334. fundur sveitarstjórnar Bláskógabyggðar haldinn í Aratungu, Reykholti,
fimmtudaginn 4. maí 2023, kl. 17:00.
Fundinn sátu:
Helgi Kjartansson, Stefanía Hákonardóttir, Sveinn Ingi Sveinbjörnsson, Guðrún S. Magnúsdóttir, Guðni Sighvatsson var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Áslaug Alda Þórarinsdóttir, Anna Greta Ólafsdóttir var fjarverandi en í staðinn sat fundinn Þóra Þöll Meldal Tryggvadóttir, Jón Forni Snæbjörnsson og Ásta Stefánsdóttir.
Fundargerð ritaði: Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri.
| 1. |
Ársreikningur Bláskógabyggðar 2022 - 2301040 |
|
Ársreikningur Bláskógabyggðar, fyrri umræða |
|
Auðunn Gestsson, endurskoðandi kom inn á fundinn og kynnti ársreikning Bláskógabyggðar fyrir árið 2022 og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningnum til síðari umræðu. |
| |
|
|
| 2. |
Ársreikningur Bláskógaljóss 2022 - 2304062 |
|
Ársreikningur Bláskógaljóss, fyrri umræða |
|
Auðunn Gestsson, endurskoðandi kynnti ársreikning Bláskógaljóss fyrir árið 2022 og svaraði fyrirspurnum fundarmanna. Sveitarstjórn samþykkir að vísa ársreikningnum til síðari umræðu með ársreikningi Bláskógabyggðar. |
| |
|
|
| 3. |
Ársreikningur Bláskógaveitu 2022 - 2304061 |
|
Ársreikningur Bláskógveitu, fyrri umræða |
|
Ársreikningur Bláskógaveitu verður lagður fyrir framkvæmda- og veitunefnd og fyrir fund sveitarstjórnar samhliða síðari umræðu um ársreikning Bláskógabyggðar. |
| |
|
|
| 4. |
Fundartímar sveitarstjórnar 2022-2026 - 2205041 |
|
Tillaga um fundartíma |
|
Sveitarstjórn samþykkir að næsti sveitarstjórnarfundur verði haldinn mánudaginn 15. maí nk. Ekki verði haldinn fundur á reglulegum fundartíma hinn 17. maí nk. |
| |
|
|
Fundi slitið kl. .
| Helgi Kjartansson |
|
Stefanía Hákonardóttir |
| Sveinn Ingi Sveinbjörnsson |
|
Guðrún S. Magnúsdóttir |
| Áslaug Alda Þórarinsdóttir |
|
Þóra Þöll Meldal Tryggvadóttir |
| Jón Forni Snæbjörnsson |
|
Ásta Stefánsdóttir |