Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
Leitað var afbrigða til að taka á dagskrá erindi vegna húsbyggingar á Laugarvatni, var það samþykkt samhljóða.
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
333. fundur haldinn 23.09.2026. Afgreiða þarf sérstaklega mál nr. 3 til 7.
-liður 3. Skógarhlíð 23 L234665; rekstarleyfi; Fyrirspurn - 2609038
Lögð er fram fyrirspurn er varðar deiliskipulag frístundabyggðarinnar Skógarhlíð, L234665. Í fyrirspurninni er óskað eftir heimild til að hefja vinnu við breytingu á gildandi deiliskipulagi. Fyrirhugað er að breyta skilmálum deiliskipulagsins þannig að heimilt verði að reka gistingu í flokki II á öllum lóðum innan deiliskipulagsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í erindið. Forsenda er að samþykki allra lóðareigenda innan aðalskipulagsflákans F21 samkvæmt Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027 liggi fyrir við gerð skilmálabreytingar deiliskipulagsins.
Samkvæmt Aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027 er F21 Stórholt: Deiliskipulag af hluta svæðisins. Í deiliskipulagi er gert ráð fyrir 93 lóðum. 75 lóðir byggðar. Stærð svæðis er um 320 ha. og nær aðalskipulagsflákinn yfir nokkrar jarðir.
-liður 4. Hagavatnsvirkjun; Borholur; Framkvæmdaleyfi - 2609035
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Hagavatns í Bláskógabyggð. Í framkvæmdinni felst rannsókn á bergi og efni. Gert er ráð fyrir gröfuholum, borholum og þremur kjarnaborholum. Nánari upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir er að finna í meðfylgjandi jarðtækniskýrslu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfu framkvæmdaleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með fyrirvara um að samþykki liggi fyrir frá forsætisráðuneytinu þar sem við á. Skipulagsfulltrúa er falin útgáfa framkvæmdarleyfisins.
-liður 5. Varmagerði L167143; Fjölgun gistirýma og heilsumiðstöð; Aðalskipulagsbreyting - 2605009
Lögð er fram tillaga óverulegrar aðalskipulagsbreytingar sem tekur til verslunar og þjónustulóðarinnar Varmagerðis, L167143, í Bláskógabyggð. Í breytingunni felst að heimilt verður að vera með allt að 30 gesti í gistingu í Varmagerði og byggja þar upp heilsumiðstöð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í erindið en að málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar verulega breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027.
-liður 6, Stakksárhlíð 2 L217505; Uppskipting á lóð; Fyrirspurn - 2609015
Lögð er fram fyrirspurn sem tekur til Stakksárhlíðar 2 L217505 í Bláskógabyggð. Í fyrirspurninni felst hvort heimilt sé að skipta lóðinni sem mælist 12.113 fm að stærð í tvær lóðir. Stakkárhlíð 2, 5.500 fm og Stakksárhlíð 2a, 6.613 fm.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í erindið með því skilyrði að ákvæði um að kalt vatn sé fengið úr vatnsveitu sveitarfélagsins verði tekið úr skilmálum deiliskipulagsins.
-liður 7, Laugarvatn L224243; Dæluskúr og lagnir; Framkvæmdarleyfi - 2609051
Lögð er fram umsókn um framkvæmdaleyfi sem tekur til Laugarvatns L224243 í Bláskógabyggð. Í framkvæmdinni felst lagnavinna frá borholu við Menntaskólann að Laugarvatni.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir útgáfu framkvæmdarleyfis á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falin útgáfa framkvæmdarleyfisins.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

2.Fundargerð umhverfisnefndar
2605034
9. fundur haldinn 15.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
3.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
84. fundur haldinn 22.09.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 6, 11 og 13.
-liður 6, 2601045 gatnagerð Kotstún/Fálkamýri, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 3.000.000. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða. Kostnaði verði mætt með lækkun á handbæru fé.
-liður 11, 2605001 breytingar á innra skipulagi leikskólans Bláskóga, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 9.900.000. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða. Kostnaði verði mætt með lækkun á handbæru fé.
-liður 13, 2511030 framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að ákvæði 5. gr. gjaldskrár Bláskógaveitu verði virkjað. Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
-liður 11, 2605001 breytingar á innra skipulagi leikskólans Bláskóga, framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 9.900.000. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða. Kostnaði verði mætt með lækkun á handbæru fé.
-liður 13, 2511030 framkvæmda- og veitunefnd leggur til við sveitarstjórn að ákvæði 5. gr. gjaldskrár Bláskógaveitu verði virkjað. Sveitarstjórn samþykkir tillögu nefndarinnar samhljóða.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
4.Fundargerð skólanefndar
2601003
50. fundur haldinn 28.09.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 5 og 6.
-liður 5, 2609021 reglur um stuðning við nema í leikskólakennarafræðum, endurskoðaðar, skólanefnd leggur til við sveitarstjórn að endurskoðaðar reglur verði samþykktar. Sveitarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.
-liður 6, 2609028 frístund, reglur, skólanefnd vísar reglum um frístund til staðfestingar í sveitarstjórn. Sveitarstjórn samþykkir reglurnar samhljóða.
Fundargerðin var lögð fram til kynngar hvað aðra liði varðar.

5.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
263. fundur haldinn 16. september 2026
264. fundur haldinn 23. september 2026
265. fundur haldinn 30. september 2026
264. fundur haldinn 23. september 2026
265. fundur haldinn 30. september 2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
6.Fundargerð farsældarráðs Suðurlands
2605051
4. fundur haldinn 27.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
7.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
2601026
638. fundur haldinn 04.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Fundargerð stjórnar Bergrisans
2602007
95. fundur stjórnar Bergrisans bs haldinn 14.09.2026
Fudnargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Fundargerð stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga
2602034
97. fundur haldinn 7. september 2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2601056
1002. fundur haldinn 11. september 2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
11.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu
2604010
8. fundur haldinn 25.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
12.Fundargerð almannavarnanefndar Árnessýslu
2610003
Fundur haldinn 18.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
13.Endurskoðun aðalskipulags
2608023
Tillaga um tilhögun vinnu við endurskoðun aðalskipulags. Skipan starfshóps.
Lagt var fram minnisblað um vinnu við endurskoðun aðalskipulags og þá þætti sem einkum þarf að huga að við endurskoðun aðalskipulags Bláskógabyggðar. Sveitarstjórn samþykkir að skipa eftirtalda til setu í starfshópi um endurskoðun aðalskipulags:
Stefanía Hákonardóttir, formaður
Helgi Kjartansson
Valdís Smáradóttir
Til vara:
Kristján Einir Traustason
Áslaug Alda Þórarinsdóttir
Anna Greta Ólafsdóttir
Sveitarstjóra er falið að sækja um framlag úr Skipulagssjóði til HMS, svo og að afla tilboða í vinnu ráðgjafa við endurskoðunina. Áætlað er að vinna við endurskoðun aðalskipulags hefjist í byrjun árs 2027.

14.Stækkun Reykholtsskóla
2601055
Erindisbréf starfshóps vegna viðbyggingar við Reykholtsskóla
Erindisbréfið var lagt fram. Sveitarstjórn samþykkir erindisbréfið samhljóða.
Fulltrúar Þ-lista óskuðu eftir að bókað yrði:
Fulltrúar Þ-listans gera athugasemd við skipan nýs starfshóps vegna stækkunar skólans.
Nýr starfshópur tekur við verkefni sem fyrri starfshópur hóf í febrúar 2026. Í þeim starfshópi átti Þ-listinn tvo fulltrúa og þykir fulltrúum Þ-listans miður að sú aðkoma haldist ekki áfram og að mikilvæg þekking nýtist ekki áfram. Ekki síst með hliðsjón af umfangi verkefnisins og þeirri vinnu sem þegar hefur farið fram.
Fulltrúar Þ-listans telja þessa breytingu óheppilega og sjá ekki málefnaleg rök fyrir því að draga úr aðkomu Þ-listans að verkefninu frá því sem áður var. Sérstaklega vekur það spurningar þegar um er að ræða framhald verkefnis sem þegar var hafið með tveimur fulltrúum Þ-listans.
Fulltrúar Þ-listans óska því eftir að fyrirhuguð skipan verði endurskoðuð og að Þ-listinn fái áfram tvo fulltrúa í starfshópnum, líkt og verið hefur frá upphafi verkefnisins.

15.Stækkun Bláskógaskóla Laugarvatni
2601054
Erindisbréf starfshóps vegna viðbyggingar við Bláskógaskóla

16.Lóðarumsókn Herutún 7-9, Laugarvatni
2609031
Umsókn um lóðina Herutún 7-9, Laugarvatni.
Lóðin hefur verið auglýst laus til umsóknar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til Melavíkur ehf.
17.Lóðarumsókn Herutún 11, Laugarvatni
2609030
Umsókn Melavíkur hef um lóiðina Herutún 11, Laugarvatni
Lóðin hefur verið auglýst laus til umsóknar og ein umsókn borist. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að úthluta lóðinni til Melavíkur ehf.
18.Austurbyggð 9, Laugarási
2609022
Samkomulag um skil á lóðinni Austurbyggð 9, Laugarási, sem úthlutað var 2004.
Lagt var fram samkomulag um skil á lóðinni Austurbyggð 9, Laugarási. Sveitarstjórn samþykkir samkomulagið samhljóða og felur sveitarstjóra að undirrita það og auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.
19.Vegholt 6, Reykholti
2610005
Beiðni Þorsteins Þórarinssonar um að skila lóðinni Vegholti 6, Reykholti, sem úthlutað var til afnota 2009.
Lögð var fram beiðni um skil á lóðinni Vegholti 6, Reykholti. Sveitarstjórn samþykkir að lóðinni verði skilað.
20.Afsláttur af gatnagerðargjöldum vegna iðnaðarlóða
2610009
Tillaga um tímabundinn afslátt af gatnagerðargjöldum vegna iðnaðarlóða.
Lögð var fram tillaga um að veittur verði 50% afsláttur af gatnagerðargjaldi iðnaðarlóða til 1. júlí 2027.
Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.

21.Iðnaðarlóðir við Kotstún, Laugarvatni
2509032
Tillaga um að lóðir við Kotstún verði auglýstar lausar til umsóknar
Lagt er til lóðir nr. 7, 9, 11 og 13 við Kotstún verði auglýstar lausar til úthlutunar. Sveitarstjórn samþykkir tillöguna samhljóða.
22.Þjóðarsátt um verðstöðugleika
2609033
Áskorun frá Starfsgreinasambandi Íslands og 18 aðildarfélögum þess, dags. 16.09.2026, um þjóðarsátt um verðstöðugleika, þar sem SGS skorar á sveitarfélög landsins að taka þátt í sameiginlegu átaki til að ná niður verðbólgu og vöxtum og stuðla þannig að því að kjarasamningar haldi.
Erindi frá VR, LÍV og Fagfélögunum, dags. 14.09.2026, um efnahagslegan stöðugleika.
Erindi frá Bárunni, stéttarfélagi, dags. 24.09.2026, um sameiginlegt átak um að rjúfa vítahring verðhækkana, verðtryggingar og hárra vaxta
Ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25.09.2026

Erindi stéttarfélaganna og ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga voru lögð fram. Í erindum stéttarfélaganna er óskað eftir svörum við því hvort sveitarfélögin í landinu séu tilbúin til að taka þátt í þjóðarsátt um verðstöðugleika og sjá til þess að gjaldskrár hækki ekki um meira en 2,5%.
Í ályktun Landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga kemur fram að sveitarfélögin sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna og stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5% á árinu 2027. Nauðsynlegt sé að kjarasamningar haldi og ríkisvaldið og stofnanir í eigu þess taki þátt í sameiginlegu átaki og takmarki með sambærilegum hætti hækkanir á gjaldskrám og álögum sem hafa bein áhrif á heimilin. Með því leggi allir sitt af mörkum við að skapa sátt í samfélaginu.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að gjaldskrár sveitarfélagsins verði almennt ekki hækkaðar umfram 2,5% við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2027. Með ákvörðuninni leggur sveitarfélagið sitt af mörkum til þess að stuðla að lækkun verðbólgu og auknum stöðugleika í efnahagsmálum.

23.Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
2609035
Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags, dags. 14.09.2026.
Lögð var fram beiðni um að nemandi með lögheimili utan Bláskógabyggðar fái að stunda nám í Reykholtsskóla. Sveitarstjórn samþykkir erindið samhljóða.
24.Námsvist utan lögheimilissveitarfélags
2608018
Beiðni um námsvist utan lögheimilissveitarfélags, áður á dagskrá á 415. fundi.
Sveitarstjórn samþykkir að nemandi með lögheimili í Bláskógabyggð stundi nám í skóla utan sveitarfélagsins.
25.Nefndir og stjórnir Bláskógabyggðar 2026-2030
2605032
Kosning fulltrúa í íþrótta- og lýðheilsunefnd og menningarmálanefnd.
Sveitarstjórn skipar eftirtalda aðila til setu í menningarmálanefnd:
Anna Svava Sverrisdóttir, formaður
Ewa Piatek
Jón F. Snæbjörnsson
Til vara:
Kristján Einir Traustason
Áslaug Alda Þórarinsdóttir
Valdís María Smáradóttir
Íþrótta- og lýðheilsunefnd:
Elías Bergmann Jóhannsson, formaður
Grímur Kristinsson
Smári Stefánsson
Til vara:
Stefanía Hákonardóttir
Harpa Sævarsdóttir
Anna Greta Ólafsdóttir
Anna Svava Sverrisdóttir, formaður
Ewa Piatek
Jón F. Snæbjörnsson
Til vara:
Kristján Einir Traustason
Áslaug Alda Þórarinsdóttir
Valdís María Smáradóttir
Íþrótta- og lýðheilsunefnd:
Elías Bergmann Jóhannsson, formaður
Grímur Kristinsson
Smári Stefánsson
Til vara:
Stefanía Hákonardóttir
Harpa Sævarsdóttir
Anna Greta Ólafsdóttir
26.Erindisbréf skólanefndar 2026
2609015
Tillaga að erindisbréfi skólanefndar
Lögð var fram tillaga að erindisbréfi skólanefndar. Sveitarstjórn samþykkir erindisbréfið samhljóða.
27.Vatnasvæðanefndir, tilnefningar fulltrúa
2211017
Tilnefning fulltrúa í vatnasvæðanefnd
Sveitarstjórn tilnefnir Jón Forna Snæbjörnsson sem aðalmann og Ásgerði Elínu Magnúsdóttur sem varamann. Fulltrúi umhverfisnefndar verði Áslaug Alda Þórarinsdóttir.
28.Framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands 2025
2503014
Tilnefning fulltrúa í framkvæmdateymi Öruggara Suðurlands.
Sveitarstjórn tilnefnir Annýju Ingimarsdóttur til setu í framkvæmdateyminu.
29.Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
2610001
Erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 1. október 2026, varðandi stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga, tillaga að samþykktum og fjárhagsáætlun.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að taka þátt í stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga og felur Helga Kjartanssyni, oddvita að fara með atkvæði sveitarfélagsins á stofnfundinum.
30.Útsvarstekjur 2026
2603005
Yfirlit yfir útsvarstekjur janúar til september 2026.
Yfirlit yfir útsvarstekjur var lagt fram. Útsvarstekjur eru á áætlun.
31.Styrkbeiðni íþróttafélagsins Suðra 2026
2610002
Beiðni íþróttafélagsins Suðra, dags. 29. september 2026, um styrk vegna Íslandsmóts í boccia sem félagið heldur 31.október.
Sveitarstjórn samþykkir að styrkja félagið um 15.000 kr.
32.Gatnamót við Miklaholt og Hrosshaga
2609044
Erindi íbúa í Hrosshaga og Miklaholti varðandi gatnamót við Biskupstungnabraut, beiðni um að sveitarfélagið hlutist til um að Vegagerðin ráðist í úrbætur.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn tekur undir sjónarmið íbúa um það að gatnamótin séu hættuleg og vegna vaxandi umferðar um þau sé nauðsynlegt að ráðast í úrbætur. Sveitarstjóra er falið að senda Vegagerðinni beiðni íbúa í Hrosshaga og Miklaholti. Málið verði einnig tekið upp á næsta fundi fulltrúa sveitarfélagsins með Vegagerðinni.
33.Samgöngumál í Bláskógabyggð
2610006
Samantekt frá fundi fulltrúa Bláskógabyggðar með Vegagerðinni sem haldinn var 28.08.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
34.Aðalfundur Bergrisans bs 2026
2609029
Boð á aðalfund Bergrisans bs, ásamt ársreikningi ársins 2025.
Lagt fram til kynningar.
35.Ársfundur Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 2026
2610007
Erindi innviðaráðuneytisins dags. 17.09.2026, boð á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður 7. október 2026.
Fundarboðið var lagt fram. Helgi Kjartansson fer með atkvæði Bláskógabyggðar á fundinum.
36.Viðauki við fjárhagsáætlun 2026
2603004
Viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2026 vegna breytinga á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga.
Lagður var fram viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2026. Viðaukinn er gerður vegna breytinga á reglugerð um bókhald, fjárhagsáætlanir og ársreikninga sveitarfélaga og felur í sér tilfærslu fjárheimilda á milli málaflokka og deilda í samræmi við breytta flokkun skv. reglugerðinni. Breytingarnar hafa ekki áhrif á heildarniðurstöðu fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins heldur eingöngu framsetningu og flokkun tekna og gjalda.
Sveitarstjórn samþykkir viðaukann samhljóða.

37.Íþróttahúsið á Laugarvatni
2610008
Erindi UMFL, dags. 01.10.2026, varðandi umgengni í og við húsið.
Erindið var lagt fram.
38.Traustatún 5, byggingarframkvæmdir
2610011
Erindi Önnu Eiríksdóttur, dags. 06.10.2026, varðandi byggingarframkvæmdir á lóðinni Traustatúni 5, Laugarvatni.
Lagt var fram erindi Önnu Eiríksdóttur þar sem hún óskar eftir að sveitarstjórn taki til formlegrar umfjöllunar fyrirhugaða nýbyggingu á lóð Traustatúns 5 sem er að rísa við hliðina á fasteign Önnu að Traustatúni 3, Laugarvatni. Í erindinu eru gerðar athugasemdir við hönnun hússins og þess farið á leit að sveitarstjórn fari fram á það að hönnun hússins verði breytt, því snúið eða mænir lækkaður.
Á 210. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var fjallað um byggingaráformin. Þar er tiltekið að byggingaráformin uppfylli ákvæði mannvirkjalaga nr. 160/2010 og gr. 2.4.2 í byggingarreglugerð nr. 112/2012. Byggingarleyfi var gefið út 23. apríl 2025. Um er að ræða 195,6 fermetra einbýlishús með bílskúr. Í deiliskipulagi fyrir svæðið, sem tók gildi hinn 20. maí 2021, að undangengnu ítarlegu íbúasamráði, eru tilgreindir byggingarskilmálar fyrir götuna og byggingarreitur innan lóðarinnar að Traustatúni 5. Við götuna er gert ráð fyrir blöndu af einbýlishúsum, parhúsum og fjölbýli á einni hæð með kjallara. Á lóðum nr. 1, 3, 5, 7, 9 og 11 er þó eingöngu gert ráð fyrir einbýlishúsum á einni hæð. Skipulagi svæðisins hefur verið breytt í tvígang, en án þess að skilmálar fyrir lóðir nr. 3 og 5 við Traustatún hafi tekið breytingum. Útgáfa byggingarleyfis samræmist skilmálum deiliskipulagsins, bæði hvað varðar mænisstefnu, þakform, mænishæð og staðsetningu hússins innan byggingarreits. Sökklar hafa verið steyptir og búið er að reisa burðarvirki hússins og klæða útveggi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa erindinu til byggingarfulltrúa.

39.Frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum, skriðuföllum o.fl. 4. mál.
2609032
Erindi nefnda- og greiningarsviðs Alþingis, dags. 17.09.2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um varnir gegn snjóflóðum og skriðuföllum o.fl. (markmið, nýting eigna, framkvæmdaumsjón), 4. mál
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 1. október nk.
Erindið var lagt fram.
40.Frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög.
2505027
Erindi nefnda- og greiningarsviði Alþingis, dags. 17.09.2026, þar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar 5. mál, Sveitarstjórnarlög.
Frestur til að senda inn umsögn er til og með 7. október nk.

Lögð var fram umsögn sem unnin er af Guðjóni Bragasyni, lögmanni, fyrir hóp sveitarfélaga.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur undir umsögn Guðjóns og felur sveitarstjóra að skila inn umsögn til Alþingis.

41.Aðalskipulagsbreytingar Húnabyggð 2024
2411014
Erindi af Skipulagsgáttinni, dags. 10.09.2026, þar sem óskað er umsagnar um eftirfarandi mál: Aðalskipulag Húnabyggðar 2025-2037, nr. 1293/2024: Auglýsing tillögu (Nýtt aðalskipulag)
Erindið var lagt fram. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna.
42.Rekstrarleyfisumsókn Guðmundarbraut 1 F231153
2610004
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 16.09.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður frá Benedikt E. Elvarssyni fyrir hönd IBL ehf., kt. 461023 - 1340 á sumarbústaðalandinu Guðmundarbraut 1 (F251 3212) í Bláskógabyggð.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Af hálfu sveitarstjórnar er veitt jákvæð umsögn um erindið.
43.Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald
2609043
Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald.
Fundargerð fundar ferðaþjónustuaðila með atvinnuvegaráðherra, sem haldinn var 29. september 2026.

Drög að frumvarpi til laga um náttúru- og innviðagjald var lagt fram, ásamt fundargerð. Umsagnarfrestur er til 7. október 2026.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar felur sveitarstjóra að skila inn umsögn um frumvarpsdrögin.

44.Frumvarp til fjárlaga 2027
2609042
Umsögn Bláskógabyggðar um frumvarp til fjárlaga 2027
Frumvarp til fjárlaga 2027 hefur verið lagt fram. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar felur sveitarstjóra að skila inn umsögn um frumvarpið.
45.Yfirlit vegna fjárlagafrumvarps 2027
2609034
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga: Yfirlit yfir atriði í fjárlagafrumvarpi sem snerta sveitarfélögin.
Lagt fram til kynningar.
46.Kjördæmavika þingmannafundur 2026
2609039
Minnisblað lagt fram á fundi með þingmönnum Suðurkjördæmis í kjördæmaviku.
Minnisblaðið var lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:55.