Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

416. fundur 02. september 2026 kl. 09:00 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Áslaug Alda Þórarinsdóttir Aðalmaður
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Aðalmaður
  • Kristján Einir Traustason Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Valdís María Smáradóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

331. fundur haldinn 26.08.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 2-4.
-liður 2, Stekkjarbraut 12 L195709; Rekstrarleyfi í flokki II; Skilmálabreyting; Deiliskipulagsbreyting 2607010
Lögð er fram umsókn sem tekur til Stekkjarbrautar 12 L195709 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að heimilt verði að stunda rekstrarleyfisskylda útleigu í flokki II á lóðinni.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir breytingu á deiliskipulagi Stekkjarbrautar 12 L195709 í Bláskógabyggð með fyrirvara um samþykki allra sumarhúseigenda innan frístundasvæðisins Helludalur F103. Eftir að samþykki allra lóðarhafa liggur fyrir skal breytingin unnin í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga. Samkvæmt heimildum innan kafla 2.3.2 innan aðalskipulags Bláskógabyggðar 2015-2027 er útleiga sumarhúsa heimil á grundvelli reglugerðar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald með þeim takmörkunum að samþykki eigenda sumarhúsa á svæðinu þurfi að liggja fyrir komi fram ósk um atvinnurekstur.
-liður 3, Fremstaver L238156; Lagning háspennustrengs frá Kjalveg að Fremstaveri; Framkvæmdarleyfi 2608033
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna Fremstavers L238156 í Bláskógabyggð. Framkvæmdin felur í sér lagningu um 3.000 metra langs háspennustrengs frá Kjalvegi við Grjótá að Fremstaveri.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 5. mgr. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins sem framkvæmdin tekur til en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu. Skipulagsfulltrúa er falin útgáfa framkvæmdaleyfisins.
-liður 4, Lyngbraut 5 L190167; Stækkun heimtaugar; Framkvæmdarleyfi 2608034
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi vegna Lyngbrautar 5, L190167, í Bláskógabyggð. Framkvæmdin felur í sér stækkun heimtaugar að Lyngbraut 5 og vegna þess þarf að svera upp streng sem liggur frá Biskupstungnabraut meðfram Lyngbraut á um 250 metra kafla.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falin útgáfa leyfisins.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð fjallskilanefndar Biskupstungna

2608032

Fundur haldinn 17.08.2026, ásamt fjallskilaseðli og uppgjöri.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

3.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa

2601005

259. fundur haldinn 19.08.2026

260. fundur haldinn 26.08.2026, 15. og 16. liður eru sérstakt mál á dagskrá fundarins, sjá 14. lið.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

4.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga

2601053

1. fundur haldinn 20.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

5.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu

2604010

6. fundur haldinn 18.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

6.Persónuverndarstefna, endurskoðun

2608019

Persónuverndarstefna, síðari umræða
Sveitarstjórn samþykkir endurskoðaða persónuverndarstefnu.

7.Almenningssamgöngur leiðakerfi í uppsveitum

2408021

Breytingar á akstursleiðum strætó í uppsveitum, fundargerðir samráðsfunda og upplýsingar um farþegafjölda.
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

8.Lóðarumsókn Herutún 1, Laugarvatni

2608044

Umsókn Bjarna D. Daníelssonar og Helgu Kristínar Sæbjörnsdóttur um lóðina Herutún 1, Laugarvatni.
Lóðin hefur verið auglýst laus til umsóknar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir að úthluta lóðinni til Bjarna D. Daníelssonar og Helgu Kristínar Sæbjörnsdóttur.
Fylgiskjöl:

9.Lóðin Brekkuholt 9, Reykholti

2510024

Beiðni Norðanmanna ehf, dags. 26.08.2026, um heimild til að skila lóðinni Brekkuholti 9, Reykholti.
Af hálfu Norðanmanna ehf er óskað eftir heimild til að skila lóðinni Brekkuholti 9. Sveitarstjórn samþykkir erindið og felur sveitarstjóra að auglýsa lóðina til úthlutunar að nýju.

10.Samstarf um bókasafn Menntaskólans að Laugarvatni

2604042

Tillaga um útfærslu
Tillaga að útfærslu á opnunartíma fyrir Bláskógaskóla og fyrir almenna notkun hefur verið kynnt skólameistara. Sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram.

11.Rekstraryfirlit 2026

2608045

Árshlutayfirlit, janúar til júní.

Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri kemur inn á fundinn undir liðum 11-13.
Árshlutayfirlit var lagt fram. Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kom inn á fundinn og svaraði spurningum fundarmanna.

Lögð var fram eftirfarandi samantekt vegna árshlutayfirlits 1. janúar til 30. júní 2026

Árshlutayfirlit Bláskógabyggðar fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta að fjárhæð 105,8 m.kr., samanborið við 92,3 m.kr. samkvæmt fjárhagsáætlun tímabilsins.
Rekstrartekjur A- og B-hluta námu samtals 1.524,5 m.kr., en rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, námu um 1.332,9 m.kr. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 75,8 m.kr.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 1,4 m.kr., en áætlun gerði ráð fyrir 17,0 m.kr. jákvæðri niðurstöðu. A-hluti er því um 15,6 m.kr. undir áætlun.
Handbært fé frá rekstri nam 423,7 m.kr. á tímabilinu.
Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu um 327,9 m.kr.
Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 400 m.kr., en afborganir langtímalána námu um 101,6 m.kr.
Handbært fé í lok júní var 322,1 m.kr.
Heildareignir sveitarfélagsins voru 5.030,2 m.kr. í lok júní. Eigið fé nam 2.292,0 m.kr. og skuldir og skuldbindingar samtals 2.738,2 m.kr.
Í heild má segja að rekstur samstæðu sveitarfélagsins sé í góðu jafnvægi eftir fyrstu sex mánuði ársins og niðurstaða A- og B-hluta sé nokkuð betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir.

12.Útsvarstekjur 2026

2603005

Yfirlit yfir útsvarstekjur janúar til ágúst 2026
Yfirlitið var lagt fram.

13.Viðaukar við fjárhagsáætlun 2026

2603004

5. viðauki við fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar
Lagður var fram viðauki við fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða. Áhrif viðaukans eru þau að rekstrarútgöld hækka nettó um 17,7 mkr., fjárfesting hækkar um 154,3 mkr. Útgjaldaauka, samtals 172 mkr., er mætt með hækkun á lántöku um 100 mkr. og lækkun á handbæru fé um 72 mkr.

14.Rekstrarleyfisumsóknir Eyvindartunga

2608042

Erindi sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 08.10.2025 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (C) Minna gistiheimili, rýmisnúmer 04 0101 íbúð frá Helgu Jónsdóttur fyrir hönd Eyvindartungu ehf. kt. 440102 - 5060 á jörðinni Eyvindartunga (F220 5932) í Bláskógabyggð.



Erindi sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 17.07.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 18 0101 sumarhús og rýmisnúmer 20 0101 gestahús frá Helgu Jónsdóttur fyrir hönd Eyvindartungu ehf. kt. 440102 - 5060 á jörðinni Eyvindartunga (F220 5932) í Bláskógabyggð.
Sveitarstjórn veitir jákvæða umsögn um rekstrarleyfisumsóknirnar.

15.6. áfangi rammaáætlunar

2608043

Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í 6. áfanga rammaáætlunar, dags. 20.08.2026, varðandi mat á áhrifum virkjunarhugmynda sem lagðar eru fram af framkvæmdaaðilum á nærsamfélag áformaðrar virkjunar, þ.e. Mosfellsheiðarvirkjanir og Hrútmúlavirkjun.
Óskað er eftir almennri umsögn sveitarfélagsins fyrir 18. september n.k. Sveitarstjórn vísar málinu til umsagnar í umhverfisnefnd. Sveitarstjórn samþykkir að taka málið fyrir að nýju á næsta fundi sem haldinn verður 16. september n.k.

16.Deiliskipulag frístundabyggðar í landi Heiðarbæjar, Þingvallasveit

2602014

Úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 24.08.2026 í máli nr. UUA2602005.
Úrskurðurinn var lagður fram til kynningar.

Fundi slitið.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?