Sveitarstjórn Bláskógabyggðar

419. fundur 21. október 2026 kl. 09:00 - 10:40 í Aratungu, Reykholti
Nefndarmenn
  • Helgi Kjartansson Aðalmaður
  • Stefanía Hákonardóttir Aðalmaður
  • Áslaug Alda Þórarinsdóttir Aðalmaður
  • Ísak Eyfjörð Arnarson Aðalmaður
  • Kristján Einir Traustason Aðalmaður
  • Anna Greta Ólafsdóttir Aðalmaður
  • Valdís María Smáradóttir Aðalmaður
Starfsmenn
  • Ásta Stefánsdóttir Sveitarstjóri
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá

1.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

-7. liður á dagskrá 333. fundar, framkvæmdarleyfisumsókn, breytt lagnaleið. Áður á dagskrá á 418. fundi.
-liður 7, Laugarvatni L224243, dæluskúr og lagnir, framkvæmdarleyfi. Ólafur Josef Ólafsson, veitustjóri, sat fundinn undir þessum lið. Sveitarstjórn samþykkir breytta legu lagna. Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út uppfært framkvæmdarleyfi.

2.Fundargerð skipulagsnefndar

2601004

334. fundur haldinn 14.10.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 6-12.

-liður 6, Skálabrekka Vestri L229116; Lindarbrekkugata, Unnargata og Guðrúnargata; Lega, stærð og fjöldi lóða; Deiliskipulagsbreyting 2504067
Lögð er fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku-Vestri, sem felur í sér breytingar á legu og stærð lóða og byggingarreita, auk þess sem lóðum er fjölgað úr 21 í 23. Tillagan var samþykkt í sveitarstjórn Bláskógabyggðar 26. júní 2026 og fyrri auglýsing felld úr gildi vegna formgalla á málsmeðferð. Jafnframt er lögð fram afgreiðsla HMS, dags. 25. september 2026, þar sem fram kemur að stofnunin geti ekki tekið afstöðu til forms deiliskipulagsbreytingarinnar þar sem umsögn Umhverfis- og Orkustofnunar liggur ekki fyrir, meðal annars um fjarlægð bygginga frá Þingvallavatni. Í tölvupósti frá Umhverfis- og Orkustofnun, dags. 29. september 2026, kemur fram að stofnunin veiti almennt ekki umsagnir um skipulagsmál nema sérstaklega sé óskað eftir þeim og að hún hafi ekki gert athugasemdir í málinu.
Sveitarstjórn hefur farið yfir erindi HMS, dags. 25. september 2026, vegna breytingar á deiliskipulagi frístundabyggðar í Skálabrekku-Vestri.
Sveitarstjórn bendir á að í tölvupósti Umhverfis- og orkustofnunar, dags. 29. september 2026, komi skýrt fram að stofnunin veiti almennt ekki umsagnir um skipulagsmál nema sérstakt tilefni sé til og að stofnunin hafi ekki talið ástæðu til að gera athugasemdir við fyrirliggjandi tillögu eða veita sérstaka umsögn vegna hennar. Að mati sveitarstjórnar verður því ekki ráðið að efnislegar athugasemdir liggi fyrir af hálfu stofnunarinnar varðandi fjarlægð bygginga frá Þingvallavatni eða önnur atriði er varða deiliskipulagstillöguna. Sveitarstjórn telur að málið hafi sætt fullnægjandi kynningu og lögmætri málsmeðferð samkvæmt skipulagslögum. Engar athugasemdir bárust við auglýsta tillögu. Jafnframt liggur fyrir að heimildir aðalskipulags gera ráð fyrir allt að 79 frístundalóðum innan svæðisins en breytingartillagan felur í sér 23 lóðir að lokinni breytingu. Sveitarstjórn telur að með framangreindum skýringum hafi verið brugðist við þeim atriðum sem HMS óskaði nánari upplýsinga um og gerir ekki frekari athugasemdir við málið.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar staðfestir samþykkt deiliskipulagsbreytingarinnar að nýju og felur skipulagsfulltrúa að skila framangreindum skýringum og umbeðnum gögnum inn í Skipulagsgátt til lokaafgreiðslu málsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að deiliskipulagsbreytingin verði auglýst í B-deild Stjórnartíðinda og taki gildi við þá birtingu, sbr. 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

-liður 7, Brattholt 3 L223782; Byggingarmagn aukið; Deiliskipulagsbreyting 2609019
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar sem tekur til Brattholts 3, L223782. Í breytingunni felst breyting á legu byggingarreits, aukning byggingarheimilda og uppfærsla skilmála til samræmis við gildandi lög og reglugerðir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggð samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.

-liður 8, Bergsstaðir lóð 2 L200941; Skilgreining byggingarreits og aðkomuvegur; Deiliskipulagsbreyting 2610002
Lögð fram ný tillaga að deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðina Bergsstaðir lóð 2 (L200941) í Bláskógabyggð. Lóðin var hluti af frístundarbyggðinni Bergsstaðir (F84) en var breytt í verslunar- og þjónustulóð með aðalskipulagsbreytingunni sem var samþykkt af sveitarstjórn Bláskógabyggðar þann 01.04.2026 og staðfest af HMS þann 07.05.2026. Heimilt er að vera með gistingu fyrir allt að 14 gesti á lóðinni, skv. flokki I og II í reglugerð. Í skipulagsbreytingunni er skilgreindur nýr byggingareitur þar sem heimilt er að byggja allt að 3 smáhýsi til útleigu. Á lóðinni innan núverandi byggingareits er í dag 65,8 m² sumarhús til útleigu. Núverandi aðkomuvegur að lóð 3 verður færður niður fyrir nýjan byggingareit.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar breytingar á deiliskipulagi.

-liður 9, Vörðubrekka 3 L236439; Aukið byggingarmagn; Deiliskipulagsbreyting 2610008
Lögð er fram tillaga deiliskipulagsbreytingar þar sem óskað er eftir fráviki frá deiliskipulagi á lóð Vörðubrekku 3, Landareign L236439. Óskað er eftir því að fá að auka hámarks byggigarmagn í 269 fm.Samkvæmt deiliskipulagi frá 2007, skipulagsnúmer 12143, Málsnúmer 201403058. Skal bygging ekki vera stærri en 200m2, nýtingarhlutfall ekki vera meira en 0,03. Þar kemur einnig fram að lóðir séu 6.900 m2. Samkvæmt Landeignaskrá HMS er landareign L236439, Vörðubrekka 3 skráð 7.104 m2. Miðað við 7.104 m2 væri nýtt nýtingarhlutfall lóðar 0,038. Gert er ráð fyrir húsi á einni hæð, þar sem mænishæð er vel undir þeim viðmiðum sem koma fram í deiliskipulagi.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar synjar erindinu um aukið byggingarmagn á lóðinni Vörðubrekkukoti 3, L236439, þar sem fyrirhuguð breyting fer yfir leyfilegt nýtingarhlutfall 0,03 og samræmist því ekki gildandi deiliskipulagi svæðisins og Aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027.

-liður 10, Brautarhóll lóð L206903; Fjölgun lóða og byggingarreitum breytt; Deiliskipulagsbreyting 2610022
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðir við Vegholt 1a-7a og 9-18 í Reykholti. Í breytingunni felst að lóðunum Vegholti 4 og 6 verður breytt í þrjár lóðir, nr. 2, 4 og 6, ásamt því að byggingarreitir á svæðinu verða færðir nær lóðamörkum og heimilaðir í 10 m fjarlægð frá lóðamörkum sem snúa að Vegholti. Jafnframt verður bætt við aðkomu að lóð nr. 2.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi. Þar sem engir aðrir hagsmunaaðilar eru innan svæðisins en umsækjandi er ekki talin þörf á grenndarkynningu.

-liður 11, Snorrastaðir L168101; Afmarkaðar 4 lóðir og skilmálar; Deiliskipulagsbreyting 2606062
Lögð er að nýju fram deiliskipulagsbreyting fyrir hluta frístundabyggðar í Snorrastaðalandi vestan Stekkár í Bláskógabyggð, að lokinni auglýsingu. Í breytingunni felst m.a. að landinu Snorrastöðum L168101 er skipt upp í fjórar lóðir, settir byggingarskilmálar fyrir þær og lóðamörk gagnvart Snorrastöðum 11 færð til samræmis við mæld mörk. Jafnframt er gert ráð fyrir nýrri vegtengingu að Hrannarbóli úr suðvestri. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og hafa verið lagðar fram ásamt viðbrögðum við þeim.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti innan gagnanna. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

-liður 12, Faxaflöt L241163; Bætt við landi úr Heiði L167104 og Heiði 1 L173711; Breytt stærð lóðar 2610013
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags. 16.09.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Faxaflöt L241163 um 683 m2. Stækkunin kemur úr Heiði L167104 og Heiði 1 L173711.
Sveitarstjórn gerir ekki athugasemd við fyrirliggjandi merkjalýsingu.

Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

3.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar

2601002

85. fundur haldinn 16.10.2026.
-liður 1, 2503035 virkjun borholu á Laugarvatni. Ólafur Jósef Ólafsson, veitustjóri, kom inn á fundinn. Farið var yfir lagnaleið og tengingar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

4.Fundargerð afgreiðslufunda byggingarfulltrúa

2601005

266. fundur haldinn 07.10.2026
Lagt fram til kynningar.

5.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings

2601033

Fundur haldinn 06.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

6.Fundargerð stjórnar Bergrisans

2602007

96. fundur haldinn 05.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

7.Fundargerð stjórnar Tónlistarskóla Árnesinga

2602015

221. fundur haldinn 29.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

8.Fundargerð stjórnar Brunavarna Árnessýslu

2604010

7. fundur haldinn 17.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

9.Fundargerð stjórnar Byggðasafns Árnesinga

2601053

2. fundur haldinn 26.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.

10.Fundargerðir stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga

2601056

1003. fundur haldinn 23.09.2026

1004. fundur haldinn 08.10.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.

11.Styrkbeiðni Sigurhæða vegna rekstrarársins 2027

2610021

Beiðni Sigurhæða, dags. 11.10.2026, um styrk til reksturs Sigurhæða.
Lögð var fram umsókn sjálfseignarstofnunarinnar Sigurhæða um rekstrarstyrk að fjárhæð kr. 738.141. Í erindinu er gerð grein fyrir breytingum á rekstrarformi Sigurhæða, sem áttu sér stað í lok árs 2025. Sigurhæðir reka þolendamiðstöð fyrir konur sem verða fyrir kynbundu ofbeldi.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að styrkja starfsemina um 500.000 kr á árinu 2027. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

12.Styrkbeiðni Samtaka um karlaathvarf

2610016

Beiðni Samtaka um karlaathvarf, dags. 13.10.2026, um stuðning við nýjan hjálparsíma samtakanna og þá aðstoð sem samtökin veita körlum í erfiðum aðstæðum.
Lögð var fram beiðni Samtaka um karlaathvarf um stuðning var lögð fram.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að veita umbeðinn styrk.

13.Styrkbeiðni Stígamóta vegna rekstrarársins 2027

2610024

Styrkbeiðni Stígamóta, dags. 07.10.2026, vegna rekstrarársins 2027.
Erindi Stígamóta var lagt fram. Þar er sótt um fjárstuðning og samstarf um rekstur Stígamóta. Samtökin sinna stuðningi við brotaþola kynferðisofbeldis.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að sveita umbeðinn styrk.

14.Styrkbeiðni Kvennaathvarfsins vegna rekstrarársins 2027

2610027

Beiðni Samtaka um Kvennaathvarf, dags. 06.10.2026, um rekstrarstyrk vegna ársins 2027.
Beiðni Samtaka um Kvennaathvarf var lögð fram. Sótt er um 200.000 kr rekstrarstyrk. Samtökin veita konum og börnum skjól sem flýja þurfa heimili sín vegna ofbeldis, auk þess sem þau veita ráðgjafarþjónustu.
Sveitarstjórn sér sér ekki fært að sveita umbeðinn styrk.

15.Styrkbeiðni Björgunarsveitarinnar Ingunnar vegna uppfærslu á dróna

2610029

Beiðni Björgunarsveitarinnar Ingunnar, dags. 26.09.2026, um styrk vegna uppfærslu á dróna í eigu sveitarinnar.
Lögð var fram beiðni Bjsv. Ingunnar um styrk til uppfærslu á dróna. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að styrkja verkefnið um 200.000 kr.
Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.

16.Reglur um veghald í frístundabyggðum

2610026

Erindi stjórnar Fells, frístundabyggðar, dags. 07.10.2026, þar sem óskað er eftir breytingum á reglum Bláskógabyggðar um styrki til veghalds í frístundabyggðum.
Erindið var lagt fram. Þar er lagt til að reglum sveitarfélagsins um styrki til veghalds í frístundabyggðum verði breytt á þann hátt að umsækjendum verði heimilað að safna upp styrkjum vegna þriggja til fjögurra ára vegna stærri framkvæmda, í stað þess að veittir séu styrkir á hverju ári fyrir framkvæmdum innan þess árs.

17.Beiðni um stækkun lóðar Fontana, fjölgun bílastæða ofl

2204016

Erindi Fontana, dags. 13.10.2026, varðandi bílastæði.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir að sveitarfélagið taki til skoðunar möguleika á afnotum lands í nágrenni Fontana undir viðbótarbílastæði, en þörf sé fyrir allt að 120 bílastæði til viðbótar.
Umræða varð um málið.
Sveitarstjórn frestar málinu fram að næsta fundi, oddvita og sveitarstjóra er falið að ræða við fulltrúa Fontana í samræmi við umræður á fundinum.

18.Hlutafé í Gufu Laugarvatni Fontana ehf

2610031

Tilkynning varðandi forkaupsrétt og boð um kaup Bláa lónsins hf á hlutfé í Laugarvatn Fontana ehf, dags. 07.07.2026.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir að afstaða verði tekin til forkaupsréttar að hlutabréfum. Einnig er tilkynnt að Bláa Lónið hf sé reiðubúið að kaupa hluti annarra hluthafa í Gufu-Laugarvatn Fontana ehf á genginu 10,855.
Sveitarstjórn samþykkir að hafna forkaupsrétti að hlutabréfum. Sveitarstjórn er ekki reiðubúin til að selja hlutinn að sinni.

19.Fjárhagsáætlun 2027 og 2028-2029

2609017

Áætlun Sambands íslenskra sveitarfélaga um útsvarstekjur árið 2027.
Áætlunin var lögð fram til kynningar.

20.Úttekt á umferðaröryggi

2608025

Tilboð í gerð umferðaröryggisáætlunar fyrir Bláskógabyggð. Minnisblað, dags. 18.10.2026.
Lögð voru fram tilboð sem bárust í gerð umferðaröryggisáætlunar ásamt minnisblaði.
Sveitarstjórn samþykkir að taka tilboði Eflu verkfræðistofu ehf.
Eftirtaldir aðilar eru skipaðir til setu í starfshópi:
Valdís Smáradóttir
Sindri Fannar Sigurbjörnsson
Anna Svava Sverrisdóttir

Sveitarstjóri og sviðsstjóri framkvæmda- og veitusviðs starfi með hópnum.

21.Jafnvægisvogin

2610030

Kynning á Jafvægisvog FKA, dags. 16.09.2026
Lagt fram til kynningar.

22.Frumvarp til laga um sveitarstjórnarlög (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn) 73. mál.

2311026

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 12.10.2026, þar sem sent er til umsagnar 59. mál, frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011 (fjöldi fulltrúa í sveitarstjórn).



Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Lagt fram til kynningar.

23.Frumvarp til laga um breytingar á lögum um Byggðastofnun

2610023

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 08.10.2026, þar sem sent er til umsagnar 156. mál, frumvarp til laga um breytingu á lögum um Byggðastofnun, nr. 106/1999 (lagfæringar).



Frestur til að senda inn umsögn er til og með 22. október nk.
Lagt fram til kynningar.

24.Þingsályktunartillaga um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá

2610017

Erindi Umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 13.10.2026, þar sem sent er til umsagnar 88. mál, tillaga til þingsályktunar um endurskoðun laga um sjávarflóðavarnir, ofanflóðavarnir og náttúruvá.



Frestur til að senda inn umsögn er til og með 27. október nk.
Lagt fram til kynningar.

25.6. áfangi rammaáætlunar

2608043

Tilkynning, dags. 13.10.2026, um að verkefnisstjórn 6. áfanga rammaáætlunar hafi flokkað sjö vindorkuverkefni og sett tillögu sína ásamt skýrslu og fylgisskjölum í 12 vikna samráð í samráðsgátt stjórnvalda.
Lagt fram til kynningar.

26.Viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga

2610019

Tilkynning Innviðaráðuneytisins, dags. 12.10.2026, um að birtar hafi verið tillögur um viðmið um sjálfbæra þróun sveitarfélaga í samráðsgátt stjórnvalda og að þau séu til umsagnar til 13.11.2026.
Lagt fram til kynningar.

27.Námsmat í grunnskólum

2610025

Tilkynning Mennta- og barnamálaráðuneytisins um að drög að ákvæði til bráðabirgða í aðalnámskrá grunnskóla séu til umsagnar á Samráðsgátt.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar vill benda á mikilvægi þess að vandað sé til verka við innleiðingu breytts námsmats og því ætlaður sá tími sem nauðsynlegur er til þess að niðurstaðan verði góð og styðji markmið breytinganna um jafnræði, skýrleika og samræmi. Fyrirhugað er að nemendur sem nú eru í 10. bekk fái námsmat eftir nýju kerfi við lok grunnskólagöngu nk vor. Breytingarnar eru enn í samráðsferli, þó svo að skólaárið sé hafið og nemendur þegar farnir að skila verkefnum og taka próf. Sveitarstjórn leggur til að innleiðingunni verði frestað þar til kerfið hefur verið fullgert.

28.Fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu 2027

2610020

Fjárhagsáætlun Brunavarna Árnessýslu fyrir árið 2027
Lagt fram.

29.Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Árnesinga 2027

2610028

Fjárhagsáætlun Tónlistarskóla Árnesinga vegna ársins 2027
Lagt fram.

30.Ársskýrsla Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2026

2610015

Ársskýrsla Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2026
Lagt fram.

31.Könnunin sveitarfélag ársins 2026

2603055

Skýrsla um niðurstöður könnunarinnar Sveitarfélag ársins 2026
Lagt fram.

32.Málþing um sveitarstjórnarmál

2610018

Erindi Rannsóknarseturs í byggða- og sveitarstjórnarmálum, dags. 12.10.2026, þar sem kynnt er málþing um sveitarstjórnarmál sem haldið verður 22. október.
Lagt fram.

Fundi slitið - kl. 10:40.

Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?