Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
332. fundur haldinn 09.09.2026. afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 3 til 6.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
83. fundur haldinn 04.09.2026, afgreiða þarf sérstaklega lið 6.
-liður 6, 2609001 Hönnun vatnsveitu frá Fljótsbotnum. Sveitarstjórn samþykkir tillögu framkvæmda- og veitunefndar um að haldið verði áfram með undirbúning og hönnun á styrkingu kaldavatnsveitunnar í Fljótsbotnum. Ljóst er að þörf er á aukni vatnsmagni til þess að byggð og atvinnurekstur geti haldið áfram að vaxa. Sveitarstjóra og sviðsstjóra framkvæmda- og veitunsviðs er falið að leggja fram tillögu að tilhögun að hönnun. Gert verði ráð fyrir kostnaði við verkefnið í fjárhagsáætlun næsta árs.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
3.Fundargerð skólanefndar
2601003
49. fundur haldinn 31.08.2026, afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3, 8, 9, 10 og 11.
-liður 3, Erindisbréf skólanefndar 2020 - 2004012, sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar um að að erindisbréf skólanefndar verði endurskoðað. Sveitarstjóra er falið að leggja fram endurskoðað erindisbréf.
-liður 8, Reglur um stuðning við nema í leikskólakennarafræðum - 2306041, sveitarstjórn samþykkir tillögu skólanefndar um að reglurnar verði endurskoðaðar.
-liður 9, Umsókn um stuðning vegna náms í leikskólakennarafræðum skólaárið 2026-2027 - 2608035, sveitarstjórn samþykkir erindið, enda tekur það til náms sem er sambærilegt við það nám sem fjallað er um í reglum um stuðning við nema í leikskólakennarafræðum.
-liður 10, Umsókn um stuðning vegna náms í leikskólakennarafræðum skólaárið 2026-2027 - 2608036, sveitarstjórn samþykkir erindið, enda fellur það að reglum um stuðning við nema í leikskólakennarafræðum.
-liður 11, Umsókn um stuðning vegna náms í leikskólakennarafræðum skólaárið 2026-2027 - 2608037, Áslaug Alda Þórarinsdóttir vék af fundi. Sveitarstjórn samþykkir erindið, enda fellur það að reglum um stuðning við nema í leikskólakennarafræðum.
Kostnaður vegna fjarveru umsækjenda í málum nr. 9-11 þegar um námslotur er að ræða, rúmast innan fjárhagsáætlunar.

4.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
261. fundur haldinn 02.09.2026
262. fundur haldinn 09.09.2026
262. fundur haldinn 09.09.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
5.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings
2601033
Fundur haldinn 25.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
6.Fundargerðir stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
2602034
93. fundur haldinn 27. apríl
94. fundur haldinn 18. júní
95. fundur haldinn 7. ágúst
96. fundur haldinn 21. ágúst
94. fundur haldinn 18. júní
95. fundur haldinn 7. ágúst
96. fundur haldinn 21. ágúst
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
7.Aðalfundur Samtaka orkusveitarfélaga
2608020
Fundargerð aðalfundar, haldinn 21.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Verkefni byggðaþróunarfulltrúa
2609007
Rakel Theódórsdóttir, byggðaþróunarfulltrúi, kemur inn á fundinn.
Rakel fór yfir helstu verkefni sem hún hefur unnið að síðasta árið og þau verkefni sem framundan eru og svaraði spurningum fundarmanna. Rakel vék af fundi að því loknu.
9.Verkefni Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita
2609016
Nanna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri, kemur inn á fundinn og fer yfir verkefni sviðsins.
Nanna kom inn á fundinn og fór yfir uppbyggingu Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs og ýmis verkefni sviðsins og svaraði spurningum fundarmanna. Nanna vék af fundi að því loknu.
10.Styrkbeiðni vegna samfélagsverkefnis (húsaleiga af kennslueldhúsi)
2609009
Beiðni Dóru Svavarsdóttur, Social Coffee og Planet Laugarvatn, dags. 07.09.2026, um styrk á móti húsaleigu af kennslueldhúsi Reykholtsskóla vegna samfélagsverkefni sem miðar að því að efla tengsl, menningarskipti og þátttöku íbúa í sveitarfélaginu.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita umbeðinn styrk. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
11.Styrkbeiðni vegna þátttöku í unglingalandsliði í hópfimleikum
2609012
Beiðni, dags. 31.08.2026, um styrk vegna þátttöku í unglingalandsliði í hópfimleikum.
Kristján Einir Traustason vék af fundi. Styrkbeiðnin Guðrúnar Ernu Þórisdóttur var lögð fram. Kristín María Kristjánsdóttir mun keppa fyrir hönd Íslands á Evrópumótinu í hópfimleikum. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða 30.000 kr styrk. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
12.Skjálftinn, hæfileikakeppni ungmenna
2609006
Erindi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, dags. 09.09.2026, varðandi Skjálftann, hæfileikakeppni ungmenna, sem er áhersluverkefni SASS.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn tekur jákvætt í að þróa verkefnið áfram með SASS.
13.Stækkun Reykholtsskóla
2601055
Skipan vinnuhóps vegna hönnunar viðbyggingar við Reykholtsskóla.
Endurnýja þarf umboð starfshóps eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Sveitarstjórn tilnefnir eftirtalda til setu í starfshópnum:
Helga Kjartansson, Stefaníu Hákonardóttur, Kristján Eini Traustason, Grím Kristinsson og Önnu Gretu Ólafsdóttur.
Starfsmenn sveitarfélagsins verði kallaðir til eftir þörfum. Sveitarstjóra er falið að útbúa erindisbréf vegna starfshópsins.
Anna Greta og Valdís María óskuðu eftir að bókað yrði að það væri miður að Þ-listinn fái ekki tvo fulltrúa í starshópnum.

14.Stækkun Bláskógaskóla Laugarvatni
2601054
Skipan starfshóps vegna hönnunar viðbyggingar við Bláskógaskóla.
Endurnýja þarf umboð starfshóps eftir sveitarstjórnarkosningarnar í maí. Sveitarstjórn tilnefnir eftirtalda til setu í starfshópnum:
Helga Kjartansson, Stefaníu Hákonardóttur, Kristján Eini Traustason, Grím Kristinsson og Önnu Gretu Ólafsdóttur.
Starfsmenn sveitarfélagsins verði kallaðir til eftir þörfum. Sveitarstjóra er falið að útbúa erindisbréf vegna starfshópsins.
Anna Greta og Valdís María óskuðu eftir að bókað yrði að það væri miður að Þ-listinn fái ekki tvo fulltrúa í starshópnum.
Helga Kjartansson, Stefaníu Hákonardóttur, Kristján Eini Traustason, Grím Kristinsson og Önnu Gretu Ólafsdóttur.
Starfsmenn sveitarfélagsins verði kallaðir til eftir þörfum. Sveitarstjóra er falið að útbúa erindisbréf vegna starfshópsins.
Anna Greta og Valdís María óskuðu eftir að bókað yrði að það væri miður að Þ-listinn fái ekki tvo fulltrúa í starshópnum.
15.Fjárhagsáætlun 2027 og 2028-2029
2609017
Forsendur fjárhagsáætlunar 2027. Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn.
Björgvin kom inn á fundinn. Rætt var um forsendur fjárhagsáætlunar og tímalínu áætlunarvinnunnar. Björgvin vék af fundi að því loknu.
16.Stofnsamningur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs
2606033
Stofnsamningur SVÁ, síðari umræða
Sveitarstjórn samþykkir samninginn samhljóða.
17.Samstarf um bókasafn Menntaskólans að Laugarvatni
2604042
Samstarf um bókasafn, niðurstaða viðræðna.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að ganga frá nýjum samningi við Menntaskólann að Laugarvatni um bókasafnsþjónustu við leik- og grunnskóla og opnun bókasafns fyrir almenning. Miðað er við að samningurinn gildi frá 1. október n.k.
18.Afgreiðslutími íþróttamannvirkja
2609018
Tillaga um breytingu á afgreiðslutíma íþróttamannvirkja
Tillaga forstöðumanns íþróttamannvirkja var lögð fram. Rætt var um lengdan opnunartíma íþróttamannvirkja. Sveitarstjórn tekur jákvætt í breytingarnar og samþykkir að tillögur forstöðumanns um aukna opnun verði útfærðar nánar.
Anna Greta óskaði eftir að bókað yrði að hún telji rétt að hafa opið til kl 21 um helgar og til kl 22 á virkum dögum.
Anna Greta óskaði eftir að bókað yrði að hún telji rétt að hafa opið til kl 21 um helgar og til kl 22 á virkum dögum.
19.6. áfangi rammaáætlunar
2608043
Erindi til sveitarstjórnar frá faghópi 3 í 6. áfanga rammaáætlunar, dags. 20.08.2026, varðandi mat á áhrifum virkjunarhugmynda sem lagðar eru fram af framkvæmdaaðilum á nærsamfélag áformaðrar virkjunar, þ.e. Mosfellsheiðarvirkjanir og Hrútmúlavirkjun. Áður á dagskrá á 416. fundi.
Tilkynning, dags. 09.09.2026, um að tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011.
Tilkynning, dags. 09.09.2026, um að tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði hafi verið birt í samráðsgátt stjórnvalda sbr. lög 48/2011.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur fengið til umsagnar frá Faghópi 3 í rammaáætlun, með tveimur bréfum dagsettum 25.08.2006, vindorkuhugmyndir sem eru til umfjöllunar í 6. áfanga rammaáætlunar, varðandi Mosfellsheiðarvirkjanir I og II, sem yrði staðsett í Grímsnes- og Grafningshreppi og í Sveitarfélaginu Ölfusi, og Hrútmúlavirkjun, sem staðsett yrði í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Óskað er eftir almennri umsögn sveitarfélagsins um samfélagsleg áhrif fyrirhugaðra vindorkuhugmynda. Faghópurinn óskar sérstaklega eftir formlegri afstöðu sveitarfélagsins og rökstuðningi hennar, meðal annars með hliðsjón af samheldni samfélags, orkuöryggi, efnahagslegum ávinningi nærsamfélags, innviðauppbyggingu og skynrænu áreiti.
Jafnframt hefur sveitarstjórn borist tilkynning, dags. 9. september 2026, um að tillaga um virkjanahugmyndir í verndarflokk og átta verndarsvæði hafi verið sett í Samráðsgátt stjórnvalda.
Af hálfu Bláskógabyggðar er bent á að ekki hefur verið sýnt fram á efnahagslegan ávinning nærsamfélagsins af raforkuframleiðslu og flutningi raforku. Þá verður að gæta að þeim áhrifum sem vindorkuver af þessari stærðargráðu geta haft á aðra atvinnustarfsemi, svo sem ferðaþjónustu, en mannvirki þessi geta haft veruleg áhrif á ásýnd stórs landsvæðis. Vísað er til þess sem tilgreint er hér að aftan varðandi áhrif á viðerni, útivistarsvæði og lítt snortna náttúru.
Af hálfu Bláskógabyggðar eru ítrekaðar áður samþykktar athugasemdir við áform um Mosfellsheiðarvirkjun I og II. Eftirfarandi umsögn var skilað inn á Samráðsgátt stjórnvalda í máli nr. S-229/2024 þegar drög að flokkun tíu vindorkukosta voru til umsagnar í Samráðsgátt stjórnvalda: Báðum þessum verkefnum er ætlaður staður nærri sveitarfélagamörkum, annars vegar mörkum Bláskógabyggðar og Grímsnes- og Grafningshrepps (Mosfellsheiðarvirkjun I) og hins vegar nærri mörkum Bláskógabyggðar og Sveitarfélagsins Ölfuss (Mosfellsheiðarvirkjun II). Í báðum tilvikum háttar þannig til að sjónrænna áhrifa verkefnanna gætir að mun meira leyti í Bláskógabyggð en í sveitarfélögunum þar sem hugmyndir eru um að vindorkuverkefnin rísi.
Af hálfu Bláskógabyggðar er tekið undir umsögn Margrétar Sveinbjörnsdóttur, sem veitt var á fyrri stigum, þ.e. í máli nr. S-229/2024, umsögn Margrétar er nr. 47 á Samráðsgáttinni í því máli) og bent á neikvæð áhrif á eftirtalda þætti:
- Heiðina sem víðerni: Vindmyllugarður myndi sjást víða að, þar með talið frá þjóðgarðinum á Þingvöllum, Mosfellsheiði og Nesjavallaleið. Sú sjónmengun myndi óhjákvæmilega spilla upplifun ferðamanna af heiðinni sem víðerni.
- Heiðina sem útivistarsvæði: Um hana liggja fjölmargar gamlar þjóðleiðir, þar sem vaxandi fjöldi fólks nýtur þess að fara um gangandi, á hestum, reiðhjólum, skíðum og vélsleðum. Á fyrirhuguðu virkjunarsvæði eru þjóðleiðirnar Grafningsleið (sjá leiðarlýsingu í bókinni Mosfellsheiðarleiðir (útg. Ferðafélag Íslands, 2019), bls. 20?24, og Laufdælingastígur (bls. 76 til 81 í sömu bók) og meðfram þeim nokkrar vörður og vörðubrot.
- Dýralíf: Sérstaklega fuglalíf á heiðinni og sauðfé sem þar sækir sumarbeit.
- Myrkurgæði: Heiðin er vinsæll áningarstaður í norðurljósaskoðunarferðum að vetrarlagi og ljósmengun frá vindorkuverum myndi augljóslega spilla fyrir slíku.
- Lítt snortna náttúru: Ljóst er að vindorkuverum fylgir mikið jarðrask, ekki aðeins á framkvæmdasvæðinu sjálfu, heldur einnig með lagningu vega að svæðinu. Ennfremur eru örplastmengun og hljóðmengun áhættuþættir.
Þá er, hvað varðar Mosfellsheiðarvirkjun I og II, áréttað að ekki verður framhjá því litið að Þingvellir eru friðlýstur helgistaður og sameiningartákn íslensku þjóðarinnar og einn af fjölsóttustu ferðamannastöðum landsins. Mikilvægt er að horfa til þess þegar teknar eru ákvarðanir um framkvæmdir sem geta spillt upplifun Íslendinga og gesta sem sækja staðinn heim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggur áherslu á að almenn þörf samfélagsins fyrir aukna raforku geti ekki ein og sér réttlætt einstaka virkjunarkosti. Meta verði hvert verkefni út frá staðsetningu þess, áhrifum á fólk og atvinnustarfsemi, samfélagslegri sátt og því hvort sanngjarnt jafnvægi sé milli þess ávinnings sem verkefnið skapar og þeirra byrða sem nærsamfélagið ber. Þá áréttar sveitarstjórn að það sé forsenda fyrir því að sátt náist um uppbyggingu orkumannvirkja að ákvörðun verði tekin um hlutdeild sveitarfélaga í tekjum af orkumannvirkjum, þannig að sanngjarnt jafnvægi sé á milli ávinnings verkefnisins og þeirra byrða sem nærsamfélagið ber.

20.Notendaráð sveitarfélaga
2609008
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 08.09.2026, varðandi notendaráð sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar.
21.Stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga
2609011
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 01.09.2026, varðandi útfærslu á stefnumörkun Sambandsins til næstu fjögurra ára.
Lagt fram til kynningar.
22.Stýrihópur um innleiðingu farsældarlaga
2609013
Erindisbréf stýrihóps um innleiðingu farsældarlaga.
Lagt fram til kynningar.
23.Aðgerðaráætlun um innleiðingu farsældarlaga
2609014
Aðgerðaáætlun - innleiðing farsældarlaga 2026-2027
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:25.
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til Snorrastaða, L168101 í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að afmarkaðar eru 4 lóðir og settir byggingarskilmálar í samræmi við stefnu aðalskipulags fyrir frístundabyggð. Svæðið sem breytingin nær til er 2,3 ha. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 4, Litla-Fljót 1 L167148, Litla-Fljót 2 L167149 og Litla-Fljót 3 L209360; Landsskipti og breyting lóðar - 2605030
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 06.01.2026, skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stofnun nýrrar lóðar. Óskað er eftir að stofna fjórar nýjar lóðir, Litla - Fljót 5, Litla - Fljót 6, Litla - Fljót 7 og Litla - Fljót 8 sameignarland úr landi Litla - Fljóts 1 L167148 og úr landi Litla - Fljóts 2 L167149. Einnig er óskað eftir breytingu á staðföngum Litla - Fljóts 1 og Litla - Fljóts 2, að þessar tvær landeignir skipti um staðföng.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu og samþykkir erindið án athugasemda.
-liður 5, Skálabrekkugata 3 L172580; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting - 2608094
Lögð er fram tillaga óverulegrar deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Skálabrekkugötu 3 L172580. Í breytingunni felst að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði 0,03 og heimilt verður að byggja 80 m² gestahús á lóðinni. Til vara er óskað eftir að núverandi 400 m² byggingaheimild verði skipt þannig að heimilt verði að byggja 180 m² íbúðarhús, 140 m² skemmu og 80 m² gestahús.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að bætt verði við 80 fm gestahúsi við núverandi byggingarheimildir deiliskipulagsins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
-liður 6, Laugarvatn L224243; Hleðslustöð á tjaldstæði, afmörkuð lóð; Deiliskipulagsbreyting - 2606052
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar, eftir auglýsingu, sem tekur til tjaldstæðis á Laugarvatni, L224243, í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að við aðkomu að tjaldstæðinu er afmörkuð lóð þar sem heimilt er að vera með rafhleðslustæði, og svæði fyrir hestagerði er fært fjær Laugarvatnsvegi. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.