Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
329. fundur haldinn 08.07.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 2 til 5.
2.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
256. fundur haldinn 01.07.2026
257. fundur haldinn 08.07.2026
258. fundur haldinn 15.07.2026
257. fundur haldinn 08.07.2026
258. fundur haldinn 15.07.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
Mál nr. 17, 18 og 19 á dagskrá 256. fundar eru sérstakir liðir á dagskrá fundarins, sjá 27 til 29. lið.
Mál nr. 12 á dagskrá 257. fundar er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá 25. lið.
Mál nr. 12 á dagskrá 258. fundar er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá 26. lið.
Mál nr. 17, 18 og 19 á dagskrá 256. fundar eru sérstakir liðir á dagskrá fundarins, sjá 27 til 29. lið.
Mál nr. 12 á dagskrá 257. fundar er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá 25. lið.
Mál nr. 12 á dagskrá 258. fundar er sérstakur liður á dagskrá fundarins, sjá 26. lið.
3.Aukaaðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
2604007
Aukaaðalfundur haldinn 29.04.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
4.Aðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs
2604048
Aukaaðalundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
5.Aðalfundur Listasafns Árnesinga bs
2604046
Aukaaðalfundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
6.Aðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga
2604047
Aukaaðalfundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
7.Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs
2604045
Aukaaðalfundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Aðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs
2604044
Aukaaðalfundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Aðalfundur Héraðsnefndar Árnesinga bs
2604043
Aukaaðalfundur haldinn 29.06.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Fundargerð heilbrigðisnefndar Suðurlands
2601058
256. fundur haldinn 27.07.2026, ásamt ársskýrslu.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
11.Útboð á sorphirðu 2021
2008049
Tillaga um að nýtt verði heimild í útboði frá 2021 til að framlengja samning við Íslenska gámafélagið ehf um eitt ár, eða til 30. september 2027.
Sveitarstjórn samþykkir að nýta heimild í samningi aðila um sorphirðu í Bláskógabyggð til að framlengja núgildandi samning um eitt ár, eða til 30. september 2027.
12.Útboð sorphirðu 2027
2606039
Tillaga um að hafinn verði undirbúningur að útboði sorphirðu.
Sveitarstjórn samþykkir að hafinn verði undirbúningur að útboði á sorphirðu fyrir sveitarfélagið. Stefnt verði að því að útboð verði auglýst fyrir árslok.
13.Endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga
2607009
Erindi innviðaráðuneytisins, dags. 06.07.2026 um endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga.
Erindið var lagt fram. Þar kemur fram að innviðaráðuneytið hefur ýtt úr vör vinnu við endurskoðun stefnumótandi áætlunar í málefnum sveitarfélaga þar sem fyrsta skrefið er gerð grænbókar um málefnið og er sveitarfélögum sendur spurningalisti vegna verkefnisins.
Sveitarstjóra er falið að svara fram komnum spurningum.
Sveitarstjóra er falið að svara fram komnum spurningum.
14.Fýsileikakönnun um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu
2607013
Erindi SASS, dags. 02.07.2026, varðandi almenningssamgöngur í Árnessýslu, skýrsla um Fýsileikakönnun um samþættan sérakstur og almenningssamgöngur í Árnessýslu.
Erindið var lagt fram ásamt skýrslunni, þar koma fram ýmsar leiðir sem hægt er að fara til þess að auka nýtingu og gera kerfið skilvirkara. Oddvita og sveitarstjóra er falið að ræða við SASS um möguleika á úrbótum í samræmi við tillögur í skýrslunni.
15.Breytingar á rekstri landsbyggðarvagna (strætó)
2606024
Breytingar á leiðakerfi strætó í Uppsveitum, erindi Vegagerðarinnar frá 2. júlí 2026.
Erindið var lagt fram. Þar kemur fram að Vegagerðin leggi til að myndaður verði samráðshópur til að fara yfir stöðuna á almenningssamgöngum í uppsveitum Árnessýslu og sjá hvaða möguleikar eru fyrir hendi. Sveitarstjóra er falið að sitja í samráðshópnum og oddviti verði varamaður.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar áréttar fyrri athugasemdir sínar vegna málsins. Sveitarstjórn telur óásættanlegt að rekstri annarar akstursleiðar strætó í uppsveitum verði hætt. Sveitarstjórn minnir á að þegar breytingar voru gerðar á almenningssamgöngum á landsbyggðinni á sínum tíma var skólaakstur vegna Fjölbrautaskóla Suðurlands felldur inn í leiðakerfi almenningssamgangna á Suðurlandi og sérstökum skólaakstri hætt. Verði akstri eintakra leiða nú hætt eru forsendur brostnar fyrir skólasókn framhaldsskólanemenda af ákveðnum svæðum í uppsveitum. Sveitarstjórn undrast það að innviðaráðuneytið skuli mæla fyrir um niðurskurð almenningssamgangna í uppsveitum Árnessýslu, en það samræmist ekki stefnu um almenningssamgöngur eins og henni er lýst í samgönguáætlun 2026-2040, en þar segir m.a. að unnið verði að því að efla almenningssamgöngur á landsbyggðinni. Sveitarstjórn undrast að á sama tíma og unnið er að eflingu almenningssamgangna á öðrum landsvæðum skuli vera uppi áform um að skerða verulega almenningssamgöngur í uppsveitum Árnessýslu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar áréttar fyrri athugasemdir sínar vegna málsins. Sveitarstjórn telur óásættanlegt að rekstri annarar akstursleiðar strætó í uppsveitum verði hætt. Sveitarstjórn minnir á að þegar breytingar voru gerðar á almenningssamgöngum á landsbyggðinni á sínum tíma var skólaakstur vegna Fjölbrautaskóla Suðurlands felldur inn í leiðakerfi almenningssamgangna á Suðurlandi og sérstökum skólaakstri hætt. Verði akstri eintakra leiða nú hætt eru forsendur brostnar fyrir skólasókn framhaldsskólanemenda af ákveðnum svæðum í uppsveitum. Sveitarstjórn undrast það að innviðaráðuneytið skuli mæla fyrir um niðurskurð almenningssamgangna í uppsveitum Árnessýslu, en það samræmist ekki stefnu um almenningssamgöngur eins og henni er lýst í samgönguáætlun 2026-2040, en þar segir m.a. að unnið verði að því að efla almenningssamgöngur á landsbyggðinni. Sveitarstjórn undrast að á sama tíma og unnið er að eflingu almenningssamgangna á öðrum landsvæðum skuli vera uppi áform um að skerða verulega almenningssamgöngur í uppsveitum Árnessýslu.
16.Aðalskipulagsbreyting Úthlíð
2607014
Erindi Ólafs Björnssonar, dags. 2. júlí 2026, varðandi aðalskipulag í Úthlíð.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir að gerð verði breyting á stefnu aðalskipulags varðandi byggingarmagn á frístundalóðum hvað varðar aukahús á lóð. Sveitarstjórn vísar málinu til næstu endurskoðunar aðalskipulags.
17.Ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár
2607017
Erindi atvinnuvegaráðuneytisins, dags. 24.06.2026, varðandi ábendingar til sveitarfélaga vegna búfjárbeitar og ágangs búfjár.
Erindið var lagt fram til kynningar.
18.Breyting á lögum um heilbrigðiseftirlit ofl
2509014
Bókun Heilbrigðisnefndar Suðurlands, dags. 27. júlí 2026, varðandi breytingar sem verða á verkefnum heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga 1. janúar 2027 og hvaða áhrif þær kunna að hafa á starfsemi, þekkingargrunn og sameiginlega hagsmuni sveitarfélaganna á Suðurlandi.
Bókunin var lögð fram. Sveitarstjórn tekur undir með heilbrigðisnefnd varðandi það að nauðsynlegt sé að sveitarfélögin taki afstöðu til þess hvernig haldið verði utan um þau verkefni sem áfram verða hjá sveitarfélögum eftir breytingar á fyrirkomulagi heilbrigðiseftirlits sem taka gildi 1. janúar 2027 í framhaldi af nýlegum lagabreytingum. Margt er óljóst er varðar flutning verkefna og hvaða verkefni verða áfram hjá sveitarfélögum, svo og hvaða kostnaður mun falla á sveitarfélögin. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur rétt að kanna áfram sameiginlegar lausnir sveitarfélaga á Suðurlandi og telur í því sambandi að þörf sé á kynningarfundi áður en ákvörðun verður tekin um fyrirkomulag verkefna þar sem farið verði yfir það sem fyrir liggur um verkefni sveitarfélaganna og mögulegan kostnað.
19.Kaupsamningur um Torfholt 6a
2511019
Tilboð í fasteignina Torfholt 6a, Laugarvatni.
Sveitarstjórn staðfestir töku tilboðs Jönu Lindar Ellertsdóttur og Ægis Más Baldvinssonar í fasteignina Torfholt 6a, Laugarvatni, fnr. 220 6348.
20.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2026-2030
2605032
Kjör fulltrúa í undirkjörstjórn - Biskupstungur (einn aðalmaður)
Sveitarstjórn skipar Birtu Berg Sigurðardóttur sem aðalmann í undirkjörstjórn í Biskupstungum.
21.Lóðarumsókn Vegholt 12, Reykholti
2608002
Umsókn SA2 ehf um lóðina Vegholt 12, Reykholti
Lóðin hefur verið auglýst laus til úthlutunar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til SA2 ehf.
22.CanAM Iceland Hill Rally 2026
2510043
Tilkynning keppnisstjóra, dags. 17.07.2026, um breytingu á akstursleið.
Tilkynning keppnisstjóra, dags. 29.07.2026, um aflýsingu keppninnar.
Tilkynning keppnisstjóra, dags. 29.07.2026, um aflýsingu keppninnar.
Tilkynningarnar voru lagðar fram til kynningar.
23.Rallaksturskeppni 2026
2607011
Beiðni Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur, dags. 15.07.2026, um heimild fyrir rallakstuskeppni 23. ágúst 2026.
Erindið var lagt fram. Óskað er eftir heimild til að láta keppnina fara fram á akstursleiðum innan Bláskógabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir erindið fyrir sitt leyti. Áhersla er á að gengið verði vel frá merkingum og að vel verði gengið frá svæðinu að keppni lokinni.
24.Umsókn um tækifærisleyfi fyrir fjölskylduskemmtun Miðhúsaskógi
2607007
Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 13.07.2026, um umsögn um umsókn Salika Pitplern um tækifærisleyfi vegna fjölskylduskemmtunar að Kvistum nr 7 í Miðhúsaskógi.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað umsagnar um umsókn um tækifærisleyfi vegna tælenskrar menningarhátíðar sem haldin verður í Miðhúsaskógi 8. ágúst n.k. Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
25.Rekstrarleyfisumsókn Prestabraut 6 L236403
2607008
Beiðni sýslumannsins á Suðurlandi, dags 08.07.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfisumsókn í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Smára B. Kolbeinssyni fyrir hönd Ferðaþjónustuna Eyvík ehf., kt. 460720 - 0520 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 6 (F252 9098) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
26.Rekstrarleyfisumsókn Böðmóðsstaðir lóð L2258378
2607012
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 27.04.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (G) Íbúðir, rýmisnúmer 01 0101 íbúð frá Huldu K. Harðardóttir, kt. 170373 á íbúðarhúsalóðinni Böðmóðsstaðir 2 (L189664) í Bláskógabyggð.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
27.Rekstrarleyfisumsókn Græntóftagata 4 L178418
2512005
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 24.11.2025, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfisumsókn í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Maríu K. Þrastardóttur kt. 281176 á sumarbústaðalandinu Græntóftagata 4 (F234 6434) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
28.Rekstrarleyfisumsókn Kjarnholt 7 L2204831
2607015
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 25.06.2026, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfisumsókn í fl. IV (B) Stærra gistiheimili, rýmisnúmer 01 0101 íbúð frá Jóni A. Guðbrandssyni fyrir hönd Náttúru stúdíó ehf., kt. 6707022 - 1120 á viðskipta- og þjónustulóðinni Kjarnholt 7(F220 4831) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um erindið.
29.Rekstrarleyfisumsókn fyrir Stekkjarbraut 12 F2274591
2608004
Tölvupóstur, dags. 26.06.2026 frá sýslumanninum á Suðurlandi, þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Felix Hjálmarssyni fyrir hönd Rauðhólar Capital Investments ehf., kt. 620819 - 0340 á sumarbústaðalandinu Stekkjarbraut 12 (F227 4591) í Bláskógabyggð. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn leggst gegn útgáfu leyfisins enda samræmist það ekki stefnu aðalskipulags.
30.Ársreikningur og ársskýrsla Björgunarsveitar Biskupstungna 2025
2607004
Ársreikningur og ársskýrsla Björgunarsveitar Biskupstungna fyrir árið 2025
Lagt fram til kynningar.
31.Ársreikningur og ársskýrsla Björgunarsveitarinnar Ingunnar 2025
2608003
Ársreikningur og ársskýrsla Björgunarsveitarinnar Ingunnar fyrir árið 2025
Lagt fram til kynningar.
32.Ársreikningur Félags eldri borgara í Biskupstungum 2026
2607016
Ársreikningur Félags eldri borgara í Biskupstungum 2026
Lagt fram til kynningar.
33.Kæra vegna gjalda til reksturs söfnunarstöðva og gjalds vegna tæmingar á rotþró við sumarhús
2605004
Úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli UUA 2603015.
Úrskurðurinn er lagður fram. Með úrskurðinum er hafnað kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar Bláskógabyggðar um álagningu gjalda vegna losunar rotþróar við frístundahús hans og vegna fasts kostnaðar og reksturs söfnunarstöðva.
Fundi slitið - kl. 10:20.
Lögð er fram, eftir grenndarkynningu, umsókn um framkvæmdarleyfi sem tekur til Böðmóðsstaða 1 L167625 í Bláskógabyggð. Markmið með framkvæmdinni er að endurheimta fyrrum votlendi á landi Böðmóðsstaða. Það verður gert með því að hækka grunnvatnsstöðu og færa svæðið sem mest í upprunalegt ástand. Fyrirhugað endurheimtasvæði er 54 hektarar, lítill landhalli er á svæðinu, sem liggur niður að Hólaá. Athugasemdir bárust við grenndarkynningu og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar synjar erindinu á grundvelli þeirra athugasemda sem bárust við grenndarkynningu.
-liður 3, Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag - 2604039
Lögð er fram, eftir kynningu, tillaga nýs deiliskipulags sem tekur til Hlauptungu L229945 í Bláskógabyggð. Um er að ræða skipulag fyrir áningarstað skammt frá Brúarfossi. Skipulagssvæðið er u.þ.b. 826 m² að stærð. Fyrir er á svæðinu malarplan ásamt aðkomuvegi. Landeigendur vinna að uppbyggingu innviða á svæðinu. Umsagnir bárust á kynningartíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt uppfærðum gögnum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir deiliskipulagið og að það verði auglýst á grundvelli 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem allar meginforsendur fyrir gerð deiliskipulagstillögunnar liggi fyrir innan aðalskipulags sveitarfélagsins.
-liður 4, Einiholt 1 (L167081); umsókn um byggingarheimild; reiðskemma - 2203005. Kristján Einir Traustason vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Fyrir liggur umsókn Valdimars Grímssonar, móttekin 01.03.2022, um byggingarheimild fyrir 725 m² reiðskemmu á jörðinni Einiholt 1 (L167081) í Bláskógabyggð.
Byggingaráformin voru áður samþykkt en hafa fallið úr gildi þar sem framkvæmdir hófust ekki innan tilskilins frests. Umsækjandi óskar eftir að málið verði tekið upp að nýju og að byggingarheimild verði endurútgefin.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um niðurstöðu grenndarkynningar. Berist engar athugasemdir vegna grenndarkynningar skal málinu vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
-liður 5, Holtakot lóð L167344; Byggingarreitur færður og tilfærsla á húsi; Deiliskipulagsbreyting - 2606027
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Holtakots lóð L167344 í Bláskógabyggð. Breytingin felst í því að byggingarreitur er teiknaður inn á lóð 3. Jafnframt eru settir skilmálar um byggingarheimildir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ekki verði gerð krafa um grenndarkynningu vegna málsins þar sem um svo óveruleg frávik sé að ræða að hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.