Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
335. fundur haldinn 28.10.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 3 til 7.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
86. fundur haldinn 26.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
3.Fundargerð skólanefndar
2601003
51. fundur haldinn 26.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
Sveitarstjórn tekur undir með nefndinni að halda upp á 40 og 50 ára afmæli leikskólahalds á Laugarvatni og í Reykholti.
Sveitarstjórn tekur undir með nefndinni að halda upp á 40 og 50 ára afmæli leikskólahalds á Laugarvatni og í Reykholti.
4.Fundargerð stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)
2602043
3. fundur haldinn 14.10.2026, ásamt minnisblaði. Afgreiða þarf lið 2, sérstaklega.
-liður 2, yfirfærsla fjárframlaga vegna fjárfestinga í Seyrustöðum frá stofnun fram að yfirfærslu inn í UTU.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir fyrir sitt leyti að færa eignir inni í byggðasamlagið með stofnframlagi (eiginfjárframlagi) sveitarfélaganna, í samræmi við tillögu KPMG að úrlausn.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.

5.Fundargerð stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)
2602043
4. fundur haldinn 28.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
6.Fundargerðir afgreiðslufunda byggingarfulltrúa
2601005
267. fundur haldinn 14.10.2026
268. fundur haldinn 21.10.2026
269. fundur haldinn 28.10.2026
268. fundur haldinn 21.10.2026
269. fundur haldinn 28.10.2026
Fundargerðirnar voru lagðar fram til kynningar.
7.Fundargerð stjórnar Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga (SASS)
2601026
639. fundur haldinn 02.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
8.Aðalfundur Listasafns Árnesinga bs 2026
2604046
Aðalfundur haldinn 29.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
9.Aðalfundur Byggðasafns Árnesinga bs 2026
2604045
Aðalfundur haldinn 29.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
10.Aðalfundur Tónlistarskóla Árnesinga bs 2026
2604048
Aðalfundur haldinn 29.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
11.Aðalfundur Brunavarna Árnessýslu bs 2026
2604044
Aðalfundur haldinn 29.09.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
12.Samstarfsyfirlýsing um Öruggara Suðurland
2404058
Endurnýjun samstarfsyfirlýsingar Lögreglustjórans á Suðurlandi, sveitarfélaga á Suðurlandi o.fl. um verkefnið Öruggara Suðurland.
Samstarfsyfirlýsingin var lögð fram. Yfirlýsingin var undirrituð í tengslum við ársþing SASS hinn 30. október s.l. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar staðfestir samstarfsyfirlýsinguna fyrir sitt leyti.
13.Lóðamörk Háholt 7a 7b
2204018
Erindi Guðgeirs Sigmundssonar og Sigríðar Guðjohnsen, dags. 22.10.2026, varðandi lóðar- og skipulagsmál við Háholt 7b á Laugarvatni.
Erindið var lagt fram. Sveitarstjóra er falið að svara erindinu.
14.Endurnýjun samnings við Hestamannafélagið Jökul
2611001
Erindi Hestamannafélagsins Jökuls, dags. 29.10.2026, varðandi endurnýjun samnings. Ársskýrsla æskulýðsnefndar.
Ársskýrslan var lögð fram ásamt erindi Hestamannafélagsins, þar sem óskað er eftir endurnýjun á samstarfssamningi sem gildir út árið 2026. Sveitarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti að endurnýja samninginn á sömu forsendum og núgildandi samning og að samningurinn verði lagður fyrir sveitarstjórn.
15.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Suðurbraut)
2611002
Styrkumsókn Félags sumarhúsaeigenda við Suðurbraut vegna veghalds, dags. 28.09.2026. Sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 983.915.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
16.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Skálabrekka)
2611003
Styrkumsókn Sumarhúsafélags Skálabrekku, dags. 25.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 2.887.916
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
17.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Efstidalur 2)
2611004
Styrkumsókn Efstadalsfélagsins, dags. 20.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 1.000.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
18.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Veiðilundur)
2611005
Styrkumsókn stjórnar Veiðilundar, dags. 15.09.2026, sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 1.243.620.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
19.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Austurey 1)
2611006
Styrkumsókn Félags sumarhúsaeigenda í landi Austureyjar, dags. 13.09.2026, þar sem sótt er um stykr vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 522.040.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 261.020 með vísan til b-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
20.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Stekkjarlundur)
2611007
Styrkumsókn Félags sumarbústaðaeigenda Stekkjarlundi, dags. 11.09.2026, þar sem sótt er um stykr vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 1.649.540.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
21.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Miðhúsaskógur)
2611008
Styrkumsókn VR, dags. 12.09.2026, þar sem sótt erum styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 6.618.606.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
22.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Holtshverfi)
2611009
Styrkumsókn Félags sumarhúsaeigenda í Holtshverfi, Rv., dags. 07.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkæmdakostnaðar sem nemur kr. 800.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
23.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Helludalur)
2611010
Styrkumsókn Helludalsfélagsins, dags. 03.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna áætlaðs framkvæmdarkostnaðar, kr. 6.596.120.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
24.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Sandskeið)
2611011
Styrkumsókn Félags sumarhúsaeigenda við Sandskeið, dags. 02.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 961.694.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
25.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Heiðarbyggð)
2611012
Styrkumsókn stjórnar Heiðarbyggðar, dags. 01.09.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkæmdarkostnaðar sem nemur kr. 1.355.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
26.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Stakkholt og Vallarholt)
2611013
Styrkumsókn Skógarholts, dags. 18.08.2026, þar sem sótt er um styrk vegna framkæmdakostnaðar sem nemur kr. 1.000.000.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
27.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Leynir)
2611014
Stykrumsókn, Dvalar, félags sumarhúsaeigenda í landi Leynis, dags. 25.05.2026, sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 2.039.448.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 400.000 með vísan til a-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
28.Styrkumsókn vegna veghalds í frístundabyggð (Ásar í landi Fells)
2611015
Styrkumsókn Ása í landi Fells, dags. 19.11.2025, þar sem sótt er um styrk vegna framkvæmdakostnaðar sem nemur kr. 702.572.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 351.286 með vísan til b-liðar 4. gr. reglna um veghald í frístundabyggðum. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
29.Skattaálögur á atvinnulíf í Bláskógabyggð
2611016
Áform um hækkun vsk á baðlón og náttúru- og innviðagjald á Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Ályktun sveitarstjórnar. Oddviti fer yfir fundi sem fulltrúar sveitarfélagsins hafa sótt um málefnið.
Farið var yfir stöðu málanna. Af hálfu sveitarfélagsins hefur verið skilað umsögnum um frumvarp til fjárlaga og frumvarp til breytinga á ýmsum lögum vegna fjárlaga, svo og um frumvarp til sveitarstjórnarlaga og frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald, sem leggja á á Gullfoss, Geysi og Þingvelli. Sveitarstjóri sat fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í vikunni þar sem rætt var um samráð við sveitarfélög og áhrifamat á ákvarðanir ríkisvaldsins gagnvart sveitarfélögunum. Á morgun mun sveitarstjóri sitja fund efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem frumvarp um breytingar á ýmsum lögum vegna fjárlaga er til umfjöllunar, en þar undir heyrir breyting á lögum um virðisaukaskatt vegna baðlóna. Sveitarfélögin í uppsveitum Árnessýslu hafa fengið ferðaþjónustuaðila til fundar við sig á síðustu dögum. Fulltrúar sveitarfélaganna hafa fundað með atvinnuvegaráðherra í tvígang, auk þess sem þeir fjölmenntu á opinn fund með fjármálaráðherra um sl helgi. Þá hafa nokkrir fundir verið haldnir með þingmönnum. Ársþing SASS, sem haldið var í lok sl viku, ályktaði um áform um auknar skattaálögur á ferðaþjónustuna og hafa fulltrúar sveitarfélaganna rætt málið í fréttum fjölmiðla og fréttatengdum þáttum. Þá hafa fjölmargar greinar verið skrifaðar og birtar á vefmiðlum.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt: Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir harðlega þeim áformum sem ríkisstjórnin hefur um álagningu skatta á atvinnulíf í Bláskógabyggð. Sveitarstjórn telur áformin, eins og þau eru útfærð, ósanngjörn og fela í sér alvarlega mismunun milli fyrirtækja í greininni og verulega röskun á samkeppnisstöðu. Sveitarstjórn telur áformin hafa alvarleg áhrif á samfélagið, atvinnu, fjárfestingu og tekjustofna sveitarfélaga. Þá hefur sveitarstjórn efasemdir um að innleiðing náttúru- og innviðagjalds með þeim hætti sem áformað er standist ákvæði samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Sveitarstjórn undrast að ekki hafi verið haft samráð við sveitarfélagið eða það verið upplýst um áformin. Þá er ámælisvert að engar greiningar liggi fyrir og að engin gögn um áhrif á atvinnulíf í sveitarfélaginu hafi legið fyrir áður en áformin voru sett fram. Sveitarstjórn krefst þess að ríkisstjórnin útfæri gjaldtökuna með öðrum og sanngjarnari hætti, í sátt við hagaðila.

30.Rekstrarleyfisumsókn fyrir Brekkuheiði 66 260 6873
2610036
Erindi Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 16.10.2026, þar sem óskað er umsagnar um rekstrarleyfisumsókn vegna Brekkuheiði 66. Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Beiðni Sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 16.10.2026, var lögð fram. Þar er óskað eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarhús frá Sigurði Þ. Sigurðssyni fyrir hönd SÞS ehf. kt. 640269 - 3679 á sumarbústaðalandinu Brekkuheiði 66 (F234 5929) í Bláskógabyggð.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn útgáfu leyfisins þar sem það samræmist ekki ákvæðum gildandi skipulags.
Umsögn byggingarfulltrúa liggur fyrir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar leggst gegn útgáfu leyfisins þar sem það samræmist ekki ákvæðum gildandi skipulags.
31.Evrópustyrkur European Energy Communities Facility
2606038
Tilkynning ENERCOM, dags. 27.10.2026, um að Lífgas ehf hafi fengið styrk vegna lífgasverkefnis í Bláskógabyggð.
Lagt fram til kynningar.
32.Niðurfelling Mjóanesvegar af vegaskrá
2610037
Tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 20.10.2026, þar sem tilkynnt er um fyrirhugaða niðurfellingu Mjóanesvegar af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.
33.Niðurfelling Kárastaðavegar af vegaskrá
2610038
Tilkynning Vegagerðarinnar, dags. 20.10.2026, um fyrirhugaða niðurfellingu Kárastaðavegar af vegaskrá.
Lagt fram til kynningar.
34.Útsvarstekjur 2026
2603005
Yfirlit yfir þróun útsvars janúar til október 2026
Yfirlitið var lagt fram. Útsvarstekjur eru á áætlun.
Fundi slitið.
Lögð er fram fyrirspurn vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar á Kistutjörnum í Bláskógabyggð, þar sem óskað er eftir afstöðu til breytinga á byggingarmagni og notkun byggingarreita B10 og B11 í gildandi deiliskipulagi. Fyrirhugað er að auka heimilað byggingarmagn á B10 úr 2.000 m² í 3.100 m² og lækka það á B11 úr 3.000 m² í 1.900 m², þannig að heildarbyggingarmagn haldist óbreytt, samtals 5.000 m². Jafnframt er óskað eftir afstöðu til fyrirhugaðrar veisluaðstöðu og veitingaþjónustu á B11, samhliða geymslunotkun, og hvort áformin rúmist innan aðalskipulags Bláskógabyggðar.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar tekur jákvætt í erindið. Sveitarstjórn telur að hægt sé að fara í breytingu á deiliskipulagi sem felur í sér tilfærslu byggingarmagns milli byggingarreita B10 og B11, þannig að byggingarmagn haldist óbreytt samtals 5.000 m². Jafnframt sé hægt að breyta notkunarskilmálum B11 þannig að þar verði heimil veisluaðstaða og veitingaþjónusta samhliða geymslunotkun, þar sem að það er í samræmi við aðalskipulag Bláskógarbyggðar 2015-2027.
-liður 4, Reykjabraut 1 L192616; Breyta í verslun og þjónustu; Fyrirspurn 2610035
Lögð er fram fyrirspurn eiganda Reykjarbrautar 1 á Laugarvatni um möguleika á breyttri landnotkun og skilmálum fyrirhugaðs atvinnuhúsnæðis. Húsið hefur verið byggt sem einbýlishús á einni og hálfri hæð en eigandi óskar eftir að geta leigt út neðri hæð hússins undir ferðaþjónustu eða verslunar- og þjónustustarfsemi, þar sem núverandi skilmálar um 90 daga útleigu takmarka nýtingu húsnæðisins. Í fyrirspurninni er jafnframt óskað eftir leiðbeiningum um hvort og með hvaða hætti breyta þurfi skipulagi eða landnotkun til að heimila slíka starfsemi.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar synjar fyrirspurninni þar sem að hún er hvorki í samræmi við gildandi aðalskipulag Bláskógabyggðar 2015-2027 né gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.
-liður 5, Hlauptunga L229945 við Brúarfoss; Áningarstaður; Deiliskipulag 2604039
Lögð er fram, eftir auglýsingu, tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Hlauptungu L229945 við Brúarfoss í Bláskógabyggð. Deiliskipulagið tekur til um 826 m² svæðis þar sem fyrir er malarplan og aðkomuvegur. Með skipulaginu er meðal annars gert ráð fyrir að leggja bundið slitlag á bílastæði, koma upp salernisaðstöðu og bæta upplýsingagjöf á svæðinu.
Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Eldvarnaeftirliti Brunavarna Árnessýslu. Vegagerðin, Heilbrigðiseftirlit Suðurlands og Eldvarnaeftirlit Brunavarna Árnessýslu gera ekki athugasemdir við tillöguna. Náttúruverndarstofnun bendir hins vegar á að skýra þurfi hvort fyrirhugaðar framkvæmdir og innviðir tengdir áningarstaðnum séu að fullu innan skipulagsmarka og að taka þurfi mið af áhrifum aukinnar umferðar gesta á gönguleiðina, gróður og fuglalíf við Brúarfoss.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagt deiliskipulag eftir auglýsingu. Sveitarstjórn telur að brugðist hafi verið við umsögnum sem bárust vegna málsins með fullnægjandi hætti. Sveitarstjórn mælist til þess að deiliskipulagið taki gildi með birtingu auglýsingar í B-deild Stjórnartíðinda að lokinni yfirferð HMS í samræmi við 42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
-liður 6, Hrísholt 10; Laugarvatn; Byggingarreitur stækkaður; Deiliskipulagsbreyting 2610051
Lögð er fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi þéttbýlis Laugarvatns vegna lóðarinnar Hrísholts 10. Breytingin felst í því að byggingarreitur lóðarinnar er stækkaður til að koma fyrir frístandandi bílskúr. Lóðarmörk og stærð lóðar haldast óbreytt.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir framlagða breytingu á deiliskipulagi svæðisins. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á deiliskipulagi.
-liður 7, Laugarás L167138; Stofnstrengur undir Hvítá, Laugarás-Auðsholt; Framkvæmdarleyfi 2610069
Lögð er fram framkvæmdaleyfisumsókn vegna bilunar í miðlægum stofnstreng rafveitu sem liggur undir Hvítá milli Laugaráss í Bláskógabyggð og Auðsholts í Hrunamannahreppi. Fyrirhugað er að leggja nýjan streng undir Hvítá, sem tengist inn á eldri streng Auðsholtsmegin, en Laugarásmegin verður grafinn skurður eða plægt frá enda rörsins að tengipunkti við strenginn. Framkvæmdin er áætluð um leið og framkvæmdaleyfi hefur verið samþykkt.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir fyrir sitt leyti útgáfu framkvæmdaleyfis vegna lagningar nýs stofnstrengs rafveitu undir Hvítá milli Laugaráss og Auðsholts á grundvelli 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagsfulltrúa er falin útgáfa leyfisins.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.