Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
330. fundur haldinn 14.08.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3 til 7.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
82. fundur haldinn 13.08.2026, afgreiða þarf sérstaklega lið nr 8.
-liður 8, kaup Bláskógaveitu á liðlétting eða skotbómulyftara. Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmda- og veitunefndar um kaup á tæki, jafnframt er samþykktur viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 12.500.000 vegna málsins.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
3.Fundargerð stjórnar Listasafns Árnesinga
2601057
Fundur haldinn 5. ágúst 2026.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
4.Reiðvegur með Einiholtsvegi
2608017
Erindi stjórnar Hestamannafélagsins Jökuls, dags. 13.08.2026, varðandi reiðveg með Einiholtsvegi.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir stuðningi og liðsinni sveitarstjórnar við að tryggja að samhliða fyrirhugaðri endurbyggingu Einiholtsvegar (358) verði öruggur og samfelldur reiðstígur eða reiðfær leið meðfram veginum.
Sveitarstjórn þakkar erindið og tekur undir það að mikilvægt sé að tryggja að reiðvegur verði lagður samhliða endurbyggingu Einiholtsvegar. Í aðalskipulagi Bláskógabyggðar er gert ráð fyrir reiðvegi meðfram Einiholtsvegi. Af hálfu Bláskógabyggðar hefur verið rætt við Vegagerðina um reiðleið meðfram veginum, samhliða þeim framkvæmdum sem standa yfir, en gerð reiðvega er á forræði Vegagerðarinnar.

5.Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
2608018
Umsókn um námsvist utan lögheimilissveitarfélags.
Áslaug Alda Þórarinsdóttir vék af fundi. Erindið var lagt fram. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.
6.Perósnuverndarstefna, endurskoðun
2608019
Tillaga að endurskoðaðri persónuverndarstefnu, fyrri umræða.
Lögð var fram tillaga að endurskoðaðri persónuverndarstefnu. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa persónuverndarstefnunni til síðari umræðu.
7.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
2608020
Boð á aðalfund Samtaka orkusveitarfélaga. Tilnefning fulltrúa Bláskógabyggðar sem fer með atkvæði sveitarfélagsins.
Fundarboðið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Helgi Kjartansson, oddviti, fari með atkvæði sveitarfélagsins á fundinum.
8.Samgöngur og skipulag
2608021
Erindi Vegagerðarinnar, dags. 07.08.2026, varðandi samgöngur og skipulagsmál.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir góðu samstarfi við sveitarfélög um vinnslu skipulagsáætlana hvað varðar þætti sem snúa að samgöngum, minnt á leiðbeiningar um gerð umferðaröryggisáætlana og vakin athygli á leiðbeiningum um gerð samgöngumats. Sveitarstjórn þakkar erindið.
9.Lóðarumsókn Traustatún 22, Laugarvatni
2608022
Umsókn um lóðina Traustatún 22, Laugarvatni.
Lóðin hefur verið auglýst laus til úthlutunar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til Jaroslaw Uscienny.
10.Kaupsamningur um Torfholt 6a
2511019
Kaupsamningur um fasteignina Torfholt 6a, til staðfestingar
Kaupsamningur við Jönu Lind Ellertsdóttur og Ægi Má Baldvinsson um fasteignina Torfholt 6A, Laugarvatni, fastanúmer 220 6348, var lagður fram. Sveitarstjórn staðfestir samninginn samhljóða, þar á meðal heimild til handa kaupendum til að veðsetja fasteignina fyrir láni frá Landsbanka Íslands að fjárhæð kr. 28.000.000, og felur Ástu Stefánsdóttur, sveitarstjóra, kt. 251070-3189, að undirrita hann.
11.Úttekt á umferðaröryggi
2608025
Tillaga um heildarúttekt á umferðaröryggi
Lögð far fram eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að gerð verði heildarúttekt á umferðaröryggi á öllum götum og stígum í þéttbýlisstöðunum. Í framhaldinu verði unnið markvisst með niðurstöðurnar svo umferðaröryggi verði sem best tryggt.
Greinargerð:
Á síðustu árum hefur verið unnið markvisst að því að bæta öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda með því að gera gangstéttar meðfram götum í þéttbýliskjörnunum, bæta lýsingu og umferðarmerkingar og setja upp hraðahindanir. Megináhersla hefur verið á gönguleiðir í kringum skóla og íþróttamannvirki og í eldri götum þar sem ekki var gert ráð fyrir gangstéttum við gatnagerð á árum áður. Enn er frágangi gangstétta og uppsetningu götulýsingar ólokið við nokkrar götur. Mikilvægt er að tryggja sem best öryggi allra vegfarenda og er því ráðist í úttekt á umferðaröryggi á öllum götum og stígum í þéttbýliskjörnunum þremur.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.

12.Lóðir til úthlutunar við Traustatún og Herutún
2608024
Tillaga um að lóðir við Herutún á Laugarvatni verði auglýstar lausar til úthlutunar.
Lögð var fram eftirfarandi tillaga:
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að auglýsa lausar til úthlutunar lóðir nr. 1, 2, 3, 5, 6, 7-9 og 11 við Herutún á Laugarvatni.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að auglýsa lausar til úthlutunar lóðir nr. 1, 2, 3, 5, 6, 7-9 og 11 við Herutún á Laugarvatni.
Tillagan var borin undir atkvæði og samþykkt samhljóða.
13.Endurskoðun aðalskipulags
2608023
Tillaga um endurskoðun aðalskipulags
Að loknum hverjum sveitarstjórnarkosningum skal sveitastjórn taka afstöðu til þess hvort ráðast skuli í endurskoðun aðalskipulags. Gildandi aðalskipulag Bláskógabyggðar var staðfest 2018 og telur sveitarstjórn rétt að endurskoða ákveðna þætti aðalskipulags á yfirstandandi kjörtímabili.
Sveitarstjórn felur oddvita og sveitarstjóra að taka saman minnisblað þar sem verkefnið verði afmarkað frekar og gerð tillaga að tilhögun þess.
Sveitarstjórn felur oddvita og sveitarstjóra að taka saman minnisblað þar sem verkefnið verði afmarkað frekar og gerð tillaga að tilhögun þess.
14.Útsvarstekjur 2026
2603005
Yfirlit yfir þróun útsvar janúar til júlí.
Lagt var fram yfirlit yfir þróun útsvarstekna fyrir mánuðina janúar til júlí.
15.Fræðsla um hinsegin málefni
2608026
Erindi Innviðaráðuneytisins, dags. 13.08.2026 þar sem kjörnum fulltrúum og starfsfólki sveitarfélaga er boðið upp á fræðslufund um hinsegin málefni.
Erindið var lagt fram til kynningar.
16.Samningur um minkaveiðar
2608006
Drög að samningi um minkaveiðar, Þingvallasveit.
Lögð voru fram drög að samningi um minkaveiðar. Sveitarstjórn staðfestir samninginn.
Fundi slitið.
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Brekku L167067 í Bláskógabyggð. Óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna tímabundinnar tengingar vatnsveitu í Úthlíð við vatnsveitu sem þjónar Brekku, Miðhúsum og sumarhúsabyggð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfa framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.
-liður 4, Myrkholt L167133; Breytt heiti lóðar - 2607035
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 23.06.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar afmörkun og leiðréttingu á stærð fasteignar. Óskað er eftir afmörkun og leiðréttingu á stærð á Myrkholti L167133.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir erindið án athugasemda.
-liður 5, Bergsstaðir L189399; Hækkuð mænishæð; Deiliskipulagsbreyting - 2608026
Lögð er fram umsókn sem tekur til breytinga á skilmálum deiliskipulags fyrir Bergsstaði L189399. Í breytingunni felst að mestu leyfilegu mænishæð er breytt úr 6,0 m í 7,5 m.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
-liður 6, Einiholt 3 L192608; Kristján Einir Traustason vék af fundi við afgreiðslu málsins, Byggingarreitur stækkaður, staðfest lega vegar og lóðir gestahúsa; Deiliskipulagsbreyting - 2604006
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til Einiholts 3 L192608 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að byggingarreitur fyrir íbúðarhús og skemmu er stækkaður og færður, aðkoma af Einholtsvegi er færð og vegum innan jarðarinnar er breytt. Þá eru lóðir fyrir gestahús minnkaðar og færðar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn samþykkir að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 7, Framafréttur L223995 við Kjalveg; Vinnsla í námu 22155 í Grjótá; Framkvæmdaleyfi - 2608029
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Framafrétta L223995 við Kjalveg í Bláskógabyggð. Óskað er eftir framkvæmdaleyfi til að hefja vinnslu á malarslitlagi í námu nr. 22155 í Grjótá. Áætlað er að framleiða um 7000 m3 af malarslitlagi. Efnið verður haugsett í námunni og er áætluð notkun þess sumarið 2027.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og felur skipulagsfulltrúa útgáfu leyfisins.
Funargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.