Sveitarstjórn - eldri fundargerðir

55. fundur 27. mars 2006 kl. 15:20 - 15:20
  1. fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar haldinn
mánudaginn 27. mars 2006, kl 13:30 í Fjallasal, Aratungu     Mætt voru: Sveinn A. Sæland oddviti, Sigurlaug Angantýsdóttir, Margeir Ingólfsson, Margrét Baldursdóttir, Drífa Kristjánsdóttir, Snæbjörn Sigurðsson og Kjartan Lárusson.  Einnig  voru mættir Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi og Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri sem ritaði fundargerð.     
  1. Fundargerð byggðaráðs til staðfestingar:
1.1.     54. fundur, dags. 27. mars 2006. Fundargerð staðfest samhljóða.  
  1. Ársreikningur Bláskógabyggðar 2005, fyrri umræða.
Einar Sveinbjörnsson, endurskoðandi frá KPMG, gerði grein fyrir vinnu endurskoðenda.   Lagður fram ársreikningur Bláskógabyggðar fyrir árið 2005 ásamt sundurliðunum.  Einar Sveinbjörnsson og Valtýr Valtýsson gerðu grein fyrir ársreikningnum og skýrðu ýmsa liði.   Helstu niðurstöður úr rekstrar- og efnahagsreikningi samstæðu sveitarfélagsins eru:   Rekstrarreikningur: Rekstrartekjur:                      554.422.840 Rekstrargjöld:                     - 540.623.981 Fjármagnsgjöld:                    - 37.124.953 Rekstrarniðurstaða:               - 23.326.094   Efnahagsreikningur: Eignir: Fastafjármunir:                     576.289.199 Veltufjármunir:                       90.547.830 Eignir samtals:                      666.837.029 Skuldir og eigið fé: Eiginfjárreikningur:                 146.663.605 Langtímaskuldir:                    392.324.208 Skammtímaskuldir:                 127.849.216 Eigið fé og skuldir samtals:      666.837.029   Ársreikningi vísað til seinni umræðu í sveitarstjórn, sem verður á næsta reglubundna fundi hennar þann 4. apríl n.k.  
  1. Endurskoðun fjárhagsáætlunar og framkvæmdaáætlunar Bláskógabyggðar 2006.
Lögð fram tillaga að endurskoðaðri fjárhagsáætlun Bláskógabyggðar 2006, þar sem búið er að færa inn rauntölur ársins 2005 til samanburðar.  Einnig lögð fram framkvæmdaáætlun ársins 2006.   Áætluninni vísað til annarrar umræðu á næsta fundi sveitarstjórnar þann 4. apríl 2006.     Fleira ekki gert og fundi slitið kl.  16:30.
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?