284. fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar haldinn í Aratungu, Reykholti,
föstudaginn 18. júní 2021, kl. 11:00.
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Valgerður Sævarsdóttir, Óttar Bragi Þráinsson, Kolbeinn Sveinbjörnsson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Róbert Aron Pálmason, Axel Sæland og Ásta Stefánsdóttir.
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.
| 1. |
Ráðning sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs - 2105025 |
|
Tillaga um ráðningu sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs |
|
Sveitarstjórn fór yfir þær sjö umsóknir sem bárust og öll gögn í ráðningarferlinu. Ásta Stefánsdóttur, sveitarstjóri, og Helga Kjartansson, oddviti, stýrðu ráðningarferlinu. Þeir þrír umsækjendur sem best þóttu standast hæfnikröfur sem settar voru fram í auglýsingu voru teknir í viðtal. Ásta Stefánsdóttir fór yfir ráðningarferlið og lagði fram greinargerð og mat á þessum þremur umsækjendum. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar telur í ljósi þeirra umsókna, gagna og greinargerðar sem lögð hafa verið fyrir sveitarstjórn að Kristófer Arnfjörð Tómasson sé hæfastur af umsækjendum og samþykkir að honum verði boðið starf sviðsstjóra framkvæmda- og veitusviðs. Sveitarstjórn vill þakka öllum umsækjendum fyrir góðar umsóknir og áhuga á að gegna þessu starfi. |
| |
|
|
| 2. |
Viðhaldsframkvæmdir við íþróttahúsið á Laugarvatni - 2105006 |
|
Tillaga um viðhald íþróttahúss á Laugarvatni (ytra byrði) |
|
Sveitarstjórn samþykkir að ráðist verði í að mála íþróttahúsið á Laugarvatni að utan og felur oddvita og sveitarstjóra að vinna málið áfram. |
| |
|
|
| 3. |
Viðhald grunnskóla 2021 - 2106015 |
|
Viðhald húsnæðis grunnskóla á Laugarvatni og í Reykholti (ytra byrði) |
|
Farið var yfir viðhaldsþörf skólahúsanna, einkum hvað varðar málningu utanhúss. Sveitarstjórn samþykkir að sumarið 2021 verði grunnskólinn í Reykholti málaður að utan og Öspin á Laugarvatni og að sumarið 2022 verði grunnskólinn á Laugarvatni málaður. Oddvita og sveitarstjóra er falið að vinna málið áfram. |
| |
|
|
Fundi slitið kl. 11:35.
| Helgi Kjartansson |
|
Valgerður Sævarsdóttir |
| Óttar Bragi Þráinsson |
|
Kolbeinn Sveinbjörnsson |
| Guðrún S. Magnúsdóttir |
|
Róbert Aron Pálmason |
| Axel Sæland |
|
Ásta Stefánsdóttir |