Sveitarstjórn - eldri fundargerðir

162. fundur 16. júní 2014 kl. 16:37 - 16:37
  1. fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar haldinn
mánudaginn 16. júní 2014, kl. 9:30 í Aratungu   Mætt voru: Helgi Kjartansson, Valgerður Sævarsdóttir, Óttar Bragi Þráinsson, Kolbeinn Sveinbjörnsson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Eyrún M. Stefánsdóttir, Bryndís Á. Böðvarsdóttir, Valtýr Valtýsson sveitarstjóri og Sigurrós H. Jóhannsdóttir sviðsstjóri sem ritaði fundargerð.   Valgerður Sævarsdóttir setti fund, sem aldursforseti kjörinna fulltrúa, og bauð nýkjörið sveitarstjórnarfólk velkomið til starfa.  Valgerður lagði til dagskrárbreytingu að inn komi þrír (3) nýir liðir 10.7, 10.8 og 10.9. Samþykkt samhljóða.  
  1. Kosning oddvita og varaoddvita kjörtímabilið 2014 - 2018.
Lögð fram tillaga um Helga Kjartansson sem oddvita sveitarstjórnar. Tillagan var borin upp og samþykkt með fimm atkvæðum( VS,HK,KS,BÁB og GSM) og tveir sátu hjá (ÓBÞ og EMS).  Lögð fram tillaga um Valgerði Sævarsdóttur sem varaoddvita og hún  samþykkt með fimm atkvæðum ( VS,HK,KS,BÁB og GSM) og tveir sátu hjá (ÓBÞ og EMS).  
  1. Kosning fundarritara.
Ritari:                 Sigurrós H. Jóhannsdóttir, sviðstjóri. Vararitari:            Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri. Samþykkt samhljóða.  
  1. Ráðning sveitarstjóra Bláskógabyggðar.
Valtýr Valtýsson vék af fundi undir þessum dagskrárlið. Lögð fram drög að ráðningarsamningi við Valtý Valtýsson sem sveitarstjóra Bláskógabyggðar kjörtímabilið 2014 til 2018. Fyrirliggjandi drög að ráðningarsamningi við Valtý Valtýsson samþykktur samhljóða og oddvita falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.  
  1. Kosning í nefndir og ráð Bláskógabyggðar.
Lögð fram heildstæð tillaga um kjör fulltrúa í eftirtaldar nefndir og ráð, sem unnin hefur verið af báðum listum sveitarstjórnar:   Byggðaráð, til eins árs, ásamt kjöri formanns og varaformanns. Aðalmenn: Valgerður Sævarsdóttir, formaður Helgi Kjartansson Óttar Bragi Þráinsson Varamenn: Kolbeinn Sveinbjörnsson Guðrún Magnúsdóttir Eyrún Margrét Stefánsdóttir   Yfirkjörstjórn Bláskógabyggðar til fjögra ára: Aðalmenn: Pétur Skarphéðinsson Hilmar Einarsson Þóra Einarsdóttir Varamenn: Guðrún Sveinsdóttir Sigurður Jónsson Sveinbjörn Einarsson   Undirkjörstjórn fyrir Biskupstungur til fjögra ára: Aðalmenn: Elínborg Sigurðardóttir Ólafur Einarsson Geirþrúður Sighvatsdóttir Varamenn : Kristján Kristjánsson Bjarni Kristinsson Jórunn Svavarsdóttir   Undirkjörstjórn fyrir Laugardal og Þingvallasveit til fjögra ára: Aðalmenn: Elsa Pétursdóttir Pétur Ingi Haraldsson Karl Eiríksson Varamenn: Ólöf Björg Einarsdóttir Margrét Þórarinsdóttir Hörður Bergsteinsson   Fjallskilanefnd Biskupstungna: Aðalmenn: Eiríkur Jónsson, formaður, Gýgjarhólskoti Hallgrímur Guðfinnsson, Miðhúsum Eyvindur Magnús Jónasson, Kjóastöðum Trausti Hjálmarsson, Austurhlíð. Guðrún S. Magnúsdóttir, Bræðratungu Varamenn: Rúnar Björn Guðmundsson, Vatnsleysu. Sævar Bjarnhéðinsson, Arnarholti. Egill Jónasson, Hjarðarlandi. Kjartan Sveinsson, Bræðratungu. Kristín S. Magnúsdóttir, Austurhlíð.   Fjallskilanefnd Laugardals: Kosning fulltrúa í fallskilanefnd Laugardals frestað og byggðaráði falið að kjósa í nefndina við fyrstu hentugleika.   Fjallskilanefnd Þingvallasveitar: Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að þetta kjörtímabil skulu allir nefndarmenn fjallskilanefndar Þingvallasveitar vera aðalmenn, en þeir eru: Halldór Kristjánsson, formaður Stíflisdal. Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ. Gunnar Þórisson, Fellsenda. Ragnar Jónsson, Brúsastöðum. Jóhann Jónsson, Mjóanesi. Sveinbjörn Einarsson, Heiðarbæ II.       Skólanefnd: Aðalmenn : Bryndís Á. Böðvarsdóttir Valgerður Sævarsdóttir    Axel Sæland Varamenn: Trausti Hjálmarsson Ágústa Þórisdóttir Freyja Rós Haraldsdóttir   Umhverfisnefnd: Aðalmenn: Sigríður Jóna Sigurfinnsdóttir Pálmi Hilmarsson Ragnhildur Sævarsdóttir                                                                         Varamenn: Elísabet Björney Lárusdóttir Kolbeinn Sveinbjörnsson Eyrún Margrét Stefánsdóttir                           Menningarmálanefnd: Aðalmenn: Skúli Sæland, formaður Sigríður Jónsdóttir Sigurlína Kristinsdóttir Varamenn: Trausti Hjálmarsson Geirþrúður Sighvatsdóttir Sigurlaug Angantýsdóttir                                                                            Æskulýðsnefnd: Aðalmenn: Lára Hreinsdóttir Smári Þorsteinsson Sigurjón Pétur Guðmundsson Varamenn:          Borghildur Guðmundsdóttir Ingibjörg Sigurjónsdóttir Freyja Rós Haraldsdóttir   Atvinnu- og ferðamálanefnd: Aðalmenn: Kristinn Bjarnason Sigurjón Sæland Gróa Grímsdóttir Sigurlaug Angantýsdóttir Eyrún Margrét Stefánsdóttir Varamenn: Þorsteinn Þórarinsson Guðrún Magnúsdóttir                        Bryndís Ásta Böðvarsdóttir Axel Sæland Kristján Traustason                 Samgöngunefnd; Aðalmenn: Kjartan Lárusson Jakob Narfi Hjaltason Sölvi Arnarsson Varamenn: Vilborg Guðmundsdóttir Kristinn Bjarnason Þórarinn Þorfinnsson   Veitustjórn: Aðalmenn: Kjartan Lárusson Kolbeinn Sveinbjörnsson Axel Sæland Varamenn: Brynja Eyþórsdóttir Svava Theodórsdóttir Ómar Sævarsson              Fulltrúar á aðalfund Samband íslenskra sveitarfélaga: Aðalmaður: Helgi Kjartansson      Varamaður: Valgerður Sævarsdóttir   Héraðsnefnd Árnesinga: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Valgerður Sævarsdóttir            Skipun áheyrnarfulltrúa í Héraðsnefnd Árnesinga: Aðalmaður: Óttar Bragi Þráinsson Varamaður: Eyrún Margrét Stefánsdóttir   Í stjórn Landgræðslufélags Biskupstungna: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Guðrún S. Magnúsdóttir   Almannavarnarnefnd: Aðalmaður: Valtýr Valtýsson, sveitarstjóri. Varamaður: Helgi Kjartansson        Skipulagsnefnd Uppsveita: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Valgerður Sævarsdóttir   Stjórn Skipulagsfulltrúa Uppsveita bs: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Valgerður Sævarsdóttir   Fulltrúar á aðalfund SASS: Aðalmenn:  Helgi Kjartansson Valgerður Sævarsdóttir Eyrún Margrét Stefánsdóttir Varamenn: Guðrún Magnúsdóttir Bryndís Böðvarsdóttir Óttar Bragi Þráinsson   Fulltrúar á aðalfund Heilbrigðiseftirlits Suðurlands: Aðalmenn: Guðrún Magnúsdóttir Bryndís Böðvarsdóttir Óttar Bragi Þráinsson                                                     Varamenn: Valgerður Sævarsdóttir Kolbeinn Sveinbjörnsson Eyrún Margrét Stefánsdóttir                       Fulltrúar á aðalfund Sorpstöðvar Suðurlands: Aðalmaður: Kolbeinn Sveinbjörnsson        Varamaður: Helgi Kjartansson   Fulltrúar á aðalfund Eignarhaldsfélags Suðurlands: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Valgerður Sævarsdóttir   Yfirstjórn sameiginlegrar skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings: Aðalmaður: Helgi Kjartansson Varamaður: Bryndís Böðvarsdóttir   Skipan fulltrúa sveitarstjórnar í vinnu við skipulagsmál Geysissvæðisins Drífa Kristjánsdóttir   Tillagan samþykkt samhljóða.  
  1. Ráðning oddvita í hlutastarf.
Helgi Kjartansson vék af fundi undir þessum dagskrárlið og tók Valgerður Sævarsdóttir við fundarstjórn. Lögð fram drög að ráðningarsamningi við Helga Kjartansson, oddvita, í 50% starf hjá skrifstofu Bláskógabyggðar,  fyrir störf hans sem tilgreind eru í ráðningarsamningi s.s. skipulags- og framkvæmdamál sveitarfélagsins. Fyrirliggjandi eru drög að ráðningarsamningi er samþykktur samhljóða og sveitarstjóra falið að undirrita samninginn fyrir hönd sveitarstjórnar.  
  1. Ákvörðun um fundardag, fundartíma og staðsetningu reglubundinna funda sveitarstjórnar og byggðaráðs.
Lagt er til að fastir fundartímar sveitarstjórnar og byggðaráðs verði eftirfarandi: Sveitarstjórnarfundir:       Fyrsti fimmtudagur í mánuði kl. 15:15. Byggðaráð:                     Síðasti föstudagur í mánuði kl. 9:30. Aukafundir verða boðaðir sérstaklega.  Fundirnir verða haldnir í Aratungu. Samþykkt samhljóða.
  1. Fyrirkomulag sumarleyfa m.m:
7.1.   Sumarlokun skrifstofu Bláskógabyggðar Lagt er til að skrifstofa sveitarfélagsins verði lokuð frá 7. júlí til og með 1. ágúst n.k.  Munu starfsmenn skrifstofu taka út sumarfrí sitt eftir því sem kostur er og verkefni gefa tilefni til.  Þessi tilhögun hefur verið rædd við alla starfsmenn skrifstofu og eru allir sáttir við þetta fyrirkomulag. Samþykkt samhljóða.   7.2.        Ákvörðun um sumarleyfi sveitarstjórnar. Lagt er til að sumarfrí sveitarstjórnar verði í júlí og ágúst, en hægt verði þó að boða til fundar í ágúst ef þurfa þykir.  Þetta er sama fyrirkomulag og verið hefur undanfarin ár. Samþykkt samhljóða.  
  1. Skýrsla Ingvars Sigurgeirssonar ?Skipan skóla í Bláskógabyggð? dags. 18. maí 2014.
Lögð fram skýrsla Ingvars Sigurgeirssonar ?Skipan skóla í Bláskógabyggð? og innihald hennar rætt. Samþykkt að skipaður verði vinnihópur til að vinna tillögu að framtíðarskipan skólamála í Bláskógabyggð.  Í vinnuhópinn eru eftirtaldir aðilar skipaðir: Helgi Kjartansson Bryndís Böðvarsdóttir Óttar Bragi Þráinsson Valtýr Valtýsson Vinnuhópurinn skal vinna tillögu sína í samráði við skólastjórnendur og einnig að haft verði samráð við Ingvar Sigurgeirsson og aðra þá fagaðila sem vinnuhópurinn telur að þörf sé á að koma að málum. Vinnuhópi falið að flýta þessari vinnu sem nokkur kostur er.  
  1. Tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2014; kostnaður vegna framkvæmda við gaslagnir í Gíslaskála og Árbúðum sumarið 2013. Lögð fram tillaga um viðauka við fjárhagsáætlun 2014 vegna kostnaðar við framkvæmdir á gaslögnum í Gíslaskála og Árbúðum. Verkið var framkvæmt á síðasta ári og var gert ráð fyrir þeim útgjöldum á fjárhagsáætlun 2013.  Reikningur fyrir verkinu barst fyrst núna í maímánuði á þessu ári.  Flyst þessi kostnaður til milli ára.  Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að auka fjárheimildir til viðhalds Gíslaskála og Árbúða sem nemur kr. 1.590.065 og mun rekstrarafgangur ársins 2014 lækka sem því nemur.
 
  1. Innsend erindi:
10.1.  Bréf Láru Hreinsdóttur, dags. í júní 2014; ástand skólahúsnæðis og búnaðar á Laugarvatni. Lagt fram bréf Láru Hreinsdóttur þar sem hún bendir á nokkur viðhaldsverkefni sem lýtur að viðhaldi skólahúsnæðisins á Laugarvatni svo og ástand búnaðar sem þarf nauðsynlegar úrbætur. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela Kristni sviðsstjóra Þjónustu- og framkvæmdasviðs að fara yfir umræddar ábendingar og koma fram með forgangsröðun þessara verkefna og hvað af þessum atriðum falli innan fjárhagsáætlunar þessa árs.  Unnin verði áætlun um aðgerðir til að bregðast við framlögðum ábendingum, jafnframt verði ástand skólahúsnæðisins og búnaðar metið í þessari vinnu.  Skoðaður verði samningur milli Bláskógaskóla og ISS.   10.2.  Bréf Hvalfjarðarsveitar, dags. 6. júní 2014; aðalskipulagsbreyting á stefnumörkun iðnsvæða. Lagt fram bréf Hvaðlfjarðarsveitar þar sem kynnt er tillaga að aðalskipulagsbreytingu á stefnumörkun iðnsvæða.  Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að svara umræddu erindi í umboði sveitarstjórnar.   10.3.  Bréf Hvalfjarðarsveitar, dags. 6. júní 2014; breyting aðalskipulags iðnaðar- og athafnasvæðis á Grundartanga ásamt umhverfisskýrslu. Lagt fram bréf Hvalfjarðarsveitar þar sem kynnt er breyting aðalskipulags iðnaðar- og athafnasvæðis á Grundartanga ásamt umhverfisskýrslu. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að fela skipulagsfulltrúa að svara umræddu erindi í umboði sveitarstjórnar.   10.4.  Bréf Ungmennafélags Laugdæla, dags. 11. júní 2014; strandblakvöllur. Lagt fram bréf Ungmennafélags Laugdæla þar sem óskað er eftir fjárstyrk til að koma upp strandblakvelli við Laugarvatn.  Gert er ráð fyrir að kostnaður við efniskaup verði nálægt einni milljón króna.  Framkvæmd verkefnisins verði á höndum ungmennafélaga sem sjálfboðavinna. Sveitarstjórn samþykkri samhljóða að styrkja verkefnið um kr. 250.000.-   10.5.  Bréf Vegagerðarinnar, dags. 6. júní 2014; framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Þingvallavegar og Haksvegar. Lagt fram bréf Vegagerðarinnar þar sem óskað er eftir framkvæmdaleyfi vegna breytinga á gatnamótum Þingvallavegar og Haksvegar.  Sveitarstjórn vísar til fyrri bókana sinna um málið. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að vísa þessu erindi til skipulagsfulltrúa og veitir honum umboð sitt til að gefa út tilskilin leyfi fyrir framkvæmdinni í takt við fyrri samþykktir sveitarstjórnar og skipulagsnefndar.   10.6.  Bréf Tónsmiðju Suðurlands, dags. 27. maí 2014; ósk um samstarf. Lagt fram bréf Tónsmiðju Suðurlands þar sem óskað er eftir samstarfi við Bláskógabyggð. Samningur þar að lútandi er meðfylgjandi bréfinu með gildistíma næsta skólaár. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar þakkar tilboðið en samþykkir samhljóða að ganga ekki til samninga við Tónsmiðjuna.  Bláskógabyggð er aðili að Tónlistarskóla Árnesinga og telur að sú þátttaka fullnægi þeim skyldum sem sveitarfélagið hefur gagnvart tónlistarnámi íbúa Bláskógabyggðar.   10.7.  Bréf Landgræðslufélags Biskupstungna, dags. 15. júní 2014; landgræðsludagur. Lagt fram bréf Landgræðslufélags Biskupstungna þar sem félagið óskar eftir styrk Bláskógabyggðar til að bjóða gestum landgræðsludagsins til kaffisamsætis í Aratungu þann 22. ágúst 2014.  Áætlaður gestafjöldi er 60 - 70 manns. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir samhljóða að bjóða gestum kaffi og meðlæti.   10.8.  Bréf Sýslumannsins á Selfossi, dags. 12. júní 2014; leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II, Skjótur ehf, Kjóastöðum. Lagt fram bréf Sýslumannsins á Selfossi þar sem óskað er eftir umsögn sveitarstjórnar Bláskógabyggðar vegna umsóknar um leyfi til reksturs veitingastaðar í flokki II í Skjóli, Kjóastöðum.  Umsækjandi er Skjótur ehf, kt. 090170-3179. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir fyrir sitt leyti að umrætt leyfi verði veitt, enda samræmist umrædd starfsemi gildandi skipulagi svæðisins.   10.9.  Bréf umhverfisnefndar Bláskógabyggðar, dags. 12. júní 2014; áskorun vegna skógarkerfils. Lagt fram bréf umhverfisnefndar Bláskógabyggðar þar sem fram kemur áskorun til sveitarstjórnar um að uppræta kerfil í sveitarfélaginu.  Meðfylgjandi bréfinu yfirlit yfir þá staði sem beina þarf athygli að í þessu verkefni. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkir að senda út hvatningu og leiðbeiningar um upprætingu á skógakerfli til íbúa Bláskógabyggðar.  
  1. Efni til kynningar:
11.1.  Samkomulag milli velferðarráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga um skiptingu ábyrgðar vegna talmeinaþjónustu. 11.2.  Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 10. júní 2014; úthlutun úr námsgagnasjóði. 11.3.  Tillaga að breytingu deiliskipulags Hótels Geysis. 11.4.  Bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 6. júní 2014; kosning fulltrúa á landsþing.     Fundi slitið kl. 11:30.
Er eitthvað á síðunni sem betur má fara?