þess að unnin verði skipulagslýsing sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 3, Syðri-Reykir lóð L167456; Frístundasvæði; Deiliskipulag - 2509080
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, sem tekur til frístundalóða innan frístundasvæðis F45 í landi Syðri-Reykja í Bláskógabyggð. Í deiliskipulaginu felst að skilgreindar eru fimm lóðir og byggingarreitur á öllum lóðum nema einni. Umsagnir ásamt athugasemdum frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum og athugasemdum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 4, Einiholt 2 L180525; Skilgreining svæðis, íbúðar- og atvinnuhús; Deiliskipulag - 2512017. Kristján Einir Traustason vék af fundi undir þessum lið.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir kynningu, fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjatorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni. Umsagnir og athugasemdir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
-liður 5, Laugarvatn, Fontana; Afmörkuð bílastæðalóð; Lindarbraut 9; Deiliskipulagsbreyting - 2605096
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi þéttbýlisins á Laugarvatni í Bláskógabyggð. Afmörkuð er ný lóð milli Lindarbrautar 7a-7b og Hverabrautar 1. Lóðin fær staðfangið Lindarbraut 9. Innan lóðar eru bílastæði. Ekki eru heimilaðar byggingar á lóðinni.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
-liður 6, Bjarkarbraut 5 L167829; Nýting lóðar og stækkun byggingarreits; Deiliskipulagsbreyting - 2605097
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Bjarkarbrautar 5, L167829 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst breytt notkun á núverandi húsi á lóðinni. Auk þess er byggingarreitur stækkaður um 1,5 m til að gefa eðlilegt pláss fyrir að byggja megi geymslu/vinnustofu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
-liður 7, Bjarkarbraut 4 (L224445); byggingarleyfi fjölbýli - 2605054
Móttekin var umsókn þann 15.05.2026 um byggingarleyfi fyrir 596 m² sex íbúða fjölbýli á íbúðarhúsalóðinni Bjarkarbraut 4 L224445 í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 8, Litla-Fljót 3 L209360; Stækkun lóðar; Deiliskipulagsbreyting - 2606008
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Litla-Fljóts 3 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að lóðin stækki um 7.506,3 m² og byggingarreitur lóðarinnar breytist í samræmi við það.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
328. fundur haldinn 24.06.2026:
-liður 3, Móakot (L241025); byggingarheimild; sumarhús - 2606036
Móttekin var umsókn þann 08.06.2026 um byggingarheimild fyrir 101 m2 sumarhúsi á sumarbústaðalandinu Móakot (L241025) í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
-liður 4, Fellskot 4 L236186 og Fell L236186; Staðfest mörk lóða - 2606057
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 10.03.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024. Óskað er eftir leiðréttingu á mörkum milli Fellskots 4 og Fells. Einnig er skilgreind markalína á milli Fells og Vatnsleysu 1.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við leiðréttingu á mörkum milli Fellskots 4 og Fells og skilgreindar markalínu á milli Fells og Vatnsleysu 1 skv. fyrirliggjandi umsókn og samþykkir erindið.
-liður 5, Stakksárhlíð 8 L217511; Lagfæring á deiliskipulagi; Fyrirspurn - 2606014
Lögð er fram fyrirspurn er varðar deiliskipulag Stakksárhlíðar. Í fyrirspurninni er óskað eftir afstöðu til breytinga á lóðamörkum Stakksárhlíðar 6 og 8 og skiptingar Stakksárhlíðar 2 í tvær lóðir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í beiðni um breytingu á lóðarmörkun milli Stakksárhlíðar 6 og 8 og bendir á að samhliða breytingu á deiliskipulagi þurfi að skila inn merkjalýsingu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hafnar beiðni um breytingu á deiliskipulagi sem tekur til heimildar fyrir uppskiptingu lóðar. Að mati sveitarstjórnar er ein af forsendum deiliskipulagsáætlunar svæðisins fjöldi lóða innan þess m.t.t. innviða. Heimild fyrir uppskiptingu einnar lóðar veiti fordæmi fyrir öðrum lóðarhöfum innan svæðisins til að skipta sambærilegum lóðum upp í tvær lóðir með tilheyrandi fjölgun húsa innan svæðisins. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að mörkuð verði stefna um uppskiptingu lóða innan frístundasvæða.
-liður 6, Snorrastaðir L168101; Afmarkaðar 4 lóðir og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting - 2606062
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Snorrastaða L168101 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að afmarkaðar eru 4 lóðir og settir byggingarskilmálar í samræmi við stefnu aðalskipulags fyrir frístundabyggð. Svæðið sem breytingin nær til er 2,3 ha.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
-liður 7, Laugarvatn L224243; Hleðslustöð á tjaldstæði, afmörkuð lóð; Deiliskipulagsbreyting - 2606052
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til tjaldstæðis á Laugarvatni L224243, í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að við aðkomu að tjaldstæðinu er afmörkuð lóð þar sem heimilt er að vera með rafhleðslustæði, og svæði fyrir hestagerði er fært fjær Laugarvatnsvegi.
Sveitarstjórn Bláskógarbyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar hvað aðra liði varðar.