Sveitarstjórn Bláskógabyggðar
Dagskrá
1.Fundargerð skipulagsnefndar
2601004
336. fundur haldinn 11.11.2026, afgreiða þarf sérstaklega liði nr. 1-6.
2.Fundargerð framkvæmda- og veitunefndar
2601002
87. fundur haldinn 13.11.2026, afgreiða þarf sérstaklega lið nr. 6.
-liður 6, 2604026 viðhald búningsklefa í íþróttahúsinu á Laugarvatni. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða tillögu framkvæmda- og veitunefndar um að leitað verði tilboða í verkið. Gert verði ráð fyrir verkefninu í fjárhagsáætlun næsta árs.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
3.Fundargerð stjórnar umhverfis- og tæknisviðs uppsveita (UTU)
2602043
5. fundur haldinn 11.11.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
4.Fundargerð afgreiðslufundar byggingarfulltrúa
2601005
271. fundur haldinn 11.11.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
5.Fundargerð stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga
2601056
1005. fundur haldinn 30.10.2026
Fundargerðin var lögð fram til kynningar.
6.Fundargerð stjórnar Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings
2601033
27. fundur haldinn 02.11.2026, afgreiða þarf sérstaklega lið nr. 5.
-liður 5, beiðni um viðauka við fjárhagsáætlun vegna ársins 2026. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun að fjárhæð kr. 2.808.601 vegna launakostnaðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.
7.Aðalfundur Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2026
2611018
Aðalfundur haldinn 02.11.2026, ásamt skýrslu stjórnar.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar ásamt fylgigögnum.
8.Aðalfundur Bergrisans bs 2026
2609029
Aðalfundur Bergrisans bs haldinn 06.10.2026, ásamt ársskýrslu stjórnar og þjónusturáðs.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar ásamt fylgigögnum.
9.Aðalfundur Héraðsskjalasafns Árnesinga 2026
2604047
Aðalfundur haldinn 29.09.2026, ásamt ársskýrslu.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar ásamt fylgigögnum.
10.Vinnuhópur vegna umferðaröryggisáætlunar
2608025
1. fundur haldinn 28.10.2026
Fundargerð vinnuhóps var lögð fram. Könnun um ferðavenjur hefur verið send á grunnskólana til fyrirlagnar í 3. til 10. bekk, auk þess sem óskað hefur verið eftir að könunnin verði lögð fyrir nemendur ML. Þá gefst íbúum kostur á að skila athugasemdum og ábendingum inn á vefgátt.
11.Stofnun Samtaka landbúnaðarsveitarfélaga
2610001
Stofnfundur Samtaka landbúnaðarsveitarfélag, haldinn 7. október 2026, ásamt samþykktum.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar, ásamt samþykktum samtakanna. Aðild Bláskógabyggðar hefur þegar verið staðfest.
12.Fjárhagsáætlun UTU 2026 ásamt gjaldskrám
2611023
Fjárhagsáætlun UTU ásamt gjaldskrá vegna seyru og skipulagsmála
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að gert verði ráð fyrir framlögum til Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
13.Fjárghagsáætlun Bergrisans bs 2027
2611027
Fjárhagsáætlun Bergrisans bs, ásamt útkomuspá og greinargerð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að gert verði ráð fyrir framlögum til Bergrisans bs í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
14.Fjárhagsáætlun Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings 2027
2611025
Fjárhagsáætlun SVÁ fyrir árið 2027
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að gert verði ráð fyrir framlögum til Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings bs í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins.
15.Kærur vegna deiliskipulags Heiðarbæjar frá 29.04.2026
2605035
Heiðarbær við Þingvallavatn; Frístundabyggð; Kæra til ÚUA nr. 2602004. Lagt er til að skipulagsfulltrúa verði falið að annast birtingu tilkynningar í B-deild Stjórnartíðinda vegna niðurstöðu málsins
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skiplagsfulltrúa að annast birtingu tilkynningar í B-deild Stjórnartíðinda vegna niðurstöðu málsins.
16.Skil á lóð Borgarrimi 3, Reykholti
2506034
Erindi frá Möl og sandi ehf, dags. 20.10.2026, þar sem óskað er eftir heimild til að skila lóðinni Borgarrima 3, Reykholti.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða heimild til að lóðinni verði skilað. Sveitarstjóra er falið að auglýsa lóðina lausa til úthlutunar.
17.Hlutafé í Gufu Laugarvatni Fontana ehf
2610031
Drög að kaupsamningi um hlut Bláskogabyggðar í Gufu Laugarvatn Fontana ehf.
Fyrir liggur að Bláa lónið hf hefur tryggt sér yfir 90% eignarhlut í Fontana og getur því nýtt ákvæði 16. gr. laga um einkahlutafélög nr. 138/1994 um innlausn annarra hluta. Fyrir liggja drög að kaupsamningi um hlut sveitarfélagsins.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að selja hlut Bláskógabyggðar í Gufu Laugarvatn Fontana ehf til Bláa lónsins hf og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi. Gert verði ráð fyrir söluverðinu í viðauka við fjárhagsáætlun ársins.

18.Þátttaka sveitarfélaga í stafrænni umbreytingu
2110013
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 11.11.2026, þar sem kynnt er verkefnaáætlun og kostnaðarskipting stafræns samstarfs fyrir árið 2027.
Verkefnaáætlun og kostnaðarskipting voru lögð fram. Sveitarstjórn samþykkir áframhaldandi þátttöku í verkefninu og þá kostnaðarskiptingu sem er gert ráð fyrir.
19.Rammasamningur við STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH)
2611028
Erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 05.11.2026, um rammasamning við STEF og Samband flytjenda og hljómplötuframleiðenda (SFH).
Samningurinn var lagður fram.
20.Styrkbeiðni Sjóðsins góða 2026
2611035
Beiðni Sjóðsins góða, dags. 03.11.2026, um styrk.
Sjóðurinn góði, sem er samstarfsverkefni ýmissa félaga, sóknarkirkna og félagsþjónusta sveitarfélaga, óskar eftir fjárframlagi vegna úthlutunar fyrir jólin 2026. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að veita styrk að fjárhæð kr. 50.000. Kostnaður rúmast innan fjárhagsáætlunar.
21.Arfur til Listasafns Árnesinga
2604046
Tillaga um að sveitarstjórn Bláskógabyggðar staðfesti fyrir sitt leyti viðtöku Listasafns Árnesinga á arfi.
Lögð var fram erfðaskrá ásamt bókun aðalfundar Listasafns Árnesinga, þar sem óskað er eftir að aðildarsveitarfélög Listasafnsins staðfesti viðtöku á arfi skv. erfðaskrá.
Á aðalfundi Listasafns Árnesinga var samþykkt samhljóða að veita arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskrá í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um.
Fundurinn samþykkti samhljóða eftirfarandi bókun vegna málsins:
Fundarmenn vilja nýta tækifærið og votta aðstandendum Frosta Fjalars samúð sína. Samþykkt er að arfurinn verði þeginn enda eru þær óskir sem fylgja arfleiðinni þess eðlis að þær munu nýtast til eflingar faglegu starfi safnsins um ókomna tíð.
Lagt er til við sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykki fyrir sitt leyti móttöku Listasafns Árnesinga á arfinum.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að Listasafn Árnesinga bs veiti arfi Frosta Fjalars Jónssonar, kt. 291236-3169, móttöku með þeim skilyrðum eða kvöðum sem settar eru fram í erfðaskrá í þágu markmiðs arfleiðslunnar og að færa málefni búsins í farveg opinberra skipta skv. ákvæðum laga nr. 20/1991 um skipti á dánarbúum o.fl. Jafnframt verði óskað eftir því við Héraðsdóm Reykjavíkur að tiltekinn aðili verði skipaður skiptastjóri yfir dánarbúinu með hliðsjón af tillögum stjórnar þar um.

22.Erindi vegna lóðarinnar Traustatúns 13, Laugarvatni
2603042
Erindi Rebekku Ingvarsdóttur, dags. 02.11.2026, vegna lóðarinnar Traustatúns 13.
Ísak Eyfjörð og Valdís Smáradóttir véku af fundi við afgreiðslu málsins.
Erindið var lagt fram. Þar er óskað eftir að kannaður verði sá möguleiki að veittur verði afsláttur af gatnagerðargjaldi vegna tafa á því að unnt væri að hefja framkvæmdir vegna vinnu við gatnagerð, svo og þar sem uppgröftur sé umfangsmikill.
Sveitarstjórn frestar málinu til næsta fundar.

23.Rekstraryfirlit 2026
2608045
9 mánaða rekstraryfirlit Bláskógabyggðar.
Árshlutayfirlit var lagt fram. Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kom inn á fundinn og svaraði spurningum fundarmanna.
Lögð var fram eftirfarandi samantekt vegna árshlutayfirlits 1. janúar til 30. september 2026:
Árshlutayfirlit Bláskógabyggðar fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026 sýnir jákvæða rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta að fjárhæð 209,0 m.kr., samanborið við 112,4 m.kr. samkvæmt fjárhagsáætlun tímabilsins. Rekstrarniðurstaðan er því 96,6 m.kr. betri en áætlað var.
Rekstrartekjur A- og B-hluta námu samtals 2.335,1 m.kr., en rekstrargjöld, að meðtöldum afskriftum, námu um 1.995,5 m.kr. Fjármagnsliðir voru neikvæðir um 115,6 m.kr., sem er 11,5 m.kr. umfram áætlun.
Rekstrarniðurstaða A-hluta var jákvæð um 35,6 m.kr., en áætlun gerði ráð fyrir 21,7 m.kr. jákvæðri niðurstöðu. A-hluti er því um 13,9 m.kr. yfir áætlun.
Handbært fé frá rekstri nam 703,7 m.kr. á tímabilinu hjá A- og B hluta. Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum námu um 909,0 m.kr. Tekin voru ný langtímalán að fjárhæð 400,0 m.kr., en afborganir langtímalána námu um 138,2 m.kr. Handbært fé í lok september var 224,6 m.kr.
Heildareignir sveitarfélagsins voru 5.297,9 m.kr. í lok september. Eigið fé nam 2.395,2 m.kr. og skuldir og skuldbindingar samtals 2.902,8 m.kr.
Árshlutayfirlitið sýnir að rekstur samstæðu sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi eftir fyrstu níu mánuði ársins og rekstrarniðurstaða A- og B-hluta er umtalsvert betri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir. Rekstrartekjur eru undir áætlun, en á móti vegur að rekstrargjöld eru einnig lægri en áætlað var, sem hefur jákvæð áhrif á rekstrarniðurstöðuna. Á sama tíma hafa fjárfestingar aukist verulega og handbært fé lækkað frá miðju ári. Mikilvægt verður að fylgjast áfram vel með þróun rekstrarkostnaðar, fjárfestingum og lausafjárstöðu sveitarfélagsins á síðasta ársfjórðungi.

24.Fjárhagsáætlun 2027 og 2028-2030
2609017
Fjárhagsáætlun, fyrri umræða.
Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kemur inn á fundinn undir þessum lið.
Björgvin Guðmundsson, fjármálastjóri, kom inn á fundinn og kynnti fyrstu drög að fjárhagsáætlun ársins 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa fjárhagsáætlun til síðari umræðu.
25.Gjaldskrá vatnsveitu 2027
2611030
Gjaldskrá vatnsveitu Bláskógabyggðara, fyrri umræða.
Samþykkt var að vísa gjaldskránni til síðari umræðu.
26.Gjaldskrá fráveitu og hreinsun rotþróa 2027
2611031
Gjaldskrá fyrir fráveitu og hreinsun rotþróa
Samþykkt var að vísa gjaldskránni til síðari umræðu.
27.Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs 2027
2611032
Gjaldskrá um meðhöndlun úrgangs
Samþykkt var að vísa gjaldskránni til síðari umræðu.
28.Gjaldskrá Bláskógaveitu 2027
2611033
Gjaldskrá Bláskógaveitu 2027
Samþykkt var að vísa gjaldskránni til síðari umræðu.
29.Gjaldskrá leikskóla 2027
2611034
Gjaldskrá leikskóla 2027
Samþykkt var að vísa gjaldskránni til síðari umræðu.
30.Frumvarp til laga um náttúru- og innviðagjald
2609043
Minnisblað vegna frumvarps til laga um náttúru- og innviðagjald.
Lagt var fram lögfræðiálit Forum lögmanna, dags. 9. nóvember 2026.
Í álitinu, sem unnið var fyrir fjögur sveitarfélög í uppsveitum Árnessýslu, er komist að þeirri niðurstöðu að verulegar líkur séu á því að gjaldtakan brjóti í bága við 4. gr. og 36. gr. EES-samningsins. Bent er á að viðmiðið um skattalega heimilisfesti sé tilraun til að fela óbeina mismunun á grundvelli ríkisfangs. Þá séu tekjurnar ekki eyrnamerktar heldur renni þær í ríkissjóð sem almenn tekjulind. Samkvæmt skýrri dómaframkvæmd Evrópudómstólsins, meðal annars í málum gegn Ítalíu og Þýskalandi, geti ríki aldrei réttlætt takmarkanir á þjónustufrelsi með almennri tekjuöflun eða óljósum skattalegum rökum þar sem bein tengsl vanti.

31.Kaup á Furubrún og Bjarkarbraut 4a, Reykholti
2611044
Tillaga um að Bláskógabyggð geri kauptilboð í fasteignirnar Furubrún og Bjarkarbraut 4a, Reykholti.
Lagt er til að Bláskógabyggð festi kaup á fasteignunum Furubrún og Bjarkarbraut 4a í Reykholti.
Á lóðinni Furubrún stendur einbýlishús byggt 1994, auk pökkunarhúss og tveggja gróðurhúsa, sem ekki er plast á. Lóðin er leigulóð, alls 11.987 fermetrar.
Á lóðinni Bjarkarbraut 4a eru tvö gróðurhús, án plasts. Lóðin er 11.385 fermetrar. Lóðin er eignarlóð.
Alls er því um að ræða 23.372 fermetra lands. Lóðirnar liggja saman og eru staðsettar í miðju þéttbýlinu og myndu henta vel sem byggingarland fyrir sveitarfélagið.
Afmarka mætti hæfilega lóð fyrir íbúðarhúsið og selja það sérstaklega. Fjarlægja þyrfti önnur mannvirki.
Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela sveitarstjóra að undirrita tilboð í eignina. Gerður verði viðauki við fjárhagsáætlun vegna kaupanna, náist samkomulag við seljanda.

32.Fundartímar sveitarstjórnar 2026-2030
2605033
Tillaga um að haldinn verði aukafundur í sveitarstjórn miðvikudaginn 9. desember n.k.
Sveitarstjórn samþykkir að haldinn verði aukafundur í sveitarstjórn miðvikudaginn 9. desember nk kl 12:00.
33.Mat á umhverfisáhrifum, Hagavatnsvirkjun
2502014
Umsagnarbeiðni HMS dags 23. september 2026, ný gögn kynnt sem tengjast umhverfismati áforma um vatnsaflsvirkjun við Hagavatn, Bláskógabyggð (sjá mál nr. 1096/2026).
Umsagnarbeiðnin var lögð fram ásamt nýjum gögnum, þ.e. áhrifamati á vatnshlot og minnisblaði um rennsli og aurburð. Í fyrri umsögn sveitarstjórnar var tekið fram að mikilvægt væri að áhrif á sandfok og rykmengun til langs tíma yrðu könnuð betur þar sem um mikið hagsmunamál væri að ræða fyrir íbúa á svæðinu og jafnvel á landinu öllu. Eins taldi sveitarstjórn Bláskógabyggðar að kanna þyrfti betur þá fullyrðingu að ís lægi yfir svæðinu langt fram á sumar og hefti þar með fok af svæðinu. Fok af svæðinu hefur verið mikið í gegnum tíðina og skert lífsgæði á stóru svæði. Einnig þyrfti að gera grein fyrir áhrifum af breytingum á rennsli í Sandvatn. Vegna hugmynda um hóteluppbyggingu þyrfti að kanna áhrif á viðkvæm svæði í næsta nágrenni og fara yfir möguleika til stýringar á fjölda ferðamanna inn á svæðið.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fagnar því að frekari greiningar hafi verið gerðar og ítrekar áherslu sína á að langtímaáhrif virkjunnarinnar séu vel rannsökuð áður en lagt er af stað í framkvæmd sem getur hafa áhrif á lífsgæði íbúa í nánustu framtíð.

34.Matsskyldufyrirspurn vegna ferðaþjónustu í landi Efri-Reykja
2611036
Beiðni Húsnæðis-, mannvirkja- og orkustofnunar, dags. 02.11.2026, um umsögn vegna ferðaþjónustu í landi Efri-Reykja, breytingar á áformum, nr. 1263/2026: Tilkynning um framkvæmd (Tilkynning til ákvörðunar um matsskyldu)
Í fyrri umsögn sveitarstjórnar frá árinu 2019 kom fram að sveitarstjórn teldi framkvæmdina, eins og henni var lýst þá, háða mati á umhverfisáhrifum út frá staðsetningu framkvæmdarinnar, nánar tiltekið á þeim forsendum að um er að ræða svæði sem fellur að hluta undir náttúruminjar skv. náttúruminjaskrá, sjá 2. tl. lið iii a) í viðauka 2 í lögum nr. 106/2000, svæðið væri einnig ofarlega á víðáttumiklu vatnasviði, sjá 2.tl. lið iii d) í framangreindum viðauka og horfa beri til þátta sem varði álagsþol náttúrunnar, sbr. 2. tl. lið iv d) viðauka 2 um svæði á náttúruminjaskrá, svo sem þátta sem varða álag á lífríki árinnar, fuglalíf og gróður, bæði á framkvæmdatíma og til lengri tíma litið.
Niðurstaða Skipulagsstofnunar var hinsvegar sú að framkvæmdin væri ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
Ekki hefur verið ráðist í uppbyggingu á svæðinu en ákveðið hefur verið að breyta út frá áður kynntum áformum. Breytingin felst í að gistiskálum er bætt við fyrsta áfanga framkvæmdarinnar en byggingu hótels er frestað um óákveðinn tíma. Fram kemur í gögnum málsins meðal annars að aukning á byggingarmagni sé 6% og 21% aukning í losun skólps.
Sveitarstjórn ítrekar fyrri afstöðu sína um þörf á umhverfismati framkvæmdarinnar og telur framangreinda breytingu ekki draga úr þörf fyrir að unnið verði umhverfismat.

35.Rekstrarleyfisumsókn Prestabraut 8 og 10
2611026
Erindi sýslumannsins á Suðurlandi, dags. 05.11.2026 þar sem óskað er eftir umsögn um rekstrarleyfi í fl. II (H) Frístundahús, rýmisnúmer 01 0101 sumarbústaður og rýmisnúmer 02 0101 gestahús frá Smára B. Kolbeinssyni fyrir hönd Ferðaþjónustan Eyvík ehf., kt. 460720 - 0520 á sumarbústaðalandinu Prestabraut 8 og 10 (F252 9095 og F525 9099) í Bláskógabyggð.
Umsagnir byggingarfulltrúa liggja fyrir.
Umsagnir byggingarfulltrúa liggja fyrir.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar veitir jákvæða umsögn um erindið.
36.Þingsályktunartillaga um heimavist Fjölbrautaskóla Suðurlands 12. mál.
2611037
Tillaga til þingsályktunar um heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Lögð var fram tillaga til þingsályktunar um heimavist við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fagnar framkominni tillögu til þingsályktunar um heimavist fyrir Fjölbrautaskóla Suðurlands og tekur heilshugar undir markmið hennar. Sveitarstjórn telur mikilvægt að tryggja varanlega framtíðarlausn í heimavistarmálum skólans.

37.Endurskoðun byggðaáætlunar
2604016
Erindi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis, dags. 12.11.2026, þar sem sent er til umsagnar 313. mál Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2027-2041
Erindið var lagt fram. Umsagnarfrestur er til 26. nóvember n.k.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar fagnar því að unnið sé að stefnumótandi byggðaáætlun, sem sé mikilvægt stjórntæki til að tryggja búsetu og lífsgæði í dreifðum byggðum landsins.
Sveitarstjórn undrast jafnframt að af hálfu Alþingis og framkvæmdavaldsins sé nú á mörgum sviðum unnið gegn þeim markmiðum og sjónarmiðum sem stefnumótuninn byggir á.
Má þar nefna:
Aðgerð A.7 Almenningssamgöngur milli byggða. Nýverið mælti Innviðaráðuneytið fyrir um að Vegagerðin skyldi skera niður þjónustu strætó á Suðurlandi og bitnaði sá niðurskurður fyrst og fremst á akstursleiðum og þjónustuframboði í uppsveitum Árnessýslu.
Aðgerð B.4 Stoðkerfi nýsköpunar á landsbyggðinni. Fyrir liggur að fjármagn til sóknaráætlana verði skorið niður skv. fjárlagafrumvarpi sem nú liggur fyrir Alþingi.
Aðgerð B.7 Byggðatengdar ívilnanir og C.2 Brothættar byggðir. Af hálfu Bláskógabyggðar hefur verið bent á að á svæðum þar sem ferðaþjónusta hefur náð að verða heilsársatvinnugrein sé ekki þörf sérstakra byggðastyrkja, svo sem í verkefninu Brothættum byggðum. Því þykir aðför ríkisstjórnarinnar að ferðaþjónustunni skjóta skökku við, en á Suðurlandi eru dæmi um byggðir sem áður þóttu brothættar, en eru það ekki lengur vegna öflugrar ferðaþjónustu.

38.Frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum
2611021
Umsögn um frumvarp til breytingar á skipulagslögum.
Umsögn skipulagsfulltrúa um frumvarp til laga um breytingar á skipulagslögum var lögð fram.
39.Styrkur Evrópusambandsins Life IceWater verkefni
2412013
Staða á verkefninu IceWater, sem Bláskógabyggð og Grímsnes- og Grafningshreppur eru aðilar að í gegnum Heilbrigðiseftirlit Suðurlands. Breytt fyrirkomulag vegna niðurlagningar heilbrigðiseftirlitsins.
Sveitarstjóri fór yfir stöðu málsins. Unnið er að því að færa verkefnið frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og að umsjá þess fari til Umhverfis- og orkustofnunar og vinnsla verkefnisins til UTU.
40.Bæklingurinn Verum viðbúin
2611029
Erindi Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra frá 03.11.2026, þar sem kynnt er útgáfa bæklingsins Verum viðbúin.
Lagt fram til kynningar.
41.Kæra vegna synjunar á breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vörðubrekku 3, L234639
2611024
Tilkynning úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12.11.2026, um framkomna stjórnsýslukæru, þar sem kærð er ákvörðun sveitarstjórnar Bláskógabyggðar frá 21. október 2026 um að synja umsókn kærenda um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar Vörðubrekku 3, L236439.
Lagt fram til kynningar.
Fundi slitið - kl. 11:45.
Lögð er fram tillaga nýs deiliskipulags, eftir auglýsingu, fyrir íbúðar- og útihús og atvinnustarfsemi á jörðinni Einholti 2 L180525 í Bláskógabyggð. Á jörðinni er íbúðarhús og útihús þar sem stundað er kjúklingaeldi og einnig er þar flugbraut. Landeigandi hyggst byggja nýtt íbúðarhús með bílskúr, 5 gestahús, hesthús með reiðhöll, flugskýli og vera með gistingu fyrir allt að 30 gesti. Á núverandi bæjartorfu er fyrirhugað að byggja 2 hús til viðbótar fyrir kjúklingaeldi. Í aðalskipulagi er jörðin skilgreind sem landbúnaðarsvæði og flugbraut. Ekkert deiliskipulag er í gildi á jörðinni. Umsagnir og athugasemdir bárust á auglýsingatíma og eru þær lagðar fram við afgreiðslu málsins ásamt viðbrögðum við þeim og uppfærðum gögnum.
Borist hefur beiðni um breytingu á áður auglýstu deiliskipulagi og samþykkir sveitarstjórn því að breytt tillaga verði auglýst og málið tekið til meðferðar að því loknu.
-liður 2, Berghof 3 L218587 (upprunaland Bergsstaðir L189405); Lóð stækkar; Staðfest stærð lóðar 2609047
Lögð er fram umsókn ásamt merkjalýsingu dags.16.09.2026 skv. reglugerð um merki fasteigna 160/2024 er varðar stækkun lóðar. Óskað er eftir að stækka lóðina Berghof 3 L218587 um 26200,9 m2. sem verður eftir stækkun 45487,9 m2. Stækkunin kemur úr Bergsstöðum L189405.
Sveitarstjórn Bláskógabyggð geri ekki athugasemd við framlagða merkjalýsingu.
-liður 3, Aphólsvegur 3 L221649; Byggingarmagn aukið; Fyrirspurn 2610079
Lögð er fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi Aphóls í landi Apavatns 2 í Bláskógabyggð. Erindið varðar aukningu á heimiluðu byggingarmagni sumarhúss á viðkomandi lóð úr 150 m² í 170 m². Jafnframt er óskað eftir að nýtingarhlutfall lóðarinnar verði hækkað úr 0,03 í 0,04.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar synjar erindinu þar sem fyrirhuguð aukning á byggingarmagni og hækkun nýtingarhlutfalls eru ekki í samræmi við ákvæði gildandi aðalskipulags Bláskógbyggðar 2015-2027.
-liður 4, Gröf lóð 15D L200056 á Laugarvatni; Byggingarmagn aukið; Málsmeðferð, kostnaður og tími; Samsvörun lóða; Fyrirspurn 2610081
Lögð er fram fyrirspurn eiganda Grafar, lóðar 15D (L200056), í landi Grafar á Laugarvatni, sem samkvæmt gildandi deiliskipulagi Setbergs frá árinu 2002 er lóð nr. 3, 4.950 m² að stærð. Fyrirspurnin varðar aukningu á heimiluðu byggingarmagni sumarhúss á lóðinni úr 100 m² í allt að 148,5 m², þannig að nýtingarhlutfall verði 0,03.
Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og heimilar að lóðarhafi vinni breytingu á skilmálum deiliskipulags Setbergs er varðar aukið byggingarmagn sumarhúss á lóðinni Grafar, lóð 15D L200056, úr 100 m² í allt að 148,5 m² og hækkun nýtingarhlutfalls í 0,03. Formleg tillaga að breytingu á deiliskipulagi verði lögð fyrir skipulagsnefnd til afgreiðslu.
-liður 5, Kolviðarholtsmýri 1 L223689; Aukin mænishæð; Deiliskipulagsbreyting 2610086
Lögð er fram tillaga að breytingu á byggingarskilmálum deiliskipulags fyrir Kolviðarholtsmýri 1 (L223689) í Bláskógabyggð. Breytingin felst í því að bæta við sérákvæði fyrir lóð nr. 5330 um hámarks mænishæð byggingar. Samkvæmt tillögunni verður heimiluð mænishæð allt að 9 metrum frá gólfhæð á lóðinni, í stað almennra ákvæða deiliskipulagsins um 5,5 metra hámarksmænishæð. Jafnframt er gert ráð fyrir að einstakir byggingarhlutar geti náð allt að 10 metra hæð frá gólfhæð.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á deiliskipulagi Kolviðarholtsmýrar 1 sem óverulega breytingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Jafnframt liggur fyrir að aðeins er fyrirhuguð uppbygging á einni lóð og að unnið verður að heildarendurskoðun skipulags svæðisins á árinu 2027.
-liður 6, Brú L167070; Fella út námu E81; Aðalskipulagsbreyting 2611003
Lögð er fram umsókn Brúbests ehf. um breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar vegna lands Brúar. Óskað er eftir að náma E81 verði felld út úr aðalskipulaginu og að landnotkun svæðisins verði skilgreind sem landbúnaðarsvæði, í samræmi við núverandi notkun landsins. Í umsókninni kemur fram að ekki hafi verið hafin efnistaka á svæðinu og ekki sé fyrirhugað að hefja hana.
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir viðkomandi breytingu á aðalskipulagi Bláskógabyggðar 2015-2027. Málið fái málsmeðferð á grundvelli 3. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er varðar óverulega breytingu á aðalskipulagi. Málið verði sent HMS til samþykktar áður en niðurstaða sveitarstjórnar verður kynnt.
Fundargerðin var lögð fram til kynningar hvað aðra liði varðar.